Morgunblaðið - 17.12.2006, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. DESEMBER 2006 55
Föstudaginn 8. des-
ember fengum við þær fréttir að þú
hefðir sofnað hinum eilífa svefni á
heimili þínu á Ísafirði. Okkur var
mikið brugðið og margar hugsanir
sóttu á okkur. Þú fæddist hinn 9. júlí
árið 1936 og ólst upp á Tortenli, í
sveit á eyjunni Senja í Norður-Nor-
egi. Þú fórst snemma á flakk um
hinn stóra heim og gerðir Ísland
fljótt að þínu heimili og fengum við
marga spennandi pakka senda það-
an. Okkur þótti afar vænt um þínar
heimsóknir til okkar í Noregi. Við
viljum minnast þín og heiðra þig með
þessu ljóði.
Eg elskar livet som meg er gjeve.
Det store under som går i djupet
som eg fekk eige og ha hos meg.
Eg elskar livet, det store drama
som eg fekk spele og regissere
og klappe heftig og applaudere.
Eg elskar livet som er så skummelt
at eg går dirrande gjennom det.
Kva tru som lurer bak neste hjørne?
Eg elskar livet, snart er eg komen til siste
hjørne.
Å du for spaning og dramatikk.
Nú leggur þú af stað í þína hinstu
ferð og ert sú fyrsta sem hittir
mömmu og pabba. Við biðjum þig
um að skila kveðju til þeirra frá okk-
ur, og ryðja veginn svo það verði létt
fyrir okkur hin systkinin að fylgja
eftir. Við sendum okkar dýpstu sam-
úð til eiginmanns þíns Kristjáns,
barna þinna, barnabarna og lang-
ömmubarna. Hvíldu í friði. Kveðja,
systkinin í Noregi,
Elsa, Arvid, Astrid, Jarle, Bjørn-
Helge, Arnulf, Bror og Lillemor.
Elsku Sonja mín. Mikið var ég
heppin að kynnast þér þegar ég kom
til Ísafjarðar um árið. Þá rakst þú
mötuneytið á heimavistinni sem ég
bjó á í heil fjögur ár.
Við sem bjuggum á vistinni skipt-
umst á við að aðstoða í eldhúsinu við
frágang eftir matinn. Þar heyrðir þú
til mín þar sem ég var að tala við vin-
konu mína sem var búin að ráða sig í
heimilisþrif úti í bæ. Eitthvað var ég
að velta þessu fyrir mér hvort ég
gæti líka fengið vinnu þegar þú
blandaðir þér í umræðurnar og
bauðst mér að vinna heima hjá þér.
Ég samþykkti það strax og þá hófust
okkar kynni. Þú reyndist mér mjög
vel og gat ég alltaf leitað til þín.
Í eldhúsinu á vistinni var oft glatt
á hjalla og vorum við nokkur sem
áttum þar okkar griðastað. Þegar ég
hugsa til baka um þennan tíma á Ísa-
firði eru þetta bestu stundirnar. Þú
hafðir gaman af að fylgjast með okk-
ur og því sem við vorum að gera. Ef
einhverjum ,,varð það á“ að henda
ósoðnu eggi í hausinn á næsta manni,
skemmtir þú þér manna best. Þetta
fannst mér svo æðislegt við þig. Þú
tókst sjálfa þig ekkert of alvarlega
og varst frekar þátttakandi í vitleys-
unni með okkur heldur en að
skamma og skipta þér af.
Fastur liður hjá okkur var að fá
þig til að spá í bolla. Þá komu mörg
leyndarmálin fram í dagsljósið sem
þú einhvern vegin náðir upp úr okk-
ur. Man ég eftir einu atviki sem eng-
inn vissi um nema ég sem þú sást í
mínum bolla. Þegar þú varst búin að
horfa smá stund í bollann minn,
hundskammaðir þú mig og sagðir
mér að hætta þessari vitleysu strax.
María Sonja
Hjálmarsdóttir
✝ María SonjaHjálmarsdóttir
(Sonja) fæddist í
Laukhella á eyjunni
Senja í Norður-
Noregi 9. júlí 1936.
Hún varð bráð-
kvödd á heimili sínu
föstudaginn 8. des-
ember síðastliðinn
og var útför hennar
gerð frá Vídalíns-
kirkju 15. desem-
ber.
Þá fyrst fór ég að trúa
því að þú hefðir ein-
hverja bollaspádóms-
hæfileika.
Eftir að veru minni
á Ísafirði lauk héldum
við áfram sambandi og
þegar ég flutti til
Þingeyrar heimsótti
ég þig þegar ég fór til
Ísafjarðar. Á heima-
vistarárunum sagðir
þú við mig að þegar að
ég gifti mig vildir þú fá
að sjá um brúðkaups-
veisluna. Og það gerð-
ir þú svo sannarlega vel. Ennþá, eftir
öll þessi ár, er verið að tala um hvað
maturinn í brúðkaupinu mínu hafi
verið góður. Þú varst algjör snilling-
ur í mat og enn og aftur, takk fyrir
mig.
Ég man hvað ferðin þín til mín var
erfið þegar kom að blessuðu brúð-
kaupinu. Þú þjáðist alla tíð af inni-
lokunarkennd og hefti það þig að
mörgu leyti mikið. En daginn sem þú
ætlaðir að koma var þykk þoka á
Breiðadalsheiðinni og í þínum huga
var það óyfirsíganleg hindrun. Þú
hringdir í mig og sagðir ,,ta er toka á
heidin“. Við vorum komin að því að
panta hamborgara og franskar þeg-
ar þú ákvaðst að láta þig hafa það.
Ég veit hvað þetta var þér erfitt, en
það tókst.
Eftir að ég flutti í Mjólkárvirkjun
1996 og jarðgöngin komu undir
Breiðadalsheiði komst þú aldrei í
heimsókn. Ég hefði svo gjarnan vilj-
að fá þig, bara til að þú sæir hvernig
ég hefði það þarna með minni fjöl-
skyldu.
Eftir að tvíburarnir mínir fæddust
í nóv. 2000 kom sending frá þér, fullt
af jólasmákökum. Þvílík himnasend-
ing! Alltaf varst þú að hugsa til mín,
Sonja mín.
Nú ert þú búin að vera mikið veik
og eins og ég sagði við þig, þá átti ég
orðið von á að fá hringingu um að þú
værir dáin. Þegar ég hitti þig síðast
varstu mjög hress og ég ákvað að þú
værir ekkert svona mikið veik. Ég
varð því hissa að þú hefðir virkilega
dáið núna. En svona er víst lífið, það
endar, og alltaf kemur það manni
samt á óvart.
Elsku Sonja mín, ég vil þakka þér
fyrir allar góðu stundirnar okkar og
fyrir að fylgjast með mér öll þessi ár.
Ég og fjölskylda mín vottum
Kristjáni og öðrum aðstandendum
okkar dýpstu samúð.
Hvíl í friði kæra vinkona.
Nanna Björk.
Mig langar að kveðja gamla vin-
konu með nokkrum orðum. Ég
kynntist Sonju fyrir rúmum 19 árum
þegar ég fór að kenna við Mennta-
skólann á Ísafirði. Sonja rak þar
mötuneyti heimavistarinnar og ég
flutti í kokkaíbúðina ásamt dóttur
minni sem þá var sex ára. Við mæðg-
ur eigum margar góðar minningar
um Sonju og ég er henni afar þakklát
fyrir alla þá hjálp sem hún veitti okk-
ur. Sonja kallaði ekki allt ömmu sína
og það var fátt sem henni reyndist
ómögulegt. Ég lærði mikið af henni
sem hefur gagnast mér í lífinu.
Ég votta Kristjáni og öllum að-
standendum Sonju samúð mína.
Valdís Stefánsdóttir.
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Önnumst alla þætti útfararinnar
Þegar andlát ber að höndum
Arnór L. Pálsson
framkvæmdastjóri
Ísleifur Jónsson
útfararstjóri
Frímann Andrésson
útfararþjónusta
Svafar Magnússon
útfararþjónusta
Hugrún Jónsdóttir
útfararþjónusta
Guðmundur Baldvinsson
útfararþjónusta
Þorsteinn Elísson
útfararþjónusta
Ellert Ingason
útfararþjónusta
✝
Elskuleg systir okkar og frænka,
ANNA MALMQUIST EIDSHEIM,
lést í Kristiansand, Noregi, sunnudaginn 10. desember síðastliðinn.
Jarðarförin hefur farið fram.
Hildur, Sigurbjörg, Unnur, Inga, Rakel, Kristrún
og fjölskyldur.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
SESSELJA BJÖRG HELGADÓTTIR,
Vesturvangi 38,
Hafnarfirði,
lést á heimili sínu miðvikudaginn 13. desember sl.
Jarðarförin fer fram frá Víðistaðakirkju mánudaginn
18. desember kl. 15.00.
Blóm og kransar afþakkaðir, en þeir sem vilja minn-
ast hennar láti Krabbameinsfélagið njóta þess.
Magnús Gunnþórsson,
Steinn Ármann Magnússon, Jenný Rúnarsdóttir,
Halldór Magnússon,
Tumi Steinsson og Hugi Steinsson.
✝
Elskuleg systir og mágkona,
RÓSA GÍSLADÓTTIR SHULTZ,
Lancaster, PA,
lést fimmtudaginn 14. desember.
Alda Gísladóttir, Brynleifur Sigurjónsson.
✝
Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir,
ANNA HALLDÓRSDÓTTIR,
dvalarheimilinu Hlíð,
Akureyri,
áður til heimilis í
Víðilundi 6H,
lést sunnudaginn 10. desember.
Útförin fer fram frá Höfðakapellu þriðjudaginn
19. desember kl. 13:00.
Kolbrún Matthíasdóttir,
Guðný Matthíasdóttir, Jóhann Sigvaldason,
Jón Matthíasson, Kristbjörg Gunnarsdóttir,
Halldór Matthíasson
og fjölskyldur.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
BERGÞÓR JÓHANNSSON
grasafræðingur,
Reynimel 78,
Reykjavík,
sem lést á hjartadeild Landspítalans við Hringbraut
að morgni sunnudagsins 10. desember, verður
jarðsunginn frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 19. des-
ember kl. 15.00.
Dóra Jakobsdóttir,
Kolbrún Bergþórsdóttir,
Brynhildur Bergþórsdóttir, Jens Ingólfsson,
Ásdís Bergþórsdóttir,
Anna Bergþórsdóttir,
Auður Ákadóttir,
Ólafur Ásdísarson.
✝
Elsku besti sonur okkar, bróðir, mágur og barna-
barn,
ÁGÚST BJARNASON,
Esjugrund 33,
áður til heimilis
á Kirkjubæjarbraut 4,
Vestmannaeyjum,
sem lést af slysförum sunnudaginn 10. desember,
verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju þriðjudag-
inn 19. desember kl. 14:00.
Aurora G. Friðriksdóttir, Bjarni Sighvatsson,
Sighvatur Bjarnason, Jóhanna Jóhannsdóttir,
Anna J. Oddgeirs, Friðrik Á. Hjörleifsson,
Elín J. Ágústsdóttir.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
JÓHANNA SIGRÍÐUR EINARSDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudag-
inn 20. desember kl. 11.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Stefán R. Jónsson, Anna Þ. Bjarnadóttir,
Ragnhildur Jónsdóttir, Lárus Kjartansson,
Anna Björk Jónsdóttir, Ólafur Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.