Morgunblaðið - 18.12.2006, Blaðsíða 6
6 MÁNUDAGUR 18. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
aktu enga áhættu!g
ieldu KEA í jólamatinn
ÓLAFUR Ásgeirsson, þjóðskjala-
vörður, hefur veitt Alþýðusam-
bandi Íslands umbeðnar upplýs-
ingar um hvort og þá hvenær
símar ASÍ hafi verið hleraðir á ár-
unum 1949 til 1976.
Í svari þjóðskjalavarðar, sem
lesa má á vef ASÍ, segir m.a.
„Eftir nánari skoðun á þeim
skjölum sem varðveitt eru á Þjóð-
skjalasafni og varða dómsúrskurði
er veittu stjórnvöldum heimildir til
símahlerana á tímabilinu 1949–
1976, er ljóst að stjórnvöldum var
einu sinni, þann 26. febrúar 1961,
veitt heimild til að hlera símanúm-
erið 19348, sem skráð var á Al-
þýðusamband Íslands.“
Á vef ASÍ kemur fram sú skoð-
un að svar þjóðskjalavarðar veki
fleiri spurningar en það svari. Í
ljósi þeirra upplýsinga sem nú
liggi fyrir muni sambandið fylgjast
grannt með framvindu málsins í
heild sinni og bíða niðurstöðu sér-
stakrar nefndar Alþingis áður en
ákvörðun um framhald málsins
verði tekin.
ASÍ ósátt við svör
ÍSLENSKUM hjónum á leið til
landsins frá Kúbu var vísað úr flug-
vél Heimsferða í Halifax í Kanada
eftir að maðurinn hafði látið ófrið-
lega á meðan á flugi stóð, angrað
farþega og sýnt flugþjónum dóna-
skap.
Samkvæmt upplýsingum frá
Tómasi J. Gestssyni, aðstoð-
arframkvæmdastjóra Heimsferða,
tók flugstjórinn Peter Gantzholm
við flugvélinni í Halifax, þar sem
millilent var, og neitaði hann að
flytja hjónin til Íslands. „Flugstjór-
inn ber ábyrgð á fluginu og hann
vildi ekki hafa þennan mann í flug-
vélinni þannig að hann var skilinn
eftir,“ segir Tómas og tekur fram
að ítrekað hafi verið reynt að tala
um fyrir manninum, m.a. hafi kona
hans reynt að róa hann niður en þá
hafi maðurinn barið frá sér.
Tómas segir hjónin þurfa að bera
kostnaðinn vegna ólátanna, þ.á m.
af heimferðinni frá Halifax. Engir
eftirmálar verða þó af hálfu Heims-
ferða.
Flugdólgur
skilinn eftir
SJÖTTI frest-
urinn sem flug-
umferðarstjórum
hefur verið veitt-
ur til að ráða sig
hjá Flugstoðum
ohf., nýju op-
inberu hluta-
félagi sem tekur
til starfa um ára-
mótin, rennur út í
dag.
Í samtali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi sagði Loftur Jóhannsson,
formaður Félags flugumferðar-
stjóra (FÍF), stöðuna óbreytta. Að-
spurður sagðist hann þannig ekki
vita til þess að neinn þeirra 60 flug-
umferðarstjóra, sem fyrir helgi
höfðu enn ekki skrifað undir ráðn-
ingarsamning, hefði skipt um skoð-
un og ráðið sig yfir helgina.
Enginn enn
ráðið sig
Loftur
Jóhannsson
TVÆR unglingsstúlkur voru færð-
ar í fangageymslur lögreglunnar í
Keflavík aðfaranótt sunnudags eft-
ir að hafa keyrt bifreið á stein-
hleðsluvegg við skemmtistað í
Grindavík.
Stúlkurnar, sem eru sextán og
sautján ára, eru grunaðar um að
hafa tekið bifreiðina ófrjálsri hendi
auk þess sem önnur þeirra er grun-
uð um akstur undir áhrifum áfeng-
is. Þær voru yfirheyrðar í gærdag,
játuðu verknaðinn og var sleppt í
kjölfarið.
Viðskotaillir miðbæjargestir
Fangageymslur lögreglunnar í
Reykjavík voru fullsetnar á sunnu-
dagsmorgun. Í flestum tilvikum
taldi lögregla nauðsynlegt að leyfa
mönnum að sofa úr sér áfengisvím-
una og að sögn lögreglu hefðu flest-
ir sloppið með tiltal ef þeir hefðu
ekki verið jafnviðskotaillir og raun
bar vitni.
Unglingsstúlk-
ur stálu bifreið
JARÐSKJÁLFTI sem mældist 3
stig á Richter samkvæmt sjálf-
virkum mælum Veðurstofu Íslands
varð um 41,5 km vestnorðvestur af
Grímsey upp úr klukkan sjö í gær-
morgun.
Nokkrir smærri skjálftar mæld-
ust hjá Veðurstofunni á svipuðum
slóðum, bæði fyrir og eftir klukkan
sjö, en þeir voru flestir í kringum
2,3 á Richter. Fyrir helgi var hrina
smáskjálfta á svipuðum slóðum en
þó nær Norðurlandi. Mældust þá
tveir skjálftar kringum 3 stig á
Richter.
Skjálftahrina
við Grímsey
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
GRUNUR leikur á að kveikt hafi
verið í loðnubræðslu Ísfélagsins í
Vestmannaeyjum á laugardags-
kvöld, samkvæmt upplýsingum frá
lögreglu. Ummerki á vettvangi
benda til þess að eldur hafi kviknað
á tveimur eða jafnvel þremur stöð-
um auk þess sem kveikt var í hús-
næði um eitt hundrað metrum frá
verksmiðjunni á sama tíma. Nokkuð
tjón varð af völdum brunans en það
er staðbundið og mun ekki hafa
áhrif á starfsemi Ísfélagsins.
Slökkviliði Vestmannaeyja var til-
kynnt um eldsvoðann um kl. 19.45
og eftir um tvær klukkustundir hafði
eldurinn verið slökktur. Við slökkvi-
starfið var m.a. notast við Lóðsinn
sem er með öflugan dælubúnað og
gekk starfið hratt og vel. Eldsvoðinn
var í gamalli yfirbyggðri þró sem Ís-
félagið notar sem geymslu. Áhersla
var lögð á að vernda sjálft verk-
smiðjuhúsið og var aldrei hætta á
því að eldurinn myndi breiðast út.
Rýmdu svæði og lokuðu götum
„Vegna hættu á eiturgufum var
ákveðið að rýma nokkuð stórt svæði
í kringum verksmiðjuna, götum í
kring var lokað en ekki kom til þess
að rýma hús,“ segir Tryggvi Kr.
Ólafsson rannsóknarlögreglumaður,
en töluvert magn af ediksýru var í
húsnæðinu. Óskað var aðstoðar eit-
urefnadeildar slökkviliðs höfuðborg-
arsvæðisins vegna sýrunnar og voru
átta menn fluttir til Eyja með stærri
þyrlum Landhelgisgæslunnar, en
einnig nokkur hundruð kíló af kalki
sem notað er til að vinna á móti sýr-
unni. Um tvö tonn af kalki voru þá
reiðubúin til sendingar á Selfossi en
ekki reyndist þörf fyrir það.
Eiturefnadeildin var komin á vett-
vang á milli klukkan tíu og ellefu og
þurfti m.a. að flytja ediksýru úr
skemmdum kerum yfir í heil, alls um
þrjú tonn. Bæjarbúum stafaði þó
ekki hætta af sýrunni, samkvæmt
upplýsingum frá slökkviliði, þar sem
vindátt var hagstæð og reykinn lagði
yfir hraunið en ekki bæinn.
Íkveikja í grennd á sama tíma
Talið er að kveikt hafi verið í en
merki eru um að eldurinn hafi
kviknað á fleiri stöðum en einum
inni. Auk þess var á sama tíma
kveikt í húsnæði sem er um hundrað
metrum frá Ísfélaginu. Maður sem
átti erindi í húsið slökkti eldinn með
slökkvitæki. „Það er möguleiki á að
þessi mál tengist, þetta kemur nátt-
úrlega upp á nákvæmlega sama
tíma,“ segir Tryggvi og bætir við að
einnig sé ekki langt síðan reynt var
að kveikja í kaffistofu Lifrarsam-
lagsins. Að svo stöddu telur hann
það mál þó ekki tengjast íkveikjun-
um á laugardag. Lítið var hægt að
rannsaka vettvang í gær þar sem
tryggja þarf að þakið hrynji ekki og
að sögn Tryggva er hugsanlegt að
rífa þurfi húsnæðið. Óskað hefur
verið eftir aðstoð tæknideildar lög-
reglunnar í Reykjavík og heldur
rannsókn áfram í dag.
Í desember árið 2000 varð Ísfélag-
ið fyrir milljarðatjóni þegar mikill
eldur geisaði í verksmiðjuhúsnæði
félagsins. Eftir ítarlega rannsókn
varð niðurstaðan sú að um íkveikju
hefði verið að ræða en málið var
aldrei upplýst.
Eldsvoði hjá Ísfélaginu
rannsakaður sem íkveikja
Nokkur tonn af ediksýru
voru í húsnæði Ísfélags-
ins sem brann á laug-
ardag. Rýma þurfti
svæðið í kring vegna
hættu á að eiturgufur
bærust út. Engan sakaði
í eldsvoðanum.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Slökkvistarf Allt tiltækt slökkvilið var kallað út þegar eldur kviknaði í húsnæði Ísfélagsins á laugardag. Greið-
lega gekk að ráða niðurlögum eldsins og mun starfsemi félagsins ekki raskast en tjón varð eingöngu í geymslu.
„ÞAÐ hrísluðust um mig óþægilegar minningar frá því fyrir sex árum,“
segir Hörður Óskarsson, fjármálastjóri Ísfélagsins, sem var einn af fyrstu
mönnum á vettvang. „Það róaði mig þó að sjá að eldurinn var í þessari
geymsluþró og ekki í sjálfu verksmiðjuhúsinu.“
Í desember árið 2000 varð Ísfélagið fyrir milljarðatjóni þegar kveikt var
í húsnæði þess. Hörður segir tjónið blessunarlega mun minna en það hlaupi
líklega á nokkrum milljónum. „Þær eru fjórar þrærnar og þakið á hinum
þremur slapp en ég vil ekki hugsa það til enda, hefði vindur staðið á sjálfa
verksmiðjuna,“ segir Hörður sem á eftir að skoða hversu miklar skemmdir
urðu, s.s. á dælubúnaði og öðru slíku sem var á svæðinu.
Ísfélagið varð einnig fyrir tjóni fyrr á þessu ári þegar kviknaði í upp-
sjávar- og vinnsluskipinu Guðmundi VE úti í Póllandi. Skipið er enn í við-
gerð og þurfti m.a. að endurbyggja það nær algjörlega fyrir framan brú.
Hörður segir að vonast sé til að skipið verði tilbúið í upphafi nýs árs en
ekki liggi fyrir hversu mikið fjárhagslegt tjón hafi hlotist af.
Óþægilegar minningar
FARÞEGI hlaut minniháttar meiðsl
þegar jeppi valt við Fossá í Hvalfirði
um ellefuleytið í gær, samkvæmt
upplýsingum lögreglunnar.
Að sögn lögreglunnar mátti litlu
muna að illa færi og bíllinn hafnaði
ofan í gljúfri. Hált var á þessum slóð-
um í gær.
Þá greinir lögreglan ennfremur
frá því að bíll hafi oltið á Höfðabakka
í Reykjavík um hálf eitt í gær. Öku-
maður var einn á ferð og kenndi sér
lítilsháttar eymsla eftir veltuna en
ætlaði sjálfur að leita læknis. Bíllinn
var óökufær. Talið er að hálka kunni
að hafa valdið óhappinu, líkt og í
Hvalfirði.
Umferð á höfuðborgarsvæðinu
var þung í gær, enda jólaundirbún-
ingur og innkaup í hámarki.
Hafnaði nálægt gljúfri