Lesbók Morgunblaðsins - 14.04.2007, Side 1
Laugardagur 14. 4. 2007
81. árg.
lesbók
CANNES NÁLGAST
KVIKMYNDAHEIMURINN BÍÐUR MEÐ ÖNDINA
Í HÁLSINUM EFTIR VEISLUNNI MIKLU >> 6
Ef það á að fara að spila eitthvað nauið hér þá er ég farinn » 4-5
É
g hef nú starfað í
hinu og þessu í
gegnum dagana,
borið út póst í
nokkur ár og verið í ræst-
ingum í Reykjavík og bjó
þar í fjölda ára. Síðan hef
ég þvælst hingað vestur og
verið hérna ráðskona á
búinu í 22 ár, sem er nú
orðið ansi lítið og vesælt.
En ef við erum að tala um
veður, þá hefur það nú
snert mig afskaplega mik-
ið, líklega einna mest þeg-
ar maður var að bera út
póst því að þá vaknaði
maður upp við það á hverj-
um morgni að maður þurfti
að fara út í það veður sem
var. Það komu á þessum
árum bara 1 eða 2 dagar –
árin voru 4 – sem við fórum
ekki út og eitt af því var það
sem kallað var þakskaga-
V
E
Ð
R
IÐ
V
IT
N
A
R
U
M
Þ
IG
3
Skáldsagan Skíðaferðin eftir Emm-anuel Carrère fjallar um lítinndreng, Nicolas, sem í fyrstu virðistplagaður af ástæðulausum ótta.
Hann hefur gríðarlega fjörugt ímyndunarafl
og sögur um fólk sem rænir börnum og líf-
færum úr mönnum gera hann varann um sig.
Hann virðist hafa fyrirvara á öllum sem hann
umgengst, jafnvel föður sínum sem virðist þó
vilja ofvernda hann. Í skíðaferðalagi með
skólanum sínum taka hugarórar Nicolasar
hins vegar á sig raunverulega mynd þegar
dreng er rænt í nágrenninu. Fyrstu viðbrögð
Nicolasar eru að breiða yfir óttann sem sækir
nú að honum meira en nokkru sinni en smám-
saman áttar hann sig á því að ógnin sem hann
hafði borið innan í sér allan tímann var raun-
veruleg.
Þessi stutta skáldsaga,
sem er nú komin út í ís-
lenskri þýðingu Sigurðar
Pálssonar, er satt að segja
mögnuð lesning. Carrère
hefur ógnarlegt vald á frá-
sögninni sem leiðir hið
sanna í ljós smátt og
smátt. Kvíðinn liggur und-
ir niðri í textanum, oft án
þess að hann sé beinlínis orðaður.
Margir muna sjálfsagt eftir skáldsögunni
Óvininum eftir Carrère sem kom út fyrir
tveimur árum í þýðingu Sigurðar. Þar var
sagt frá manni sem hafði lifað í blekkingu
nánast allt sitt líf, þóst vera læknir og tekist
að blekkja fjölskyldu sína og vini í áratugi.
Hér er annars konar blekking til umfjöllunar.
Það kemur nefnilega í ljós að undirrót ógn-
arinnar er ekki síst sjálfsblekking fjölskyldu
Nicolasar.
Skíðaferðin er ein af sex bókum sem JPV
gefur út um þessar mundir í kilju. Þetta eru
allt þýddar skáldsögur og frumútgefnar í
kilju en áður hefur kiljuútgáfa nánast ein-
göngu verið bundin við áður útgefnar inn-
bundnar bækur. Að sögn útgefanda er þetta
tilraun til þess að bregðast við umkvörtunum
um að útgáfa nýrra bóka einskorðist um of
við jólin. Vonandi tekst tilraunin.
Mögnuð lesning
MENNINGARVITINN
Þröstur Helgason
Eftir Þröst Helgason
vitinn.blog.is
Morgunblaðið/KGA
Kurt Vonnegut „Hver sá sem gluggaði í bók eftir Vonnegut hefur misst góðan vin,“ segir Jónas Knútsson í grein
um Vonnegut í Lesbók í dag. Myndin var tekinn af skáldinu á Bókmenntahátíð í Reykjavík árið 1987. » 11