Lesbók Morgunblaðsins - 14.04.2007, Page 6
6 LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
lesbók
Eftir Björn Þór Vilhjálmsson
vilhjalmsson@wisc.edu
Breski leikstjórinn JulianTemple er að senda frá sér
nýja heimildarmynd, Joe Strum-
mer: The Future
is Unwritten, en
eins og nafnið
gefur til kynna
fjallar hún um
söngvara pönk-
sveitarinnar The
Clash en Strum-
mer lést árið
2002. Þetta er
ekki fyrsta verk
Temples sem
tengist pönkinu. Á áttunda ára-
tugnum þegar Temple var í kvik-
myndaskóla umgekkst hann hljóm-
sveitina Sex Pistols og eru margar
fyrstu hljómleikaupptökur sem til
eru af henni teknar af Temple.
Samstarfið við Sex Pistols og Mal-
colm McLaren leiddi svo til þess að
Temple gerði tónlistarmyndina ein-
kennilegu The Great Rock ‘n’ Roll
Swindle. Síðan þá hefur hann gert
fjölda tónlistarmyndbanda (nú síð-
ast fyrir Babyshambles), leiknar
kvikmyndir á borð við Absolute
Beginners og Pandaemonium en
árið 2000 sneri hann sér aftur að
Sex Pistols með heimildarmyndinni
The Filth and the Fury. Síðasta
mynd leikstjórans var Glastonbury,
heimildarmynd um samnefnda
rokkhátíð. Myndin um Strummer
hefur orðið til yfir langan tíma en
leikstjórinn fylgdi The Clash eftir
um hálfs árs skeið árið 1977 og
elstu hlutar nýju myndarinnar eiga
rætur að rekja til þess tímabils. Á
tíunda áratugnum urðu Temple og
Strummer nágrannar í Somerset
og þá þróaðist sá vinskapur sem
óbeint leiddi til heimildarmynd-
arinnar sem að sumu leyti er óður
til söngvarans.
Kvikmyndahátíðin South by So-uthwest (SXSW) í Austin í
Texas þykir ein af þeim svalari í
Bandaríkjunum
og hefur getið
sér gott orð fyrir
að einbeita sér
að óháðum og
óvenjulegum
myndum. Tvær
heimildarmyndir
sem frumsýndar
voru á hátíðinni
fyrir skemmstu
hafa vakið
nokkra athygli. Manufacturing Dis-
sent fjallar um aðferðafræði sjálfr-
ar kvikmyndategundarinnar en
leikstjórar hennar, hjónin Debbie
Melnyk og Rick Caine, beina sjón-
um sínum að Michael Moore með
afar gagnrýnum hætti. Myndin
þykir nokkuð frábrugðin þeim
myndum sem áður hafa verið gerð-
ar um hinn umdeilda Moore, en
þær hafa einkennst af fjandskap
frekar en vönduðum vinnubrögð-
um, en leikstjórarnir fylgdu honum
eftir á fyrirlestraröð sem hann fór
um bandaríska háskóla árið 2004
en hafa einnig lagst í umtalsverða
rannsóknarvinnu um feril hans í
heild.
Hin heimildarmyndin sem vaktiathygli er The King of Kong
en hún segir frá keppinautunum
Billy Mitchell og
Steve Wiebe en
báðir eru miklir
áhugamenn um
tölvuleiki og
haldnir þrá-
hyggju um hinn
klassíska leik
Donkey Kong.
Mitchell setti
heimsmet í leikn-
um árið 1982 en
það hefur staðið síðan, eða allt þar
til Wiebe, sem nýlega hafði misst
vinnunna, keypti Kong-spilakassa
og sló met Mitchells. Í hönd fer
frásögn um samsæri og meting
sem þykir sýna fram á að stundum
er sannleikurinn enn skrítnari en
skáldskapur.
KVIKMYNDIR
Julian Temple
Donkey Kong
Michael Moore
Eftir Björn Norðfjörð
bn@mbl.is
Þær glöddu margan bókmennta- og tón-listaráhugamanninn virðisaukaskatt-slækkanirnar á dögunum. Sérstaklegaþó tónlistarfólk sem fékk það nú við-
urkennt að tónlist væri alveg jafnmikil list og
blessaðar bókmenntirnar og skyldi því bera sama
skatt. Kvikmyndaunnandanum í mér þótti það þó
afar miður að kvikmyndalistin skyldi ekki fá sama
hljómgrunn hjá ríkinu og má hún sitja uppi með
það súra epli að bera ekki aðeins 24,5% virð-
isaukaskatt heldur oftar en ekki 10% toll (til að
sleppa við þennan toll verður að sýna fram á að
mynddiskur sé framleiddur innan Evrópska efna-
hagssvæðisins). Eru þetta verndartollar, kann
einhver að spyrja sig. Hvað skyldi verið að
vernda? Íslenska bændur fyrir ágengri amerískri
lágkúru – spyr sá sem ekki veit.
Í fljótu bragði dettur mér lítið annað í hug en að
þetta endurspegli gamaldags fordóma gagnvart
kvikmyndamiðlinum. Enginn skattur af leik-
húsmiða – list – en 24,5 prósent af bíómiða – lág-
kúra. Ætli það þyki ekki rétt að James Joyce og
Ludwig van Beethoven beri 7% skatt en Steven
Spielberg 24,5%? Það þarf þó ekki mikinn snilling
til að sjá hversu hriplek þessi aðgreining ólíkra
miðla er, svo samanburðinum sé snúið á hvolf:
Ingmar Bergman ber 24,5% skatt á meðan Brit-
ney Spears og Stephen King sleppa með 7%. Nú
mun án efa einhver saka mig um fordóma gagn-
vart Britney og afþreyingarmenningu almennt,
en tilgangur þessa samanburðar er einmitt að
sýna fram á hversu fjarstæðukenndir þessir
flokkadrættir eru.
Tökum hér eilítið dæmi um einstakling sem
kaupir frá Ameríku fyrst þúsund króna bók, þá
þúsund króna CD-hljómdisk og lok þúsund króna
DVD-mynddisk.
Bók – fyrsta flokks list
1.000x1,07 vsk. = 1.070 kr.
Geisladiskur – annars flokks list
1.000x1,1 tollur x 1,07 vsk. = 1.177 kr.
DVD-diskur – þriðja flokks list
1.000x1,1 tollur x 1,245 vsk. = 1.369 kr. og
fimmtíu aurar.
Álögur ríkisins af kvikmyndinni eru yfir fimm
sinnum hærri en af bókinni. Panti einstaklingur
sjálfur vöruna erlendis frá bætist svo ofan á þetta
tollmeðferðargjald (skattur/tollur í dulargervi?)
hjá Íslandspósti upp á 450 kall og skiptir þá lækk-
un virðisaukans litlu þegar um lágar fjárhæðir er
að ræða. Fyrir þúsund króna bók greiðir ein-
staklingur 70 kall í virðisaukaskatt en 450 kall í
tollmeðferðargjald! Af kvikmynd sem kostar
1.000 kall í Ameríku rukkar ríkið þegar allt er tal-
ið 819 kall og 50 aura!
Þá eru nú mörk þessara miðla ekki jafn skýr og
þau kunna að virðast við fyrstu sýn. DVD-
mynddiskar er snúa að tónlist bera t.a.m. 24,5%
skatt, jafnvel þótt um sé að ræða upptökur af tón-
leikum eða tónlistarmyndbönd. Hvernig er hægt
að réttlæta að dægurlög beri hærri skatt ef mynd
fylgir laginu? Og hvað með söngva- og dans-
amyndir þar sem tónlistin er alls ráðandi? Og
hvað með kvikmyndir gerðar eftir mikilsvirtum
bókmenntaverkum? Það þekkist líka að bók og
mynd séu gefin út saman. Þá eru góð ráð dýr.
Kannski eru þetta orðnar eintómar hártoganir en
það er auðvelt að afgreiða þær í eitt skipti fyrir öll
með því að breyta bíóskattinum í 7%. Vinsamleg-
ast afnemið tollmeðferðargjaldið í leiðinni. Takk
fyrir.
Þriðja flokks list
SJÓNARHORN »Ætli það þyki ekki rétt að James Joyce og Ludwig van Beethoven
beri 7% skatt en Steven Spielberg 24,5%? Það þarf þó ekki mikinn
snilling til að sjá hversu hriplek þessi aðgreining ólíkra miðla er, svo
samanburðinum sé snúið á hvolf: Ingmar Bergman ber 24,5% skatt á
meðan Britney Spears og Stephen King sleppa með 7%.
Eftir Sæbjörn Valdimarsson
saebjorn@heimsnet.i
K
vikmyndahátíðin í borginni Can-
nes í Suður-Frakklandi er mark-
viss punktur í bíóumhverfinu og
oftar en ekki einn af aðal-
viðburðum ársins. Hátíðin, með
öllum sínum fjölda frumsýninga,
frægra gesta og kaupahéðna úr flestum heims-
hornum, kemur talsverðu róti á hugi bíófíklanna.
Hún vekur umræður um forvitnileg verk og
áhugaverða listamenn sem setja mark sitt á
veisluhöldin og kvikmyndaárið. Cannes-hátíðin er
að auki haldin á unaðslegasta tíma ársins, um
miðjan maí þegar vorið hefur sigrað veturinn og
sumarið bíður á næstu grösum með sín fögru fyr-
irheit.
Í ár verður setningardagurinn 16. maí og lín-
urnar eru farnar að skýrast hvað snertir gesti og
verk á hátíðinni, sem jafnframt heldur upp á sex-
tugsafmælið. Heiðursgesturinn verður Martin
Scorsese, nýbakaður Óskarsverðaunahafi fyrir
The Departed og einn virtasti kvikmyndagerð-
armaður samtímans, sem óþarft er að kynna fyrir
lesendum.
Scorsese er enginn nýgræðingur á þessum slóð-
um, rösklega þrír áratugir eru liðnir síðan hann
stóð uppi með hin eftirsóttu aðalverðlaun hátíð-
arinnar, Gullpálmann, fyrir Taxi Driver, árið 1976.
Þá var hann formaður dómnefndar árið 1998. Auk
þess að vera heiðursgestur (sá fyrsti í sögu hátíð-
arinnar og engar áætlanir á lofti um að gera slíkt
að venju), mun leikstjórinn gegna veigamiklum
hlutverkum; taka þátt í fyrirlestraröð ásamt
starfsbræðrum sínum, Sidney Pollack, Nani Mo-
retti og Oliver Stone; afhenda Camera d’Or-
verðlaunin sem veitt eru fyrir besta byrjendaverk
ársins og ýta úr vör stofnun sem á að annast varð-
veislu sígildra, alþjóðlegra kvikmyndaverka
(World Cinema Foundation). Það málefni hefur
legið þungt á herðum Scorseses og áratugir liðnir
síðan hann benti á lítið og lélegt geymsluþol kvik-
myndafilmunnar.
Sem fyrr segir skiptist veislan í Cannes í gróf-
um dráttum í tvennt; annars vegar er hún ein
merkasta kvikmyndahátíð heims þar sem keppt er
um margvísleg verðlaun í nokkrum flokkum og
hins vegar veigamikil markaðssýning með fjöl-
mennri þátttöku framleiðenda og kvikmyndahúsa-
eigenda.
Á 6. þúsund kvikmyndir koma til álita í keppn-
irnar í ár, þannig að niðurskurðurinn er risavax-
inn. Íslendingar hafa ekki sótt gull í greipar þeirra
sem stjórna sigtinu, en þess má geta að Wild at
Heart (’90), mynd framleidd af Sigurjóni Sighvats-
syni, vann Gullpálmann fyrir bestu leikstjórn
(David Lynch). Allnokkrar, íslenskar myndir eru
komnar í hendur valnefndarinnar, þ.á m. For-
eldrar eftir Ragnar Bragason, en álits hennar er
ekki að vænta fyrr en undir mánaðamótin apríl-
maí.
Á meðal spennandi verka sem búið er að sam-
þykkja og verða frumsýnd á Cannes í næsta mán-
uði er bandaríska heimildarmyndin U2 3D, eftir
leikstjórana Catherine Owens og Mark Pellington.
Hún fjallar um heimsreisu Vertigo, þar sem þessi
goðsagnakennda hljómsveit kom víða við. Í þessu
sambandi má nefna að Scorsese kemur með 20
mínútur af efni úr hálfkláraðri heimildarmynd
sinni um The Rolling Stones, aðra ofurrisa í popp-
heiminum.
Kvikmyndaheimurinn bíður með öndina í háls-
inum eftir því hvort Coen-bræður nái að rétta úr
kútnum með No Country for Old Men, með
Tommy Lee Jones, Woody Harrelson, Brolin-
feðgum og fleirum. Glæpamyndin We Own the
Night mun birtast í fyrsta sinn á tjaldinu og fjallar
um baráttu föður (Robert Duvall) við að bjarga
sonum sínum (Mark Wahlberg og Joaquin Phoe-
nix) úr klóm rússnesku mafíunnar í New York.
Höfundur og leikstjóri er James Grey, sem fjallaði
um hliðstætt efni í Little Odessa fyrir fáeinum ár-
um.
Fleiri myndir verða ákveðnar á næstu vikum og
meðal þeirra sem talið er að sleppi í gegnum sigtið
er hin hádramatíska Cassandra’s Dream eftir
Woody Allen, með Ewan McGregor, Tom Wilk-
inson, Colin Farrell og Sally Hawkins. Enginn
Bandaríkjamaður og Manhattan bregður ekki
einu sinni fyrir. Öðru vísi mér áður brá, getur leik-
stjórinn hugsað, sem lengst af var ófáanlegur til að
fara tommu út fyrir borgarmörk New York.
Þekktir leikarar eru ekki sjáanlegir í Paranoid
Park, nýjustu mynd Gus Van Sant, sem fjallar um
unglinga, flækta í morðmál. Þessi merki leikstjóri
hefur verið í frjálsu falli frá því hann apaði eftir
meistara Hitchcock (Psycho ’98) og forvitnilegt að
sjá hvernig ofantöldum þremenningum reiðir af í
ár.
Ekki verður síður athyglisvert að sjá City of
Men eftir Paulo Morelli, framhald hinnar ógleym-
anlega andstyggilegu City of God/Cidade de Deus,
gerð af Fernando Meirelles 2002, sem hefur að
þessu sinni hlutverkaskipti við Morelli. Todd Hay-
nes, sem gerði hina umtöluðu þjóðfélagsádeilu Far
From Heaven (’02), mætir til leiks með I’m Not
There, stílfærða mynd um lífshlaup Bobs Dylan.
Hann er túlkaður af nokkrum leikurum, með
Heath Ledger í fararbroddi og Cate Blanchett og
Julianne Moore leika konurnar í lífi söngvarans.
Eftir Micahel Winterbottom, leikstjóra jafn
ólíkra verka og The Road to Guantanamo, 9 Songs
og Welcome to Sarajevo , svo eitthvað sé nefnt,
verður forsýnd Murder in Samarkand. Höfund-
urinn heldur áfram að hleypa út illkynjuðum vess-
um heimssálarinnar, að þessu sinni ber hann niður
í Úsbekistan, þar sem almenn mannréttindi eru
léttvæg fundin.
Það hefur sannarlega gustað af fyrri verkum
Julians Schnabel; Before Night Falls (00) og Bas-
quiat (’96) og fátt bendir til þess að meðalmennska
einkenni Le Scaphandre et le papillon. Hún fjallar
um Jean-Dominique Bauby, hinn franska ritstjóra
tískublaðsins Elle, sem lamaðist gjörsamlega fyrir
nokkrum árum utan þess að halda sjón á öðru
auga. Með það eitt að vopni gat Bauby tjáð ævi-
sögu sína og einstaka lífsreynslu.
Það verður af nógu að taka á Cannes, m.a. er
álitið að Asíuþjóðir komi feyki sterkar til leiks.
Vafalaust eiga fleiri en ein og fleiri en tvær
óþekktar myndir eftir að koma, sjá og sigra. Von-
andi verður einhver þeirra íslenskrar ættar.
Sumarið kemur með Cannes
KVIKMYNDAHÁTÍÐIN í Cannes er einn af há-
punktum kvikmyndaársins. Hún hefst 16. maí
næstkomandi og er von á mikilli veislu. Hér er
minnst á nokkrar þeirra mynda og manna sem
mesta óþreyju vekja.
Scorsese „Heiðursgesturinn verður Martin Scorsese, nýbakaður Óskarsverðaunahafi fyrir The Dep-
arted og einn virtasti kvikmyndagerðarmaður samtímans, sem óþarft er að kynna fyrir lesendum.“