Lesbók Morgunblaðsins - 01.09.2007, Blaðsíða 1
Camilla Läckberg er vinsælasti spennusagnahöfundur Sví-
þjóðar. Væntanlegar eru tvær sjónvarpsþáttaraðir byggðar á
fyrstu bókunum hennar, Ísprinsessunni og Prédikaranum,
sem þýddar hafa verið á íslensku. „Ég skrifa nákvæmlega
eins og mér þykir skemmtilegast,“ segir hún í samtali. 3
Stjarna sænskra krimma
Laugardagur 1. 9. 2007
81. árg.
lesbók
LANDFYLLINGAR
Á AÐ NOTA LANDFYLLINGAR VIÐ SUÐURSTRÖND REYKJA-
VÍKUR TIL ÞESS AÐ AUKA BYGGINGARLAND? » 8
Skítugir, heimskir og hættulegir, andstæða hinnar sívinnandi íslensku þjóðar » 2
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Einar Falur „Í ljósmyndunum mætast mínar persónulegu minningar og veruleikinn eins og hann er í raun og veru,“ segir Ein-
ar Falur Ingólfsson sem opnaði í gær sýningu í Listasafni Reykjanesbæjar á ljósmyndum af æskuslóðum sínum, Keflavík. » 4
Eftir Þröst Helgason
vitinn.blog.is
Á eigin vegum eftir Kristínu Steinsdóttur var ánvafa ein af áhugaverðari skáldsögum sem komuút um síðustu jól. Hún er nú komin út í kilju hjáVöku-Helgafelli.
Sagan segir frá Sigþrúði sem er ekkja og vinnur fyrir
sér með því að bera út Morgunblaðið. Hún hefur ekki
mikla peninga á milli handanna en er út-
sjónarsöm við að létta sér lífið, sækir
jarðarfarir í gríð og erg þar sem hún
syngur sálmana af innlifun og fær sér
síðan kaffi og kökur með syrgjendum í
erfidrykkjunni. Hún fær sér líka kaffi í
bönkunum á morgnana og sætir lagi þeg-
ar fasteignasölurnar auglýsa opið hús en
við þau tækifæri er einmitt oft og tíðum
boðið upp á kaffi og með því.
En einstæðingsskapur og auðnuleysi
Sigþrúðar á sér dýpri rætur. Hún missti móður sína við
fæðingu og föður sinn hefur hún aldrei þekkt. Hún var alin
upp af ljósmóður sinni sem dó frá henni þegar Sigþrúður
var á unglingsaldri. Hún hefur því löngum þurft að standa
á eigin fótum. Að auki er hún með vanskapaða hönd sem
hefur sett mark sitt á allt hennar líf og sjálfsmynd sem er
skert. Samskipti við annað fólk hafa alltaf verið hálfgert
víti. Hún hefur upplifað sig á skjön við samfélagið.
Sjónarhorn sögunnar á samtímann er afhjúpandi. Kristín
býður upp á túlkunarmöguleika sem eru mjög gagnrýnir
en sagan er jafnframt glæsilega stíluð og mikill skemmti-
lestur.
Á skjön
MENNINGARVITINN