Morgunblaðið - 22.03.2007, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 22.03.2007, Blaðsíða 50
Ég var brjálaður yfir þessu öllu! Almenningur hefur verið blekktur … 55 » reykjavíkreykjavík Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is VESTUR-ÍSLENSKI geimfarinn Bjarni Tryggvason, breski tónlistarmaðurinn Howie B og íslenski myndlistarmaðurinn Húbert Nói Jó- hannesson koma allir við sögu á nýrri plötu, Mu- sic for astronauts and cosmonauts, sem kom út í Austurríki fyrir stuttu. „Þessi samvinna hófst þegar Howie var staddur hér á landi fyrir um það bil tíu árum. Hann heyrði tónlist sem ég hafði gert og vildi í kjölfarið gera einhverja músík með mér, sem var auðvitað svolítil upphefð fyrir mig,“ segir Húbert, sem hefur lengi fengist við tónlist samhliða myndlistinni. „Um þessar mundir var Bjarni Tryggvason að fara út í geim og það var mikið af viðtölum við hann í blöðunum og í út- varpi. Þar var hann meðal annars að greina frá tímasetningum í geimferðum, til dæmis hvað það tæki langan tíma að fara frá jörðinni út að spor- baug, og hversu langur dagurinn væri í geimn- um,“ segir Húbert sem heillaðist af þessum geim- ferðum. „Mér reiknaðist til að einn sólarhringur í geimnum, það sem við upplifum á 24 tímum, upp- lifa geimfarar á 90 mínútum. Þeir fara sem sagt einn hring í kringum jörðina á þeim tíma. Ég fékk þá hugmynd að setja tónverk inn í þennan ramma, og stakk þessu að Howie sem var mjög hrifinn.“ Stolið í Japan Vinnsla plötunnar tók langan tíma, eða um fjög- ur ár, en þeim lauk svo í Gróðurhúsi Valgeirs Sig- urðssonar árið 2002. Þótt platan sé fyrst að koma út nú segir Húbert hana þegar hafa vakið athygli. „Henni var til dæmis stolið í Japan. Þeir gerðu DVD þar sem þeir klipptu myndefni við tónlistina. Þetta var mjög vel gert, einhverjar geimmyndir og svona, en þeir náðu samt ekki alveg tímasetn- ingum. Þeir stálu þessu reyndar ekki meira en svo að þeir gátu okkar sem höfunda, og ég tek nú ofan fyrir því,“ segir Húbert sem náði sér í eintak, en fólk á vegum Howie B stöðvaði síðar dreifingu á umræddu efni. Howie B er virtur tónlistarmaður og upp- tökustjóri sem unnið hefur með listamönnum á borð við Björk, U2 og Tricky. Húbert segir sam- starfið við hann hafa verið gott. „Hann er ótrúlega þægilegur maður, mjög skemmtilegur, hug- myndaríkur og glaðvær,“ segir Húbert, og bætir við að möguleiki sé á frekara samstarfi þeirra á milli. „Við vorum í útgáfupartíi í Vín í síðustu viku. Þar var drengur sem Howie kynntist í brúð- kaupi hjá The Edge, gítarleikara U2. Sá drengur var mjög hrifinn af þessu og klippti myndefni frá NASA saman við,“ segir Húbert, en líkur eru á að tónlistin muni því koma út á DVD. „Við vildum reyndar líka vera með rússneskt myndefni en það er bara svo dýrt.“ Platan kemur út í Bandaríkjunum í vor, en óvíst er með útgáfu hér á landi. Húbert bendir áhugasömum hins vegar á að einhver eintök eru til í 12 tónum við Skólavörðustíg. Morgunblaðið/Einar Falur Listamaður Húbert heillaðist af geimferðum Bjarna Tryggvasonar fyrir áratug síðan og samdi um þær tónlist. Tónlist fyrir geimfara Fjölhæfur Howie B. Geimfarinn Bjarni Tryggvason. ur var í hljómsveitinni Quarashi. Silvía Nótt frumflutti fyrsta smáskífulagið af væntanlegri plötu í janúar á þessu ári. Lagið, „Thank u Baby“ situr nú í 13. sæti Lagalistans og á dögunum fóru fram tökur á myndbandi við lagið í Mexíkó. Leikstjórar myndbandsins eru þeir Gaukur Úlfarsson og Börkur Sigþórsson. Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins kemur sápuóper- uformið mikið við sögu í nýja myndbandinu og var það ekki síst þess vegna sem Mexíkó varð fyrir valinu. FYRSTA hljómplata Silvíu Nætur kemur út hinn 1. apríl næstkom- andi. Platan hefur verið í smíðum í þónokkurn tíma en eins og fram kom í Morgunblaðinu fyrir stuttu, gerði söngkonan þriggja platna samning við Reykjavík Records sem kvað vera stærsti samningur sem íslenskur tónlistarmaður hef- ur gert við útgáfufyrirtæki hér á landi. Fjölmargir þungavigtarmenn koma við sögu á nýju plötunni en þar ber helst að nefna Warren Ry- ker sem hefur unnið með stjörnum á borð við Beyoncé og Michael Jackson og Sölva Blöndal sem áð- Morgunblaðið/Brynjar Gauti Þarf tvo til Gaukur Úlfarsson leik- stýrir nýju myndbandi Silvíu Nætur ásamt Berki Sigþórssyni. Morgunblaðið/Eggert Silvía Nótt Fór til Mexíkó til að taka upp myndband við „Thank u Baby“. Nýtt myndband með Silvíu Nótt ÞAÐ þykir nú varla stórfrétt lengur þegar Yoko Ono bregð- ur sér hingað til lands en þó dvaldi Ono á klakanum um síðustu helgi í þrjár nætur. Það fór ekki mikið fyrir listakonunni sem var hér í þeim tilgangi að huga að list- arverki sem mun rísa í Viðey en þar hyggst Ono reka niður friðarsúluna IMAGINE PEACE TOWER í minn- ingu eiginmanns síns, John Lennon. Vinnan við súluna gengur vel eftir því sem fregnir herma og allt útlit fyrir að verkið verði hið mynd- arlegasta fullklárað. Hugmyndina um súluna fékk Ono fyrir um 40 árum en súlan mun í raun vera bjartur ljósgeisli sem teygir sig upp í himinhvolfið. Orkuveita Reykjavíkur greiðir kostnað vegna friðarsúlunnar sem mun nema um 15 milljónum króna. Yoko kemur og fer Í NÝJASTA tölu- blaði Séð og heyrt er því hald- ið fram að Sveinn Rúnar Sigurðs- son, höfundur Evróvisjón- framlags Íslend- inga í ár, hafi fengið Peter Fenner til að semja enskan texta við lagið þrátt fyrir að munnlegt samkomulag við Kristján Hreinsson, höfund ís- lenska textans, lægi fyrir. Segir blaðið að Kristján kunni Sveini að vonum litlar þakkir fyrir enda hafi hann þegar verið búinn að semja enskan texta undir heitinu „To be or not to be“. Þegar Morgunblaðið leitaði til Kristjáns í gærkvöldi vildi hann hvorki játa né neita fullyrðingum Séð og heyrt. „Ég vil láta hafa það eitt eftir mér að ég vil ekki láta hafa neitt eftir mér,“ sagði Krist- ján, rímandi eins og skálda er von. Kristján Hreinsson vill hvorki játa né neita Kristján Hreinsson Yoko Ono
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.