Morgunblaðið - 27.04.2007, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 27.04.2007, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björnsson, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Guðmund Sverri Þór sverrirth@mbl.is STÓREFLA þarf Fjármálaeftirlitið (FME) eigi það að ráða við hina miklu þenslu sem nú ríkir í fjármálageiran- um og ekki síst þá þenslu sem fram- undan er. Þetta kom fram í ræðu Bjarna Ármannssonar, formanns Samtaka fjármálafyrirtækja, á aðal- fundi samtakanna sem fram fór í gær. Hann sagði íslenskan fjármála- markað ungan og að markaðsaðilar væru í óða önn að skapa hefðir og festa í sessi reglur um samskipti sín í milli, jafnt skrifaðar sem óskrifaðar, reglur sem skipta miklu fyrir mark- aðinn til frambúðar. „Á þessu skeiði ráða samskipti stjórnvalda og fyrir- tækja afar miklu um það hversu far- sællega tekst til. Okkur er mikil þörf á öflugu Fjármálaeftirliti sem ræður vel við sífellt stærra og alþjóðlegra verkefni. Ég hika ekki við að halda því fram að það þurfi að stórefla Fjár- málaeftirlitið,“ sagði Bjarni. Verkefnin framundan eru að sögn Bjarna m.a. að innleiðing á alþjóðleg- um reglugerðum auk þess sem umsvif alþjóðlegra fyrirtækja með höfuð- stöðvar á Íslandi eigi eftir að marg- faldast. „Fjármálaeftirlitið þarf ein- faldlega að eiga möguleika á að fylgja þessari þróun eftir og hafa glöggt yf- irlit um hana til þess að geta gegnt sínu hlutverki og átt samstarf við fjár- málaeftirlit í öðrum löndum á jafn- réttisgrundvelli,“ sagði Bjarni einnig. Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra tekur undir þessi sjónarmið Bjarna og segir þau eðlileg í fjármálakerfi sem er í jafn hraðri þróun og það ís- lenska. Hann segir viðskiptaráðu- neytið margsinnis hafa gert tillögur um það að auka umfang Fjármálaeft- irlitsins og fagnar því að markaðsað- ilar skuli vera sama sinnis. „Við mun- um halda áfram að vinna að þessu enda er það nauðsynlegt þegar fjár- málamarkaðurinn er að mótast og í svo örum vexti,“ segir Jón og bætir því við að málið sé á dagskrá í kosn- ingabaráttunni. Hann segir að til þess að efla megi FME þurfi að auka sam- starf við erlenda aðila og bæta við mannafla þess og aðstöðu. Bjarni Ármannsson telur að efla þurfi Fjármálaeftirlitið  Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra tekur undir sjónarmið Bjarna Í HNOTSKURN » Fjármálamarkaðurinnvex og þróast ört og því þarf að mæta að mati Bjarna Ármannssonar. » Viðskiptaráðuneytið hef-ur oft gert tillögur um efl- ingu FME. » Bæta þarf við mannaflaFME sem og aðstöðu þess. Morgunblaðið/Golli Forstjórinn Bjarni Ármannsson. JÓNÍNA Bjart- marz umhverfis- ráðherra telur að í Kastljósþætti Sjón- varpsins í gær- kvöld hafi verið hallað réttu máli þegar því var hald- ið fram að þrír allsherjarnefndar- menn sem fóru yfir umsókn s-amer- ískrar konu um ríkisborgararétt hafi ekki viljað tjá sig um málið eða segja frá því af hverju ákveðið var að veita konunni ríkisborgararétt. Í samtali við mbl.is sagði Jónína að sér væri kunnugt um að nefndarmennirnir, sem fóru yfir umsóknirnar, hefðu lát- ið þess getið að þeim hefði verið ókunnugt um tengsl Jónínu og kon- unnar, sem er tengdadóttir Jónínu og með lögheimili á heimili hennar. Jónína kvaðst telja að í Kastljósi hefði verið reynt að gera málið tor- tryggilegt með því að taka fram að Útlendingastofnun hefði lagst gegn veitingu ríkisborgararéttar í þessu máli. Svo hefði ekki verið. Óvitandi um tengsl Jónína Bjartmarz MORGUNBLAÐINU barst í gærkvöldi eftirfarandi frétta- tilkynning frá Ólafsfelli ehf.: Ólafsfell ehf., félag í eigu Björgólfs Guðmundssonar, keypti í dag FSV Media ehf., sem var í jafnri eigu Straums-Burðaráss Fjárfest- ingabanka hf., Útgáfufélags- ins Valtýs ehf. og Forsíðu ehf. Eina eign FSV Media er 8,8% hlutur í útgáfufélaginu Árvakri hf. sem gefur út Morgunblaðið og Blaðið. Kaupverð félagsins er trún- aðarmál. Eftir viðskiptin á Ólafsfell 16,8% í Árvakri. Aðrir eigendur eru Útgáfu- félagið Valtýr ehf., MGM ehf., Forsíða ehf., Garðar Gíslason ehf., Björn Hall- grímsson ehf. og Erna ehf. Ólafsfell eykur hlut sinn í Árvakri VILHJÁLMUR Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri efndi til móttöku í Höfða í gær vegna árang- urs Reykjavíkurliðanna KR og ÍR í karla- körfuknattleik að undanförnu en það fyrr- nefnda er Íslandsmeistari 2007 í íþróttinni og hið síðarnefnda bikarmeistari. Fá Reykjavík- urlið sem ná þessum árangri slíkar móttökur af hálfu borgarstjóra og peningaupphæð sem viðurkenningu. Vilhjálmur segir fleiri íþróttalið úr borginni eiga eftir að fá sínar viðurkenningar frá borg- inni vegna árangurs, Íslandsmeistarar Vals í karlahandbolta, Íslandsmeistarar Þróttar í kvennablaki og Skautafélag Reykjavíkur. „Það er mikið að gera og borgaryfirvöld eru stolt af þessu frækna íþróttafólki okkar,“ segir hann. Svo skemmtilega vildi til að borg- arstjóri átti 61 árs afmæli og var honum kom- ið á óvart í Höfða. Segir hann eftirminnilegt að heyra afmælissönginn með digrum karla- röddum körfuboltamannanna sem margir hverjir eru um og yfir tveir metrar á hæð. „Líklega hefur meðalhæðin í Höfða aldrei ver- ið meiri,“ segir Vilhjálmur. „Maður skynjar hæð þeirra ekki svo glatt þegar maður horfir á þá í keppni en það sama verður ekki sagt þegar maður stendur nálægt þeim. En söng- urinn kom mér á óvart, þetta voru sterkar raddir og greinilega góðir söngmenn þarna á ferð og mér þótti vænt um þetta.“ Körfuboltamenn sungu fyrir borgarstjóra Morgunblaðið/Sverrir HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt karl- mann á sextugsaldri, Jón Pétursson, í 5 ára fangelsi fyrir þrjár líkams- árásir á fyrrverandi sambúðarkonu sína og húsbrot. Hann var jafnframt sakfelldur fyrir frelsissviptingu og kynferðisbrot gagnvart fyrrverandi unnustu sinni. Jón var dæmdur til að greiða annarri konunni 1,2 milljónir og hinni 800 þúsund krónur í bætur. Brotin, sem Jón var nú dæmdur fyr- ir voru framin sumarið 2005 og í febrúar 2006. Í forsendum héraðs- dóms, sem Hæstiréttur staðfesti, kemur fram að brotin gegn konunum hafi verið sérlega hrottafengin og árásirnar verið algerlega tilefnis- lausar. Maðurinn hefði misnotað að- stöðu sína gegn konunum og þær hefðu verið honum háðar, þó einkum önnur þeirra. Hann hefði nýtt sér það gróflega hversu hún var honum háð, að vandamenn hennar voru er- lendis og hún sjálf ótalandi á ís- lensku. Árásir mannsins gegn kon- unni þóttu sérstaklega svívirðilegar þar sem þær voru liður í því að kúga hana og undiroka. Var Jón sakfelld- ur af ákæru fyrir að hafa slegið hana margoft víðsvegar um líkamann og sparkað í hana á heimili þeirra sum- arið 2005. Ofbeldi Jóns gegn seinni konunni var langvinnt en hann hélt henni nauðugri í íbúð sinni svo klukku- stundum skipti og nauðgaði henni í þrígang. Sannað þótti að hann hefði ráðist á konuna, rifið í hár hennar, slegið andliti hennar í gólfið og dreg- ið hana á hárinu inn í svefnherbergi þar sem hann barði hana ítrekað í höfuðið, sparkaði í hana, reif úr föt- um og nauðgaði. Í næstu hrinu dró hann konuna aftur inn í svefnher- bergi og nauðgaði. Með dómi sínum staðfesti Hæsti- réttur dóm Héraðsdóms Reykjavík- ur frá 11. október 2006. Málið dæmdu hæstaréttardómararnir Gunnlaugur Claessen, Árni Kol- beinsson, Garðar Gíslason og Mark- ús Sigurbjörnsson og Haraldur Hen- rysson, fyrrverandi hæstaréttar- dómari. Verjandi var Hilmar Ingimundarson hrl. og sækjandi Sig- ríður Elsa Kjartansdóttir, saksókn- ari hjá ríkissaksóknara. 5 ára fangelsi fyrir nauðganir og árásir Sérlega hrottafengin brot af hálfu ákærða gegn konunum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.