Morgunblaðið - 27.04.2007, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 27.04.2007, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2007 19 MENNING Í BAKSAL Gallerís Foldar er sýn- ing á 22 akvarellum sem Daði Guð- björnsson hefur unnið undir hug- hrifum af íslenskri náttúru. Er landslagið exótískt og víðs fjarri því að vera veðurbarið íslenskt umhverfi þar sem listamaðurinn lætur ímyndunaraflið ráða ferðinni og gefur landslaginu ávöl form sem vísa misbeint til kvenlík- amans. Að auki leynast kunn- uglegar táknmyndir í landslaginu, s.s. pensill og valentínusarhjarta, sem hafa fylgt verkum Daða gegn- um tíðina og standa fyrir einhverja klisjurómantík listamannsins. Þá eru krúsidúllurnar á sínum stað, ýmist í forgrunni eða bakgrunni og skapalón sem listamaðurinn notar sér til hjálpar minna á blúndu- dúka, útsaum eða veggfóður og undirstrika skrautgirni lista- mannsins. Bjartir og léttir litir ýta svo undir suðræna stemningu. Það er auðvelt að hrífast af tild- urslegum akvarellum Daða en á annan veg geta þær verið frá- hrindandi í sínum yfirgengilega sætleika. Þessi tvístígandi dans dregur myndirnar þó ekki niður, þvert á móti gefur hann þeim spennandi óvissu um landamæri listar og stáss, fegurðar og skrauts, enda ljóst að listamann- inum er full alvara með glettni og glysgirni sinni og nýtir sér yf- irgengilegan sætleikann líkt og lit- ríkt og lokkandi nammi. Og auðvit- að getur manni svo orðið bumbult á að gleypa of mikil sætindi í einu þótt skynfærin kunni vel að njóta fyrstu áhrifanna. Bláfjall og lágheiði Íslensk nátt- úra í exótískri túlkun Daða Guð- björnssonar. Litrík sætindi Jón B.K. Ransu MYNDLIST Gallerí Fold Opið daglega frá 10–18, laugardaga 11– 17 og sunnudaga 14–17. Sýningu lýkur 29. apríl. Aðgangur ókeypis. Daði Guðbjörnsson KATRÍN Elvarsdóttir rær á mið hins ófyrirséða á sýningunni „Sporlaust“ á Veggnum í Þjóð- minjasafni Íslands. Það gerir hún ekki aðeins í dularfullu viðfangs- efni, sem er innblásið af ævintýr- inu um Hans og Grétu, heldur einnig með því að nota myndavél sem bjagar myndefnið. Slík stíl- brögð hafa sést í fyrri verkum hennar og hér er það „frumstæð Holga-plastmyndavél“ sem setur dulúðugan svip á myndirnar. Myndirnar sýna krakka sem virðast fylgja stíg eða slóða í skógi. Sjónarhorn Katrínar er í nokkurri hæð; það er líkt og horft sé „niður“ og á sumum myndanna á eftir börnunum. Holga- myndavélin býr til skugga í jöðr- um myndanna, líkt og skógurinn með börnunum sé að hverfa inn í myrkur. Séu myndirnar skoðaðar frá vinstri til hægri er líkt og dimmi í myndunum smám saman og ekki er það til að draga úr þeim óhugnaði sem undir býr. Hver er það sem fylgist með börn- unum? Á sýningunni er unnið skemmti- lega með samband myndavélar og sjónar. Lögð er áhersla á vélræna eiginleika myndavélarinnar – þeir eru snar þáttur í mótun skynj- unarinnar, ekki síður en sjón- arhorn ljósmyndarans. Margt býr í skóginum LJÓSMYNDIR Þjóðminjasafn Íslands – Veggur Til 29. apríl. Opið kl. 11–17 þri.–su. Að- gangur 600 kr. Eldri borgarar, öryrkjar, námsmenn og hópar (10+): 300 kr. Ókeypis á miðv. og fyrir yngri en 18 ára. Sporlaust/Katrín Elvarsdóttir Anna Jóa Samband Unnið er skemmtilega með samband myndavélar og sjónar. BLANDAÐIR söngkvartettar, hvað þá sextettar, eru ekki á hverju strái. Enda afspyrnukrefjandi grein ef gagnast á fleiri hlustendum en vin- um og kunningjum, og löngu áður en gæðin nálgast heimskunnar grúppur á við The King’s Singers og Man- hattan Transfer. Það er því segin sorgarsaga að fæstir sönghópar end- ast lengur en 2–3 ár. En alltaf vonar maður hið bezta. Og vissulega var margt vænlegt að heyra á samsöng Vox Fox í Iðnó á fimmtudag, jafnvel þótt eldheitar undirtektir áheyrenda, á svipuðu reki og söngfólkið eða á þrítugsaldri, bentu til að meirihlutinn væri harð- ur kjarni áhangenda frá fyrri fram- komum á veitingastöðum. Til þess benti einnig óformleg framkoma VF með kynningum af fingrum fram, sem gat verið sjarmerandi en þyrfti samt að slípa til fyrir kröfuharðari hlustun. Einnig stundum groddaleg- ur hljóðnemasöngurinn, er bar þess merki að þurfa að skera gegnum fjölmennisklið en átti varla heima á tónleikapalli. Verkefnavalið var af léttara tagi (stytt sveifluútgáfa af kunnu Bour- rée Bachs var eina klassíska und- antekningin), s.s. Bítlalög, doo wop og yngri popplög úr m.a. útsetn- ingum TKS og MH. Hljómaði margt býsna hreint og samtaka, þótt rusta- leg „úm-pa-pa“ valsútgáfan af Nótt í Vaglaskógi Jónasar Jónassonar væri sízt til bóta. Nýr söngsextett Ríkarður Ö. Pálsson TÓNLIST Iðnó Lög eftir m.a. Bítlana, Billy Joel, Bobby McFerrin, ABBA, Beach Boys og Magnús Eiríksson. Vox Fox (Þórdís Sævarsdóttir, Vigdís Garðarsdóttir, Lilja Dögg Gunn- arsdóttir, Gunnar Thorarensen, Hreiðar Ingi Þorsteinsson og Sverrir Örn Hlöð- versson). Fimmtudaginn 19. apríl kl. 20. Kórtónleikar  Morgunblaðið/Árni Sæberg
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.