Morgunblaðið - 12.10.2007, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 12.10.2007, Blaðsíða 1
föstudagur 12. 10. 2007 íþróttir mbl.isíþróttir Logi Ólafsson á að blása byr í segl KR liðsins næstu þrjú árin >> 2 FRAM Í EFSTA SÆTIÐ MARKVÖRÐURINN BJÖRGVIN PÁLL GÚSTAVSSON VAR VIÐ ÆFINGAR HJÁ GROSSWALLSTADT Í VIKUNNI >> 4 Eftir Ívar Benediktsson iben@mbl.is Hjá þeim hefur Logi verið í rann- sóknum síðustu daga vegna þrálátra meiðsla í vinstra hné sem plagað hafa landsliðsmanninn síðan í sumar og nær haldið honum frá æfingum og keppni síðan í ágúst. Logi segir alveg ljóst að læknar þeir sem hann hefur verið undir um- sjón hjá síðustu mánuði hafi ekki metið meiðsli hans rétt og því hafi öll meðhöndlun verið röng. „Ég fékk höggbylgjur á hnéð og hef fengið allt að fimmtán sprautur. Þar af leiðandi varð töf á bata. Þeir voru að skjóta á mýflugur með haglabyssu í stað þess að gefa mér tíma til þess að jafna mig í rólegheitum með sjúkraþjálfun sem virðist vera lausnin á þessu, eft- ir því sem talið er,“ segir Logi. Logi segir að læknar Lemgo í Þýskalandi hafi ákveðið að senda hann til Brynjólfs og Sveinbjörns til greiningar enda hafi þeir fengið upplýsingar um að þeir félagar hafi m.a. læknað Eið Smára Guðjohnsen af sambærilegum hnémeiðslum í sumar. „Ég veit það árdegis á morgun [í dag] hvert framhaldið verður, hvort ég þurfi að fara út til Þýskalands í sjúkraþjálfun eða verði áfram hér heima hjá Stefáni Stefánssyni sjúkraþjálfara, sem er frábær fag- maður. Það líka gott að kúpla sig frá stressinu í Þýskalandi, það er erfitt að vera meiddur þar og vera undir mikill pressu um að ná bata. Læknar ytra eru undir miklu álagi frá fé- lögum sem þeir vinna hjá þannig að ég mæli með því fyrir alla atvinnu- menn í íþróttum sem meiðast að koma heim og fá skoðun hjá læknum hér á landi,“ segir Logi ennfremur. „Þessi niðurstaða sem ég fékk í dag er enginn heimsendir, öðru nær. Ég er fyrst og fremst ánægður með að fá greiningu og geta þar með far- ið að vinna að bata. Ég er staðráðinn í því að ná bata sem fyrst og sýna mig og sanna með íslenska landslið- inu á Evrópumeistaramótinu í hand- knattleik í Noregi janúar. Ég ætla að vera rosalegur á EM,“ segir Logi Geirsson, landsliðsmaður í hand- knattleik. Logi úr leik í fjórar til sex vikur til viðbótar Ætlar að ná bata og verða „rosalegur“ með landsliðinu á EM í Noregi „FYRSTU niðurstöður af rannsóknum íslensku læknanna benda til þess að ég verði að taka mér hvíld frá æfingum en vera í sjúkraþjálfun og meðferð í fjórar til sex vikur. Að þeim tíma liðnum er reiknað með að ég hafi jafnað mig. Endanleg niðurstaða liggur fyrir í fyrramálið [í dag] en ég á ekki von á að hún verði á annan veg,“ sagði Logi Geirsson, landsliðsmaður í handknattleik og leikmaður þýska liðsins Lemgo, um miðjan dag í gær þegar hann var að ganga af fundi læknanna Svein- björns Brandssonar og Brynjólfs Jónssonar. Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson seth@mbl.is „Við lékum eins og lagt var upp með fyrstu 80 mínúturnar. Varnarleikurinn var þéttur og við náðum að skora rétt undir lok fyrri hálfleiks eftir hraðaupphlaup eins og við lögðum upp með. Það var því grát- legt að missa þetta niður á síðustu 10 mínútum leiksins.“ Birgit Prinz jafnaði á 80. mínútu og Petra Wimbersky bætti síðan við tveimur mörkum undir lokin. „Við urðum fyrir áfalli í leiknum þegar Katrín Jónsdóttir meiddist á ökkla. Hún lék gríðarlega vel í varnarvinnunni á mið- svæðinu en hún gat ekki meira eftir að þær jöfnuðu og Katrín fór því útaf. Eftir það áttum við í vandræðum og við feng- um á okkur mörkin þegar okkur tókst ekki að hreinsa almennilega frá marki. Guðbjörg Gunnarsdóttir átti stórleik í markinu hjá okkur og mörkin sem þær skoruðu gegn okkur voru með þeim hætti að Guðbjörg átti varla möguleika á að verja þau skot.“ Elísabet var að horfa á leik Wezemaal frá Belgíu og Everton frá Englandi þegar Morgunblaðið ræddi við hana en næsti leikur er gegn Wezemaal á laugardags- kvöldið. Lokaleikur liðsins er gegn Ever- ton á þriðjudaginn. Tvö efstu liðin úr þessum riðli komast áfram í 8-liða úrslit keppninnar. „Þetta verður gríðarlega erfitt. Belgíska liðið er að koma mér á óvart. Þær eru sterkari en ég átti von á. Við þurfum því að halda okkar striki til þess að ná okkar markmiðum.“ Elísabet á ekki von á því að Katrín verði með í fleiri leikjum í riðlakeppninni. „Hún er reyndar læknir og ætti að vita hvernig best er að meðhöndla þessi meiðsli. Hún gæti alveg eins tekið upp á því að mæta til leiks í næsta leik.“ Katrín meiddist í slagnum gegn Frankfurt „VIÐ vorum búnar að undirbúa okkur í þrjár vikur fyrir leikinn og það kom ekkert annað en sigur til greina. Ég er svekkt að við skyldum ekki ná að sigra Frankfurt,“ sagði Elísabet Gunn- arsdóttir þjálfari Íslandsmeistaraliðs Vals eftir 3:1-tap liðsins í gær gegn þýsku meisturunum Frankfurt í 16-liða úrslitum Evrópukeppninnar. Valur á tvo leiki eftir í riðlinum, á laugardag og þriðjudag í næstu viku. Katrín Jónsdóttir Morgunblaðið/Golli Ballið byrjað Íslandsmótið í körfuknattleik karla, Iceland Express-deildin, er hafið. KR hóf titilvörnina með góðum sigri á Fjölni þar sem Joshua Helm, leikmaður KR, lét mikið að sér kveða. Njarðvík sýndi styrk sinn gegn Snæfelli og nýliðarnir frá Akureyri og Sauðárkróki fögnuðu sigri. »2-3

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.