Morgunblaðið - 09.12.2007, Page 8

Morgunblaðið - 09.12.2007, Page 8
8 SUNNUDAGUR 9. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Þér getið verið alveg afslappaðar við jólainnkaupin, frú, hann er jafnvel geymdur hér og í „Guantanamo“. VEÐUR Athyglisvert er að fylgjast meðþingmönnum Samfylkingar- innar, með viðskiptaráðherra í broddi fylkingar, ganga fram í fjöl- miðlum með ESB- stjörnur í aug- unum, eins og að- ild sé handan við hornið. Fyrir ör- fáum mánuðum stóðu þeir að stefnuyfirlýsingu ríkisstjórn- arinnar, þar sem segir: „Samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið (EES) hefur reynst þjóðinni vel og hann er ein af grunn- stoðum öflugs efnahagslífs þjóð- arinnar.“ Ekki virðist trúin á þessi orð meiri en að Samfylkingin er þeg- ar farin að banka á dyrnar hjá ESB.     Umræðustjórnmálin felast m.a. íþví að tala niður krónuna, að Ís- lendingar þurfi að taka upp evru og til þess þurfi að ganga í ESB. Þing- maðurinn Árni Páll Árnason varar í Viðskiptablaðinu við hægfara upp- töku evru, sem „grefur undan efna- hagslegum stöðugleika og dregur enn úr virkni peningamálastefnu Seðlabankans“. Valið stendur að mati Árna Páls um upptöku evru eða „úrsögn úr EES og afturhvarf til endurupptöku gjaldeyrishafta og skömmtunar fjármagns“.     Björn Bjarnason svarar spurning-unni í Þjóðmálum sem Árni Páll sniðgengur og segir Íslendinga vel geta tekið upp evru án þess að ger- ast aðilar að ESB. El Salvador hafi t.d. ákveðið einhliða að gera dollar að gjaldmiðli landsins. Og vilji menn kasta krónunni megi eins skoða aðra kosti, s.s. sterlingspund, norska krónu eða kanadískan dollar.     Hvað sem evru líður er EES-samningurinn hinsvegar enn mikilvægur Íslendingum, að mati Björns. Enda ljóst, eins og löngu er fram komið, að með aðild að ESB yrði aðeins tímaspursmál hvenær Ís- lendingar misstu yfirráð yfir fiski- miðunum. Og vilja Íslendingar það? STAKSTEINAR Árni Páll Árnason Með ESB-stjörnur í augunum SIGMUND                            ! " #$    %&'  ( )                    * (! +  ,- . / 0     + -                             !  "  "   !  "  "    # 12       1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (               %  #      :  3'45;4 ;*<5= >? *@./?<5= >? ,5A0@).?   &"  "    $" &"           "                              *$BCD                                  ! " #       $   *! $$ B *!   '!( )   (      #%* # <2  <!  <2  <!  <2  ')  +,- . #/   -                   E  F8  F87  %  $     #     $ &# '(   ) $  *  + "  6  2  )          $  $  #,(       , ,-   #&   ) ! "  B  - .  ,(    , -        $     # /  '  (   #0         $## 11#  01 ! #22 # % ! 3 #  %# +, 4 "    " $" Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Birkir Jón Jónsson | 7. desember Kosið á næsta ári? OECD, Standard og Poors, Seðlabankinn, fjármálafyrirtæki, aðilar vinnumarkaðarins og við framsóknarmenn höfum varað eindregið við þess- ari vinsældapólitík rík- isstjórnarinnar. Þess vegna höfum við framsóknarmenn ekki lagt til gríðarleg útgjöld í fjárlagaumræðunni (sem er yf- irleitt fallið til vinsælda um stund- arsakir). Það er ólíkt öðrum stjórn- málaflokkum á Alþingi sem keppast við að yfirbjóða hver annan […]. Getur það verið að ríkisstjórnarflokkarnir sjái fram á kosningar á næsta ári? Meira: birkir.blog.is Marinó G. Njálsson | 7. desember Upp og niður Umhverfisvísitala þýsku umhverfis- samtakanna German- watch fyrir árið 2008 hefur verið kynnt í Bali. Þar er Ísland í 3. sæti og hefur hækkað sig einhver ósköp á milli ára, úr 14. sæti í fyrra. Sé farið tvö ár aftur í tímann, þá kemur í ljós að Ísland hefur fallið um tvö sæti. Sam- anburður á milli ára virðist ekki mögulegur, því það er eins og gögn um Ísland hafi breyst mjög mikið á tímabilinu. Meira en svo að þeim sé hreinlega hægt að treysta. Meira: marinogn.blog.is Sigurður Þorsteinsson | 8. desember Vont fyrir umræðuna Jóhannes í Bónus telur að hann njóti ekki jafn- ræðis í Morgunblaðinu og Björn Bjarnason hjá DV. Án þess að hafa skoðað málið ítarlega virðist mér báðir hafa talsvert til síns máls. Slíkt er fyrst og fremst vont fyrir lýðræðislega um- ræðu. Sem betur fer skaðast fjölmiðl- arnir á óvönduðum vinnubrögðum. Al- menningur beinir viðskiptunum frá þeim fjölmiðlum a.m.k. í einhverjum mæli og pistlahöfundar vilja margir að greinar þeirra birtist í vönduðum fjöl- miðlum […] Meira: ziggi.blog.is Ómar Ragnarsson | 8. desember „Second to none“ Ofantalin þrjú orð eru í miklu dálæti hjá Banda- ríkjamönnum þegar hernaðarmáttur er ann- ars vegar og dugði vel í kalda stríðinu. Þegar menn önduðu léttara við fall Sovétríkjana og veikingu Rúss- lands vildi hinn mikli kjarnorkuhern- aðarmáttur landsins gleymast, en hann gefur landinu sérstöðu miðað við önnur öflug ríki eins og Japan og Kína. Gallinn við stefnu í varnarmálum öfl- ugra ríkja er sú kenning sem menn treysta sér ekki til að hafna, að ein- hliða varnarviðbúnaður nægi ekki nema til staðar sé líka geta til sóknar. Líklega er besta dæmi hern- aðarsögunnar um þetta einhliða varn- arviðbúnaður Frakka og Breta við upp- haf seinni heimsstyrjaldarinnar. Engin áætlun var til hjá þeim um sókn inn í Þýskaland og vesturveldin höfðu ekki þorað að framleiða stórar sprengju- flugvélar vegna þess að þær yrðu tald- ar sóknarógnun. Fyrir bragðið gátu Þjóðverjar ósköp rólegir sent nær helming herafla síns í innrásina í Pólland og lungann úr bryn- sveitum sínum (panzer), skrið- drekasveitum. Þeir luku leiðangrinum á methraða og voru síðan komnir til baka með heraflann til vest- urlandamæranna á methraða eftir ný- lögðum hraðbrautum. Ráðamenn í austustu ríkjum NATÓ telja líklega ekki nægja að hafa þar hreinan varnarbúnað til að tryggja sig gegn huganlegri ásælni Rússa heldur þrýsta á sóknarbúnað í formi eld- flauga. Rússar telja sig á sama hátt ekki getað látið sem ekkert sé og aðeins treyst á varnarbúnað sinn heldur grípa þeir að sjálfsögðu til kjarnorkumáttar síns, eflingar sóknareldflauga og hefð- bundins herafla í Evrópu. Afleiðingin getur varla orðið nema ein: Vígbúnaðarkapphlaup, enn eina ferðina. Það var dásamlegt að mannkynið slapp við gereyðingarstríð þegar kalda stríðið stóð sem hæst. Gallinn við það er bara sá að úr því að mannkynið slapp í það sinn fara menn að treysta því sem gefnum hlut að vígbún- aðarkapphlaup geti ekki endað í slíku stríði. En lögmál Murphys lætur ekki að sér hæða. Ef eitthvað getur farið úrskeiðis mun það fyrr eða síðar ger- ast. Meira: omarragnarsson.blog.is BLOG.IS Smáralind • Sími 528 8800 • www.drangey.is STÓRAR STÆRÐIR Ítalskar mokkasínur Margar gerðir - frá kr. 9.800 M b l 9 45 70 0 FRÉTTIR DÓMSTÓLL í Suður-Afríku hefur dæmt Willie Theron, þrítugan Suð- ur-Afríkubúa, fyrir morðið á Gísla Þorkelssyni í Boksburg árið 2005. Staðfesting þess efnis barst utanrík- isráðuneytinu fyrir helgi og í fréttum Stöðvar 2 á föstudag kom fram að Theron hefði hlotið ævilangt fang- elsi. Á síðasta ári var Desereé Ober- holzer dæmd í 20 ára fangelsi fyrir aðild að morðinu. Yfirréttur í Jó- hannesarborg komst svo að þeirri niðurstöðu fyrir mánuði að Theron hefði myrt Gísla til fjár. Hann sýknaði hins veg- ar þrjá aðra sak- borninga af ákæru um aðild að morðinu, þar á meðal eiginkonu Therons. Lík Gísla fannst í júlí 2005 í ruslatunnu í garði Therons. Tunnan hafði verið fyllt af steypu. Gísli Þorkelsson Í ævilangt fangelsi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.