Morgunblaðið - 19.04.2008, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 19.04.2008, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 106. TBL. 96. ÁRG. LAUGARDAGUR 19. APRÍL 2008 LANDSPRENT EHF. mbl.is LÍFIÐ Í BEIRÚT CARAMEL ER UM FÓLK, GLEÐI ÞESS OG SORGIR, GÓÐ HVÍLD FRÁ HOLLYWOOD >> 57 FRÉTTASKÝRING Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is EFTIR aðeins tólf daga hætta 98 hjúkrun- arfræðingar á svæfinga-, gjörgæslu- og skurð- stofusviði Landspítala störfum, taki stjórnendur ekki til baka ákvörðun um að breyta vinnufyrir- komulagi þeirra. Verði af brotthvarfi hjúkrunar- fræðinganna, sem allir eru sérhæfðir á sínu sviði, verður unnið samkvæmt neyðaráætlun og aðeins framkvæmdar bráðaaðgerðir. Á skurðdeild kvennasviðs verða t.d. gerðir neyðarkeisaraskurðir en ekki kvensjúk- dómaaðgerðir, s.s. vegna brjóstakrabba- meins. Þá verður engar hjartaaðgerðir hægt að gera við þær aðstæður sem koma til með að skapast. Og hjúkrunarfræðingarnir standa fast á sínu: Þeir munu ganga út þegar klukkan slær tólf á miðnætti 1. maí taki stjórn spítalans ekki breytingu á vinnutíma þeirra til baka. Uppsagnarfrestur ekki framlengdur Yfirstjórn LSH tók fyrir nokkru þá ákvörðun að framlengja ekki um þrjá mánuði uppsagnarfrest hjúkrunarfræðinganna þótt hún hafi heimildir til slíks. Sú ákvörðun stendur, þrátt fyrir að ekkert þokist í sam- komulagsátt. „Ég er ekki bjartsýn á að deil- an leysist,“ segir deildarstjóri og undir þau orð taka hjúkrunarfræðingarnir. Í gær fóru fram fyrstu einstaklingsviðtölin við hjúkrunarfræðingana og í þeim lögðu yf- irmenn samkvæmt heimildum Morgunblaðs- ins fram tilboð sem felur í sér að breytingar á vinnufyrirkomulagi, sem deilan snýst um, verði teknar upp í þremur áföngum og að fullu komnar til framkvæmda að ári. Þá fái þeir 9.000 kr. í fastan bílastyrk á mánuði í sinn hlut – sem er tæplega uppbót þar sem þegar er slíkur styrkur, aðeins lægri, fyrir hendi. Hjúkrunarfræðingar sem Morgun- blaðið ræddi við í gær segja tilboðið „hlægi- legt“ og „veimiltítulegt“ og að því verði hik- laust svarað með neitun. Var það einróma niðurstaða fundar allra hjúkrunarfræðing- anna í gær. „Það er verið að berja okkur til hlýðni,“ segir Vigdís Árnadóttir skurðhjúkrunar- fræðingur. | 12 „Verið að berja okkur til hlýðni“ „Hlægilegu“ tilboði stjórnenda hafnað „DRAUMURINN minn er að eiga tískufyr- irtæki þegar ég verð fullorðin,“ segir Perla Steingrímsdóttir, nemandi í Víðistaðaskóla í Hafnarfirði. Þó að Perla sé aðeins 10 ára hefur hún í nokkur ár unnið markvisst að því að láta draum sinn rætast. Hún hefur haft brennandi áhuga á fötum frá því hún man eftir sér og fimm ára lærði hún að prjóna hjá ömmu sinni. Ekkert lát var á framleiðslu hennar á húf- um og treflum en um átta ára aldur krafðist hún þess að fá saumvél heimilisins til afnota sem hún vissi af í bílskúrnum. Hún lærði sjálf á vélina og hefur aldrei þurft hjálp í einu eða neinu og nú flæða þær fram flík- urnar sem hún hannar, sníður og saumar, ýmist á sjálfa sig, systur sína eða vinkonur. Sumir leita til hennar með eigin óskir um ákveðnar flíkur og hún er ekki lengi að finna lausnir. Henni fannst bráðvanta námskeið fyrir framkvæmdaglaðar og skapandi stelpur og gekk því sjálf í málið og heldur slík nám- skeið heima hjá sér á hverjum föstudegi ásamt vinkonum sínum, þar sem ýmist er föndrað, saumað, bakað eða málað. Tísku- þáttur Daglegs lífs er tileinkaður þessum unga og kraftmikla hönnuði í dag. | 23 Morgunblaðið/RAX Lætur ekkert stoppa sig Tíu ára stúlka, sem hannar og saumar föt, ætlar að stofna fyrirtæki Á VEGUM ríkisstjórnarinnar, en þó sérstaklega Seðlabankans, hef- ur að undanförnu verið unnið baki brotnu að því að greiða úr þeim vanda sem hinar alþjóðlegu að- stæður hafa skapað fyrir íslenskt efnahagslíf. Þetta var meðal þess sem fram kom í ræðu sem Geir H. Haarde forsætisráðherra flutti á aðalfundi Samtaka atvinnulífsins í gær. Geir sagði að honum hefði á stundum fundist að fjallað væri um stöðuna í efnahagsmálunum af nokkurri léttúð og jafnvel skiln- ingsleysi hér heima. „Þar á ég meðal annars við framgöngu ákveðinna stjórnmálamanna og fjölmiðla og staðhæfingar um að ekkert sé verið að gera, eins og það heitir,“ sagði Geir. „Stundum er skapað óraunhæfar væntingar og þar með jafnvel haft neikvæð áhrif.“ Innganga í ESB lakari kostur Geir sagði að umræða um ein- hliða upptöku evru eða annars gjaldmiðils í stað krónunnar hefði verið til lykta leidd með afgerandi hætti á viðskiptaþingi Viðskipta- ráðs og í samtölum hans við nokkra af helstu forsvarsmönnum Evr- ópusambandsins í febrúar síðast- liðnum. „Við erum ein þróaðasta og ríkasta þjóð í heimi og slíkar þjóðir taka ekki einhliða upp mynt ann- arrar þjóðar.“ Sagði hann kostina vera þá tvo, að standa utan ESB eða ganga inn, sem að hans mati sé lakari, eins og hann hafi margoft bent á. | Miðopna ekki er hægt að flytja af þeim frétt- ir frá degi til dags. Mikil opinber umræða getur verið óheppileg, talað eins og stjórnvöld ráði yfir töfralausn- um sem ekki séu til annars staðar þegar vandinn er aft- ur á móti sá að alþjóðlegir vindar skekja okkar eigið hag- kerfi án þess að við höfum mikið um það að segja. Sannleikurinn er sá að á vegum ríkisstjórnarinnar, en þó sérstaklega Seðlabankans, hefur að undanförnu verið unnið baki brotnu að því að greiða úr þeim vanda sem hinar alþjóðlegu aðstæður hafa skapað. Slíkar að- gerðir eru þess eðlis að undirbún- ingur þeirra tekur langan tíma og Unnið að lausn vandans Forsætisráðherra segir að undirbúningur að lausn á vandanum í efnahagsmál- unum taki langan tíma en unnið sé baki brotnu, sérstaklega í Seðlabankanum Í HNOTSKURN »Þór Sigfússon, forstjóri Sjó-vár, var kosinn formaður Samtaka atvinnulífsins á aðal- fundi samtakanna í gær. »Þór segir að helstu verkefninfram undan hjá samtökunum séu að vinna að því að koma okk- ur út úr því umróti sem sé núna í efnahagslífinu. »Þór segist vera jákvæðurgagnvart auknu Evrópusam- starfi og upptöku evru. Það þurfi að skoða bæði kosti og galla. Geir H. Haarde Brák >> 56 Komdu í leikhús Leikhúsin í landinu
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.