Morgunblaðið - 09.05.2008, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 09.05.2008, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2008 3 býður áskrifendum á völlinn Fyrstu 50 áskrifendur fá 2 miða á leik Fylkis og Fram. Sækja þarf miðana í afgreiðslu Morgunblaðsins í Hádegismóum 2. Klippið út auglýsinguna og framvísið við afhendingu. Fylkisvelli 10. maí kl. 14:00 FYLKIR - FRAM FR A M FY LK IR Helgi Sig-urðsson, markahrókur úr Val, vonast til að geta verið með liði sínu í fyrsta leik liðsins í Landsbanka- deildinni á morg- un þegar Íslands- meistararnir fara til Keflavíkur. Helgi hefur frá vegna meiðsla síð- ustu vikurnar en hann segist vera á batavegi og að það styttist óðum í að hann verði tilbúinn í átökin.    Kári Árnason var í byrjunarliði AGF sem tapaði fyrir AaB, 3:1, í dönsku úrvalsdeildinni í knatt- spyrnu í gær. Kára var skipt útaf á lokamínútu leiksins en hann fékk að líta gula spjaldið í leiknum.    Sverrir Garðarsson og Hannes Þ. Sigurðsson léku báðir allan tímann fyrir Sundsvall sem tapaði fyrir Gefle, 2:0, í sænsku úrvalsdeildinni í gær. Ari Freyr Skúlason, þriðji Ís- lendingurin í liði Sundsvall, kom inná á 67. mínútu.    Eyjólfur Héðinsson lék síðasta stundarfjórðunginn með GAIS sem gerði 1:1 jafntefli við Malmö. Jóhann B. Guðmundsson sat allan tímann á bekknum hjá GAIS.    Garðar Gunnlaugsson og Gunnar Þór Gunnarsson voru fjarri góðu gamni í liði Norrköping vegna meiðsla í leik liðsins gegn AIK. Norrköping tapaði, 2:1, og situr á botni deildarinnar. Fólk sport@mbl.is NA Petrache úr Íslandsmeistaraliði rnunnar var útnefndur besti leikmað- n í umferðum 19-27 í N1 deild kvenna í dknattleik en valið á bestu leik- nnum á þessu tímabili var kunngert í . essir aðilar hlutu viðurkenningu: kvörður: stina Matuzeviciute, Fram umaður: la Nevarilova, Fram stra horn: ný Skúladóttir, Val stri skytta: a Petrache, Stjörnunni gra horn: veig Lára Kjærnested, Stjörnunni gri skytta: git Engl, Stjörnunni jumaður: Barna, Valur fari: lsteinn Reynir Eyjólfsson, Stjörnunni, Ragnar Hermannsson, Stjörnunni ta umgjörð: m ti leikmaður: a Petrache, Stjörnunni Mörg verðlaun til Hauka Hjá körlunum var Arnar Pétursson úr Haukum útnefndur besti leikmaðurinn í umferðum 22-28 í N1 deild karla en þessir þóttu skara fram úr: Markvörður: Egidijus Petkevicius, HK Línumaður: Arnar Pétursson, Haukum Vinstra horn: Freyr Brynjarsson, Haukum Vinstri skytta: Gunnar Berg Viktorsson, Haukum Hægra horn: Ragnar Hjaltested Ragnarsson, HK Hægri skytta: Rúnar Kárason, Fram Miðjumaður: Andri Stefan Guðrúnarson, Haukum Þjálfari: Aron Kristjánsson, Haukum Dómarapar: Anton Gylfi Pálsson og Hlynur Leifsson Besta umgjörð: Haukar Besti leikmaður: Arnar Pétursson, Haukum Alina og Arnar voru valin best Guðmund Hilmarsson mih@mbl.is AGAMENN hafa gert samning við ska markvörðinn Esben Madsen um að a með liðinu í sumar. Madsen er 26 ára mall, 1,94 metrar hæð og kemur til Ak- esinga frá danska 1. deildar liðinu AB sem hann hefur verið varamarkvörður Madsen hefur leikið 15 sinnu með að- i félagsins. onum er ætlað að fylla skarð Páls Gísla ssonar sem varð fyrir því óláni á dög- m að slíta krossband í hné og verður ekkert með í sumar en fyrir hjá ÍA eru r ungir og efnilegir markverðirTrausti urbjörnsson og Árni Snær Ólafsson ndanfarnar vikur hafa Skagamenn ð í markvarðarleit og voru til að mynda með Harald Björnsson, markvörð U-21 árs landsliðsins sem er á mála hjá skoska lið- inu Hearts, til reynslu en meiðsli í baki komu í veg fyrir að hann gengi í raðir þeirra. „Esben fékk gott tækifæri til að spila er- lendis og við vildum ekki standa í vegi fyrir honum að upplifa það,“ segir Ronny Saul, framkvæmdastjóri AB, á vef félagsins. Tveir danskir Það munu því líklega tveir Danir standa á milli stanganna á Akranesvelli í 1. um- ferð Landsbankadeildarinnar á morgun þegar Skagamenn taka á móti Breiðabliki en mark Kópavogsliðsins ver Casper Ja- cobsen en hann kom til liðsins á síðustu leiktíð eftir að Hjörvar Hafliðason heltist úr leik vegna meiðsla. Danskur markvörður ver mark Skagamanna í sumar Í fréttatilkynningu frá Skíðasam- bandi Íslands er haft eftir Dagnýju meðal annars: „Ég er sátt við að hafa tekið þessa ákvörðun þó að það séu mér mikil vonbrigði að geta ekki náð því markmiði, sem ég hafði sett mér, að keppa á Ólympíuleikunum í Van- couver í Kanada árið 2010. Það er ljóst að þau meiðsli sem ég hef átt við að stríða í vetur hafa nú sett verulegt strik í reikninginn. Á mínum ferli hef ég upplifað margt og haft tækifæri til þess að ferðast til fjölmargra landa vegna æfinga og keppni. Fyrir það er ég af- ar þakklát. Sá stuðningur sem ég hef fengið frá Skíðasambandinu, Akur- eyrarbæ, fjölmörgum fyrirtækjum, Afrekssjóði ÍSÍ, Skíðafélagi Akur- eyrar, sjúkraþjálfurum og læknum að ógleymdri fjölskyldu minni hefur verið mér ómetanlegur og án hans hefði ég ekki keppt á skíðunum í öll þessi ár. Ég var frá æfingum og keppni meira og minna í 20 mánuði á árunum 2004 og 2005 vegna hné- meiðsla og nú bætast við þessi meiðsli, sem hafa gert mér mjög erf- itt fyrir við æfingar og keppni í allan vetur. Að öllu samanlögðu taldi ég því rétt á þessum tímapunkti að láta hér staðar numið, þó svo að ég við- urkenni það fúslega að sú ákvörðun hafi verið mér erfið,“ segir Dagný Linda en hún er aðeins 28 ára gömul, á glæsilegan feril að baki.  Dagný hefur keppt á 316 alþjóð- legum mótum og hefur tekið þátt í tvennum Ólympíuleikum – í Salt Lake City í Bandaríkjunum og Tórínó á Ítalíu 2006.  Dagný keppti á þremur heims- meistaramótum – í St. Anton í Austurríki árið 2001, St. Moritz árið 2003 og Åre í Svíþjóð árið 2007.  Dagný keppti á 31 heimsbikar- móti og það fyrsta var í bruni í Lenzerheide í Sviss árið 2002.  Dagný hefur 18 sinnum orðið Ís- landsmeistari á skíðum, í fyrsta skipti árið 1997.  Dagný náði sínum besta árangri á stórmóti þegar hún varð í 23. sæti í bruni og risasvigi á Ólympíuleik- unum í Tórínó árið 2006 og í 19. sæti í samanlögðu bruni og svigi á HM í St. Moritz í Sviss árið 2003.  Dagný hefur sjö sinnum verið val- in skíðakona ársins og þrívegis hefur hún verið valin íþróttamað- ur Akureyrar. „Erfið en rétt ákvörðun“ Dagný Linda hætt vegna meiðsla DAGNÝ Linda Kristjánsdóttir, fremsta skíðakona Íslands um ára- bil, hefur ákveðið að leggja skíðin á hilluna og hætta æfingum og keppni. Dagný Linda hefur átt við þrálát meiðsli að stríða á hægri fót- legg og fyrir liggur að hún þurfi að gangast undir aðgerð og ekki er tryggt að sú aðgerð skili henni full- um bata. Eftir Guðmund Hilmarsson gummih@mbl.is Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson tt Dagný Linda Kristjánsdóttir tekur á móti hamingjuóskum fyrir góðan árangur ðabrekkunni en hún hefur um árabil verið fremsta skíðakona landsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.