Morgunblaðið - 05.08.2008, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 05.08.2008, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. ÁGÚST 2008 29 Sumartónleikar LSÓ í kvöld, þriðjudag, kl. 20:30 Listasafn Sigurjóns Ólafssonar Laugarnestanga 70, 105 Rvk. www.LSO.is - LSO@LSO.is Þórunn Elín Pétursdóttir sópran og Anna Rún Atladóttir píanó Lög um börn og fyrir börn                                                     !   # $   %    &  '    () "  *   %   +  , ,-      % "   "  .     / **0 1112  2    34567455  7 568 99 Skipulags- og byggingarsvið flytur Skipulags- og byggingarsvið Reykjavíkur er lokað 6. til 8. ágúst n.k. vegna flutnings í nýtt húsnæði að Borgartúni 10-12. Afgreiðsla sviðsins flyst í Þjónustuver Reykjavíkurborgar á 1. hæð Borgartúns 10 - 12. Viðskiptavinir sviðsins eru boðnir velkomnir á nýjan stað. The Planning and Building Department of Reykjavík is closed from the 6th - 8th of august while it is moving its operation to a new building at Borgartún 10-12. The Departments service desk will move to the 1st floor in the new building. We welcome our customers to the new location. Reykjavíkurborg Skipulags- og byggingarsvið Þjónustuver sími: 411 1111 MYNDBAND við lagið „Betra líf“ með Páli Óskari Hjálm- týssyni verður frumsýnt í þættinum Ísland í dag á Stöð 2 í kvöld. Mikill fjöldi, hátt í 250 manns, kemur fram í myndbandinu ásamt Páli Óskari. Í fréttatilkynningu segir að myndbandið sé í sannköll- uðum söngleikjastíl sem minnir á gullöld Hollywood eða jafnvel Bollywood. Pegasus sá um gerð mynd- bandsins og var leikstjórn í höndum Reynis Lyngdal. Fjör Atriði úr myndbandinu sem frumsýnt verður í kvöld. Betra líf frumsýnt í kvöld ÞAÐ hefur sannast enn og aftur með The Dark Knight hversu dýrmætar vel heppnaðar stiklur eru í því að búa til metsölumyndir. Því er ástæða til þess að athuga hvaða stiklur eru helst að vekja lukku nú þegar loks er hægt að sjá Blaka í fullri lengd. Heitasta stiklan á netinu þessa dagana er raunar fyrir Watchmen, sem allt virðist stefna í að verði stóra ofurhetjumyndin árið 2009. Það merkilegasta við hana er þó líklega lagið sem hljómar undir nær allri stiklunni, þrettán ára gamalt Smashing Pumkins lag sem upp- haflega var samið fyrir Batman & Robin, af öllum myndum. Nú hefur lagið, í örlítið breyttri mynd (þetta er raunar aukalag af upprunalegu smáskífunni og örlítið öðruvísi en það var í Batman & Robin), hlotið uppreisn æru og er meðal vinsæl- ustu laga til niðurhals á iTunes og enn er ár þangað til myndin verður sýnd, þannig að það kæmi ekki á óvart að ófáir muni kunna lagið ut- anbókar að ári. Sápukenndur Bush Þá geta áhugamenn um banda- ríska pólitík loksins fengið nasaþef- inn af sýn Olivers Stone á ævi George W. Bush í W., en fyrstu stikl- una fyrir þá mynd mátti finna á dailymotion.com í gær, en stiklan sú er enn að koma og hverfa víðs vegar um netið. Áherslan í myndbrotinu virðist helst á samband forsetafeðg- anna, við sjáum Bush yngri á hátindi hedónismans á sínum yngri árum og sjáum svo Bush eldri setja ofan í hann með þessum orðum: „Who do you think you are? A Kennedy? You’re a Bush, act like one.“ Seinni hluti stiklunnar er hins vegar giska hugljúfur og ansi kitsuð útgáfa á „A Wonderful World“ hljómar yfir. Það er erfitt að sjá á stiklunni hvert ná- kvæmlega Stone er að fara, en helst minnir þetta á íróníska (vonandi) sápuóperu – en í það minnsta á förð- unardeildin skilið óskarstilnefningu fyrir að takast að gera Thandie Newton jafn líka Condaleezu Rice og raun ber vitni. Póstmódernísk auglýsingaherferð Besta stikluherferðin á netinu þessa dagana er þó án nokkurs vafa fyrir nýja gamanmynd Ben Stiller, Tropic Thunder. Hún fjallar um hóp vígalegra leikara í felulitum sem telja sig vera að vinna að næstu Apocalypse Now! í fjarlægum frum- skógi, en ramba óvart inn á yf- irráðasvæði óvinveittra eitur- lyfjaræktenda – sem þeir halda að séu hluti af bíómyndinni sem þeir eru að gera. En fyrir utan eina stiklu úr þeirri mynd þá gengur herferðin út á myndina Rain of Madness, heimildarmynd sem þýski leikstjór- inn Jan Jürgen er að gera um gerð Tropic Thunder – sumsé heimild- armynd um myndina í myndinni, en innblásturinn er vafalítið kominn frá frægri heimildarmynd Eleanor Coppola (konu Francis Ford Coppola) um gerð Apocalypse Now!, Hearts of Darkness: A Filmmaker’s Apocalypse. Fjölda myndbrota úr myndinni má sjá á rainofmadness- .com og þar má einnig finna tengla á síður aðalleikara og annarra að- standenda myndarinnar. Og ef fram heldur sem horfir þá hlýtur Ósk- arsverðlaunaakademían að fara að skoða það að veita sérstök verðlaun fyrir listrænustu auglýsingaherferð- ina. asgeirhi@mbl.is Heitar stiklur Geðveikt regn Líklega kemur heimildarmyndin Rain of Madness aldrei í bíó, raunar er óvíst að hún komi nokkurn tímann í bíó enda lík- ast til ekki til í fullri lengd. En það gerir stiklurnar ekki verri. Hvaða kvikmyndaauglýsingar eru vinsælastar á netinu um þessar mundir? Líkir Josh Brolin í hlutverki George W. Bush í mynd Olivers Stone. mbl.is smáauglýsingar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.