Skinfaxi - 01.09.1926, Blaðsíða 7
SKINFAXI
103
Stofnaði eg því U. M. F. Eyrarbakka með nemendum
mínum úr ungmennaskóla, fullnaðarprófsbörnum úr
barnaskóla og nokkrum l'leirum áhugasömum ung-
mennum vorið 1920.
Vetui-inn 1919—-’20 fór eg fyrirlestraferð meðal ung-
mennafélaga í Árnessýslu, af hálfu sunnlendingafjórð-
ungs U. M. F. í. Leitaðist eg við í þerri ferð að kynna
mér hag og ástand félaganna. Kvað þar víðast við
sama tón: að félögunum gengi erfiðlega að halda sér
ungum. Væri innstreymi æskulýðsins lítið og félögin
ellust og stirnuðu með forgöngumönnum sinum. -—
Hugðist eg að koma í veg fyrir meinsemd þessa í U.
M. F. E., og nota um leið aðstöðu mína sem kennara
til þess að beina bugum barna þeirra, er eg kendi, að
hugsjónum U. M. F. og áhugamálum. póttist eg geta
mundu linnið með því þarft verk og þægt, bæði ein-
staklingum og þjóðarheild.
U. M. F. E. stóð frá upphafi opið börnum innan
fermingar. Komu nokkur í það þegar í byrjun. En mér
var það undireins fulllcomlega ljóst, að 10—15 ára börn
eiga enga samstöðu með fólki á venjulegum U. M. F,-
aldri. Geta börn ekki notið krafta sinna né haft þá
vakningu, æfingu og ánægju, sem vera her, við störf i
almennu U. M. F. Réð eg því af að mynda barnadeild
innan U. M. F. E. þegar er aðalfélagið væri komið svo
vel á laggirnar, að tóm ynnist til. Skyldi deild sú
vera siyngjandi Iðunn félagsins.
A fyrsta aðalfundi U. M. F. E., i janúarmánuði 1921,
var svohljóðandi grein bætt inn í lög félagsins:
„Félaginu skal skift í tvær deildir, yngri og eldri. I
yngri deild skulu vera allir félagar, þeir sem ófermdir
eru, en fermdir félagar í liinni eldri. Skulu deildirnar
halda að minsta kosti annan hvorn fund í sínu lagi.
Lætur stjórn þess gelið í fundarboði, livort fundur er
sameiginlegur eða ekki. Félagsstjórn er jafnframt
stjórn eldri deildar, en yngri deild skal hafa eigin stjórn.