Skinfaxi - 01.04.1930, Síða 36
132
SKIXFAXI
æskunnar og ástandinu i landinu. Það er Þórhallur Bjarnar-
son prentari, er hugsaði félagsskapinn. Hann er enn meðal
heitustu og hugkvæmustu ungmennafélaga.
Nú er Þórhallur að gefa út bók, sem hann ætiast til, a'ð
verða megi til þess, að breiða út þekkingu á íslandi og auka
sæmd þess crlendis. En það er úrval úr ljóðum 30 íslenzkra
nútiðarskálda. Eru kvæðin prentuð á íslenzku á aðra hvora
blaðsíðu, en þýðing á ensku á blaðsíðunni á móti. Iiafa ýms-
ir gert þýðingarnar, en flestar þeirra eru eftir Vestur-íslend-
inga, enda vill útg. benda með bókinni á hlutverk þeirra senx
kynnenda íslenzkrar menningar út á við. Stutt æfiágrip skáld-
anna fylgja og myndir af þeirn. Hefir Tryggvi Magnússon
teiknað myndirnar og umgerð, sem litprentuð er um hverja
blaðsíðu. Prófessor Richard Beck hefir ritað inngang og búið
bókina undir prentun. Hún verður 17 arkir að stærð, prent-
uð á afbragðs pappír, bundin í alskinn og um allt hin prýði-
legasta. Má öllum ljóst vera, hvilíkt fagnaðarefni jxað er, að
fá slíka bók út nú í ár — geta með henni veitt erlendum gest-
um vorum innsýn i sál þjóðar vorrar, gegn um ljóð hennar.
í 1. hefti Skinfaxa ]). á. er bent á ágæta æskulýðssálarfræði
eftir séra Axel Ilaerberger í Oxelösund í Svíþjóð. Eg hefi
notið þeirrar ánægju, að kynnast höfundi þessum, og hefir
hann nú sent mér tvær bækur er hann hefir gefið út í ár.
Heita þær ,,Det religiösa livet under gnglingaáldern“ (Trúar-
lif æskuáranna) og ,,Scoutlagen i psgkologisk, pedagogisk och
etisk belgsning“ (Skátalögin í sálar-, uppeldis- og siðfræði-
legu Ijósi). Kosta 2,25 og 1,25 s. kr. Báðar eru bækur
þessar mjög prýðilegar, efnið skipulega sett fram, í stuttu,
skýru máli, án hleypidóma og kredda, en af skilningi og
frjálslyndi. Skal eindregið mælt með þeirn við kennara og
æskuleiðtoga, enda þótt þeir stundi eigi „kristilega“ starf-
semi í þröngum skilningi, né skátaforyslu. Þær veita inn-
sýn í sálarlíf æskumanna, birta andlegar þarfir þeirra. Skin-
faxi getur útvegað þessar og fleiri bækur um æskulýðsrnál.
Bréfasambönd.
Magnús Jónsson, Bláfeldi, Staðarsveit, Snæfellsnesi, æskir
bréfasambands við áhugasama ungmennafélaga, konur og
karla. — Bragi Eiríksson, Aðalstræti 12, ísafirði (14 ára) æskir
bréfasambands við ungmennafélaga og skáta á líkum aldri.
Félagsprentsmiðjan.