Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1959, Blaðsíða 8

Skinfaxi - 01.02.1959, Blaðsíða 8
8 SKINFAXI Bréf frá velunnara Skinfaxi birtir hér bréf frá Jónasi Jóns- syni frá Hriflu til ungmennafélaganna í Borgarfiröi. Jónas var um margra ára skeiö ritstjóri Skinfaxa, og þá IjómaÖi ■ mjög af faxi þess fáks. Jónas var þegar í þann tíö sérlega vel ritfœr, liöfuöiö var fullt af hugsjónum og hugmyndum og hjartaö af ást á landinu og þjóöinni. SíÖ- ar geröist Jónas mestur athafnamaöur í ráöherrastóli á íslandi um menningarmál, kom fram ótrúlega miklu á skömmum tíma. MeÖal hinna mörgu nytjamála, sem hann átti frumkvæði aö, má nefna lögin um héraösskóla. Jónas er ekki setztur i helgan stein um áhuga og hugsun, fylgist ávallt vel meö öllu og skrifar enn margt. Hér segir hann sögu merkrar stofnunar á miklum sögustaö og frœgum og leggur á ráö um þaö viö unga menn og áhuga- sama í hinu fagra og blómlega héraöi, Borgarfiröi, hversu þá stofnun og þann staö skuli prýöa. — Rit st j óri. Reykjavík, 14. janúar 1959. Ég hef um allmörg ár liaft nokkra sam- vinnu um Reylcholt við Borgfirðinga, bæði eldri og yngri menn. Annar þáttur kynna minna við Borgfirðinga hefur verið við ungmennafélögin, og þar sem Reykholts- staður í sinni núverandi mynd á að vera og verður brjóstvörn æskunnar í hérað- inu, vil ég snúa mér til ykkar, með nokkr- ar hendingar um það, sem ég álít vera heppilegt viðhorf æskunni í Borgarfirði til Reykholtsskóla. Mörgum ykkar munu vera lítið kunn söguleg drög til viðreisnar Reykholts. Vil ég hæta við um það efni nokkrum skýringum. Bezt liefur Reykholti vegnað, þegar farið hefur saman áhugi æskunnar i héraðinu, eldri forgöngu- manna og áhugasamra stuðningsmanna málsins á Alþingi og i stjórn kennslumál- anna. Reykliolt er nú öruggt menntasetur, þar sem hundrað ungmenni, flest úr Borgar- firði, dvelja misserum saman á mótunar- aldrinum. Eftir aldamótin hyrjaði áhuga- samur Barðstrendingur, Sigurður Þórólfs- son, ungmennaskóla á Hvitárbakka í Borg- arfirði. Sigurður liafði framazt bæði heima í landinu og við nám í Grundtvigsskólum í Danmörku. Stofnsetti Sigurð-.u- lýðhá- skóla í Borgarfirði sem einkafyrirtæki. Hann ralc búskap á Hvítárbakka og kom þar upp allmiklum byggingum úr timbri með litlum styrk af hálfu mannfélagsins. Alþingi veitti litilsháttar styrk til kennsl- unnar. Skólinn var fjölsóttur af ungu fólki, bæði úr Borgarfirði og víðar að. Er tilraun Sigurðar Þórólfssonar á Hvítár- bakka mikið átak einstaks manns til að beita við kennslu hér á landi hinu vinsæla danska fyrirkomulagi, sem kennt er við Grundtvig. Dýrtiðarbylgja fyrra heims- stríðsins varð skóla Sigurðar Þórólfssonar

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.