Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.1962, Blaðsíða 19

Skinfaxi - 01.04.1962, Blaðsíða 19
Unjpnennasamband V estur-Skaf taf ellssýslu stóð að myndarlegri samkomu aðKirkju- bæjarklaustri á þjóðhátíðardaginn, 17. júní. Formaður sambandsins flutti ávarp. Að lokinni messugjörð séra Gísla Brynj- ólfssonar flutti framkv.stj. U.M.F.Í. ræðu og sýndi kvikmynd frá landsmótinu á Ak- ureyri. Einnig ávarpaði hann samkomu- gesti á dansleiknum um kvöldið. Ung stúlka í ísl. þjóðbúningi — Fjallkonan — flutti kvæði og héraðslæknir talaði við börnin. Samkoman fór vel fram. Héraðsþing. Héraðssambandið Skarphéðinn. Héraðsþing Héraðssambandsins Skarp- héðins var haldið nokkru eftir áramótin. Þingið var fjölsótt. Þar mættu þrír stjórn- armeðlimir U.M.F.I. Sambandsstjóri U.M. F.í. flutti ræðu og Stefán Ólafur Jónsson sýndi skuggamyndir frá Vejleförinni. Framkvæmdastjóri U.M.F.I. ræddi um Skinfaxa o. fl. Þingið stóð yfir í tvo daga og tók mörg merk mál til meðferðar. Sig- urður Greipsson var endurkjörinn héraðs- stjóri. Ungmennasamband Kjalarnesþings. Héraðsþing Ungmennasambands Kjalar- nesþings var haldið í marz. Þingið var vel sótt og mörg mál rædd. Þingið var boðið til kaffiveizlu hjá f orsetahj ónunum á Bessastöðum. Framkvæmdastjóri U.M.F.Í. var gestur þingsins og flutti kveðjur og þakkir. For- maður U.M.S.K. er Páll Ólafsson í Braut- arholti. Ungmennasamband Eyjaf jarðar. Héraðsþing Ungmennasambands Eyja- fjarðar stóð yfir dagana 13.—15. apríl. Á sunnudagskvöldið var fjölmennt hóf í til- efni af 40 ára afmæli sambandsins. Fram- kvæmdastjóri U.M.F.I. var gestur þingsins og flutti ávarp og kveðjur á þinginu og í hófinu og afhenti litla gjöf í tilefni af af- mælinu. Á þinginu voru fulltrúar frá öllum sambandsfélögum. Margar ræður voru fluttar í hófinu af eldri og yngri forustu- mönnum ungmennafélaganna. Hófið fór fram með mestu prýði. Þess skal getið, að margar vísur voru ortar undir kaffiborð- um í Laugalandsskóla báða þingdagana. Þingið og hófið fór fram í félagsheimilinu Freyvangi. Formaður U.M.S.E. er Þórodd- ur Jóhannsson, Akureyri. Ungmennasamband Borgarf jarðar. Héraðsþing Ungmennasambands Borg- arfjarðar var haldið að Reykholti dagana 28. og 29. apríl. Þingið var vel sótt. Aðal- mál þingsins var íþróttavöllur sambands- ins, sem nú er langt kominn. 1 sambandi við þingið var haldið hóf í tilefni af fimm- tíu ára afmæli sambandsins. Framkvæmda- stjóri U.M.F.I. var gestur þingsins. Hann flutti ávarp í hófinu og afhenti áletraða fánastöng að gjöf. Páll Blöndal, bóndi í Stafholtsey, var heiðraður í hófinu. Hlaut hann heiðursmerki U.M.S.B. fyrir mikið og gott starf í þágu sambandsins. Héraðs- stjóri U.M.S.B. var kosinn Þorsteinn Sig- urðsson. Ragnar Olgeirsson baðst undan endurkosningu. Héraðssamband Suður-Þingeyinga. Héraðsþing Héraðssambands Suður- 19 S K I N F A X I

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.