Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.12.1970, Qupperneq 10

Skinfaxi - 01.12.1970, Qupperneq 10
H V í STARFAR Á NÝ Héraðssamband Vestur-ísfirðinga hélt ársþing að Flateyri hinn 4. október s.l. Formaður sambandsins var kjörinn Henrik Tausen, Flateyri, Guðvarður Kjartansson, Suðureyri, var kjörinn gjald- keri og Daði Ingimundarson, Flateyri, ritari. Starfsemi HVÍ hefur legið í láginni síð- ustu árin, þótt einstök félög innan sam- bandsins hafi unnið gott starf. Frá þessu var nokkuð skýrt í 4. tbl. Skinfaxa og einnig frá erindrekstri stjómar og fram- kvæmdastjóra UMFI þangað vestur í haust. Hin nýja stjórn HVÍ hefur því ærið Þátttakendur í einu unglinganámskeiðanna hjá HVÍ fyrr á árum ásamt kennurunum Valdimar Örnólfssyni og Sigurði Guðmunds- syni. Myndin er tekin á Núpi. verk að vinna, þegar sambandið hefur nii verið vakið til lífsins undir forystu nýrra manna. Hinn nýi formaður Henrik Tausen, sem er færeyskrar ættar, var á ferð í höfuðborginni nýverið, og náði Skinfaxi þá tali af honum. — Á hverju ætlið þið að byrja? — Við byrjum á því að skipuleggja unglingastarfið. Að sjálfsögðu em mörg erfið verkefni framundan eftir fjögurra ára starfsleysi, en við erum öll sammála um að í unglingunum er okkar framtíð- arvon. I þessu skyni reynum við að ná samstarfi við ýmsa aðra aðila og að nota sem bezt aðstöðuna innan héraðsins. Við ætlum okkur að koma á fót sem fjöl- breyttastri íþróttakennslu.í sambandi við sundnámskeiðin á Núpi á vorin. Við höf- um þegar rætt við skólastjórann þar og fengið fyrirheit um mjög mikilvæga að- stöðu á staðnum. í lok hvers námskeiðs ætlum við svo að koma á fót keppni fyrir börnin og unglingana. Við vitum að áhugi unglinganna er fyrir hendi, og reynslan af námskeiðunum, sem Sigurður Guðmundsson stóð fyrir á sínum tíma, sannar líka hversu nauðsynlegt slíkt starf er. — Hafa héraðsmótin ekki legið niðri undanfarið? — ]ú, því miður. Að sjálfsögðu muu- 10 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.