Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1945, Qupperneq 21
Fljótaleið,
sem féll í gleymsku
Fitrfiitleg suga uni gleymda fljólaleiii, sc/n tcngir
suman slórfljólin Orinoco og Amazon og Ugg-
iir iim liindsvœÍH ólríilegru auÓœfa, seni enn
ern ónoluÖ.
Grímur Þorlceluson þýddi úr ensku.
Fyrir tvö hundruð árum ferðaðist Jesuita-
presturinn Roman upp eftir hinu skolbrúna og
grugguga Orinocofljóti, þar sem það rennur um
óbyggt skóglendi Suður-Venezuela. Hann ferð-
aðist á litlum árabáti, sem Indíánar reru. Við
bugðu á fljótinu sá séra Roman allt í einu ann-
an árabát koma niður fljótið á móti sér. í bátn-
um voru ókunnir hvítir menn. En ókunnir menn
á leið niður fljótið úr áttinni frá Brazilíu voru
í sannleika sagt mjög einkennilégt fyrirbrigði.
Séra Roman vissi, að enginn hafði farið upp
eftir fljótinu mánuðum saman. Hann hlaut að
þekkja hvern þann, sem niður eftir því færi.
Séra Roman kallaði til ókunnu mannanna á
spænsku. Honum til undrunar svöruðu þeir á
portugölsku. Einn þeirra kynnti sig og sagðist
heita Francesco Xavier Morales og vera þræla-
sali frá byggðarlagi nokkuru við ána Negro í
Brazilíu. Þegar séra Roman sagði Portúgals-
mönnunum, að þeir væru nú staddir á Orinoco-
fljótinu í Venezuela, urðu þeir jafn undrandi
og hann. I ákafa sínum við að elta uppi Indíána
til að selja þá á þrælamörkuðunum við Amazon,
höfðu þeir komizt langar leiðir inn á ókönnuð
landssvæði, en héldu sig þó vera á fljótaleiðum
Brazilíu.Pví enginn vissi ti'l, aö npkkúr samruni
væri milli þveráa Amazonfljótsins í Brazilíu
og þveráa Orinocofljótsins í Venezuela. En þó
voru þeir þarna staddir.
Meðan þeii’ töluðust við, minntist séra Roman
þess, að hann hafði heyrt óljósan orðasveim
þess efnis, að árið 1639 hefði prestur nokkur að
nafni Acuna haldið því fram, að hann hefði
fundið skipaleið, sem tengdi saman fljótin Ama-
zon og Orinoco. Allir höfðu talið þetta vera í-
myndanarugl úr presti, sem genginn væri af
göflunum af margra ára skorti og vonbrigðum
á þessu ótrúlega erfiða landssvæði.
En hinir portúgölsku þrælahaldarar voru
samt engin ímyndun eða hitasóttarofsjón. Ann-
aðhvort voru þeir að segja ósatt, eða um var að
ræða samrennsli milli fljótanna Orinoco og
Amazon. Séra Roman ásetti sér að komast að
sannleikanum. Hann slóst því í för með þeim
til Brazilíu. Tveim vikum síðar sá hann með.
eigin augum Casiquiarekanalinn — fljót hinna
tveggja uppsprettna —, sem tengir saman stór-
ár Braziííu og Venezuela og þetta er eina fyrir-
brigðið af þeirri tegund, sem þekkist í heim-
inum.
VÍKINGUR
61