Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1965, Blaðsíða 15

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1965, Blaðsíða 15
Stefán GuSlaugsson, skipstjóri, Gertii. — Sjóniaóitr í meira en hálfa öld, þar af formaSur me'8 „Halkiona" yfir 40 vertíóir. Slefán S. Stefánsson, skipstjóri á Halkion. Frh. af bls. 47 skip voru af þessari gerð og voru þau nefnd , ,HALKIONS-klassinn.“ í fyrri heimsstyrjöldinni voru þessi skip, sem gengu 19 mílur, notuð sem tundurduflaslæðarar. — Þetta voru fyrstu tundurduflaslæðarar í brezka flotanum. Eftir stríðið var HALCY- ON til aðstoðar fiskiskipum í Norð- ursjónum. Það skip var selt 1919 til niðurrifs. Árið 1933 var byggð- ur nýr tundurduflaslæðari með VÍKINGUR m/b Halkion 1965—? sama nafni og kom hann að góðum notum í seinna stríði og allt til ársins 1950. íí Þegar ég ætlaði að grafast fyrir um hvar og hvenær nafnið kemur fyrst fyrir í íslenzkum heimildum, þyngdist mér róðurinn. Allt bendir þó til að nafnið sé í fyrstunni kom- ið úr Skaftafellssýslum. Þorsteinn Sverrisson (afi Kjarvals listmálara og Þórarins Olgeirssonar í Grims- by) bjó á Króki í Meðallandi. — Stuttu fyrir 1880 lét hann smíða sexæring, sem nefndur var HALKI- ON. Skip þetta var mesta happa- fleyta og fyrstu vertíðina fengu hásetarnir 1000 í hlut af tómum þorski. Kona Þorsteins, Þórunn Jónsdótt- ir, dannebrogsmanns frá Kirkju- bæjarklaustri, orti þessa vísu um HALKION: Þrennan Guð vér biðjum bezt blítt með ýtasafni að blessa þennan lilunnahest HALKION að nafni. Með Skaftafellssýslur og sand- ana í huga lá nærri að halda, að nafnið væri í fyrstu komið frá gömlu strandi. Þarna kom sagna- þulurinn Ámi frá Grund mér til hjálpar. Árni hermdi eftir bændunum á Þykkvabæjarklaustri árið 1934, að á söndunum hefðu strandað tvö frönsk skip, sem hétu „della Halki- on“ og „le Fécamp einhvem tíma um eða eftir 1840. Ekki hefur ver- ið unnt að finna þessara skipa get- ið í prentuðum heimildum. Hér er því um munnmæli að ræða, sem gætu verið meira eða minna brengl- uð. Vestmannaeyingum er nafnið að góðu kunnugt bæði fyrr og síðar. Ég hika ekki við að halda því fram, að HALKION-nafnið sé merkileg- asta skipsnafn á íslandi í dag. í Vestmannaeyjum er nafnið Halkion einkar merkilegt vegna þess, að bátar með þessu nafni hafa verið í eign og undir skipsstjórn sömu ættar svo til samfleytt í heila öld. Eigendur Halkion í dag eru Stefán Guðlaugsson og synir hans, Gunnar, Stefán og Guðlaugur. Ég hef ekki skriflega heimild fyrir því, en það má álíta öruggt, að ættfaðir Gerðisættar, Jón Jóns- son frá Brattlandi á Síðu, hafi flutt nafnið með sér hingað til Vestmannaeyja. Það er skemmtileg rás viðburða, að afkomandi Jóns í beinan karllegg, Stefán S. Stefáns- son, skuli nákvæmlega 100 árum 49

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.