Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1983, Page 43

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1983, Page 43
SKRAPIÐ Ráðstefna um kulda Dagana 1. og 2. október var haldin í Reykjavík ráðstefna um vandamál tengd kulda og vosbúð. Bar hún heitið „Að halda lifi i kulda“ og var haldin fyrir forgöngu Nprrænu sam- starfsnefndarinnar um heilsu- farsrannsóknirá noröurslóð. Fjöldi erinda var haldinn á ráðstefnunni t.d. um lifeðlis- fræðileg og tæknileg viöhorf, til þess að halda lifi i sjávar- háska, um köfun og köfunar- slys, ógnir veðurfarsins og ein- staklinginn, áhrif kulda á vinnuafköst, að klæðast i kuldao.fl. Ennfremur var hjálpar- og björgunarstarfsemi á Islandi kynnt þ.e. Slysavarnafélagið, Hjálparsveitir skáta, Flug- björgunarsveitin, Vinnueftirlit rikisins og Rauði korssinn. Einnig var fjallað um almanna- varnir með sérstöku tilliti til kulda og vosbúðar og um al- mannavarnirá Svalbarða. Meiningin er að birta erindi sem áhugaverðast þótt fyrir sjómenn.í næstablaöi. Orkusparandiaö- gerðir Sjávarútvegsráðuneytið gaf út svohljóðandi fréttatilkynn- ingu, 26. septembersl: Ráöuneytiö hefur ákveðið aö verja nokkru fétil lánveit- inga til þeirra útgeröa sem hyggja á orkusparandi að- gerðir i skipum sínum. Ráðu- neytið hefur fyrr á þessu ári staðið fyrir lánveitingum sem þessum, en þá var þeim lánað- ervildu breyta yfirtil svartoliu- notkunar i skipum sinum. Lán- veitingarnar nú verða með svipuðum hætti og þær hafa verið að þvi undanskyldu aö fleiri orkusparandi aðgerðir eru lánshæfaren áður. Ætlunin er að lána út á orkusparnaðar- aðgerðir vegna svartoliunotk- unar, raforkuframleiðslu með aðalvélum, notkunar afgangs- varma frá aðalvélum og vegna aðgeröa á framdrifsbúnaöi. Þá er einnig ætlunin að styrkja menn til kaupa á olíueyðslu- mælum i fiskiskip. Gert er ráð fyrir aö 40% kostnaöar viö hvern mæli verði greiddur en þá ekki meira en 25 þús. kr. i hverju tilviki. Styrkurinn greið- ist framleiðenda mælisins að lokinni niðursetningu hans og gegn framvísun staðfestingar um að verkinu sé lokið. Umsókn um lán og styrki skal senda ráðuneytinu ásamt greinargóöum upplýsingum um viðkomandi framkvæmdir. Allar nánari upplýsingar eru veittar i ráðuneytinu. Víkingur 43

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.