Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1990, Page 50

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1990, Page 50
KRAFTAVERK I breytti bærinn um hlutverk og hóf aö þjónusta þá tugi skipa sem héldu þar til hafnar á degi hverjum. Með tímanum varð Port Said mikilvæg umskipun- arhöfn fyrir varning sem flytja átti í ýmsa staði. Eftir því sem umferð skipa jókst um skurðinn og þar með arðurinn af honum fór ekki hjá því að stórveldin fengju áhuga á að seilast til yfirráða yfir hon- um. Árið 1875 komst Isma’il Pasha, nýr vísikóngur Ottóm- ana í Egyptalandi, í fjárkröggur og neyddist til að selja hlut sinn í skurðinum. Bretar voru ekki seinir aö grípa gæsina: Benja- min Disraeli forsætisráðherra ákvað að kaupa þau 44% hlutafjár sem vísikóngurinn átti í skurðinum og þar með var hann orðinn að fransk-ensku fyrirtæki. ^^kurðurinn var nú breikkað- urtil þess aðhægtværi aðsigla í báðar áttir í einu en fyrstu árin höfðu skipin orðið að fara skurðinn í áföngum og bíða meðan önnur skip fóru í önd- verða átt. Næsta stórbreyting varð hins vegar ekki fyrr en árið 1947 þegar komið var á þeirri skipan að láta skip sigla í skipa- lestum eftir skurðinum. Þetta kerfi er enn í notkun en sam- kvæmt því sigla skipin um skurðinn í hollum sem fylgja nákvæmri tímaáætlun. Yfir- stjórn skurðarins ákveður hraða hvers skips og bilið á milli þeirra en þetta kerfi tryggir að hægt er að stjórna umferð um skurðinn af miklu öryggi all- an ársins hring. Árið 1956 var skyndilega bundinn endir á þessa arðvæn- legu starfsemi þegar Gamal Abdel Nasser forseti Egypta- lands ákvað að þjóðnýta skurð- inn. Bretar, Frakkar og ísraelar brugðust við með því að senda hersveitir á staðinn. Nasser svaraði með því að fylla skip af steinsteypu og sökkva þeim í skurðinn til að stífla hann. Þá greip Bandaríkjastjórn inn í at- burðarásina og þvingaði árás- arríkin til að hverfa á brott með hersveitir sínar. Skurðurinn var Sjómannadagurinn 1990 Vélstjórafélag íslands sendir félagsmönnum sínum, fjölskyldum þeirra og ödrum landsmönnum heillaóskir á sjómannadaginn. Vélstjórafélag íslands

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.