Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1999, Blaðsíða 46
Páll Benediktsson fréttamaður vinnur að gerð sjónvarps-
þáttaraðar um íslenskan sjávarútveg á tímamótum. Þar
verður fjallað um stöðu þessa aðalatvinnuvegs þjóðarinnar
við aldamót og spáð í framtíðina
Aað höfða
til
landsmanna
stjórnvalda kom í ljós að það var vilji til þess
að styðja verkefnið. Það var strax ljóst að ef
mínar hugmyndir gengju eftir væri þetta það
viðamikið verk að Sjónvarpið mundi ekki
treysta sér til að greiða nema hluta af kostn-
aðinum. Stjórnir þessara stóru samtök eins
og SH, LÍÚ, ÍS og SÍF ákváðu að styrkja
þetta myndarlega. Rikisstjórnin hefur einnig
stutt verkefnið rausnarlega með sérstakri fjár-
veitingu og Sjónvarpið keypti sýningarrétt-
inn. I framhaldinu var ákveðið að ég færi í
þriggja ára leyfi frá starfi við Sjónvarpið og
stofnaði mitt eigið fyrirtæki sem annaðist
gerð þessara þátta en það nefnist Articfilm,"
segir Páll um tildrög þess að hann réðist í
þetta stórvirki.
Páll kveðst strax hafa tekið þá ákvörðun að
þættirnir fjölluðu um stöðu sjávarútvegsins
núna og svo framtíðina. Á svona tímamótum
sé við hæfi að skoða stöðuna eins og hún er
og horfa jafnframt framá veginn. Aður hafi
verið búið að gera mjög vandaða þætti um
sögu sjávarútvegsins, það er að segja þættina
Verstöðin ísland. En hvernig verður efninu
skipt milli þáttanna?
Lífríkið, veiðar og umheimurinn
„Fyrsti þátturinn mun fjalla um lífríkið í
„Það verður lögð áhersla á að setja allt þetta
efni fram á áhugaverðan hátt þannig að það
höfði til allrar þjóðarinnar en ekki bara þeirra
sem starfa við sjávarútveg eða hafa sérstakan
áhuga á þeirri atvinnugrein. Stór hluti lands-
manna hefúr fjarlægst sjávarútveginn og ger-
ir sér ekki grein fyrir mikilvægi hans fyrir
þjóðina. Ég tel að skólarnir hafi brugðist með
því að fella fræðslu um sjávarútveg ekki inn í
námsefnið í miklu ríkara mæli,“ sagði Páll
Benediktsson fréttamaður í viðtali við blaðið.
Hann vinnur nú að gerð dýrustu sjónvarps-
þáttaraðar sem Sjónvarpið hefur ráðist í og er
áætlað að kosti um 60 milljónir króna.
Þriggja ára vinna
„Um er að ræða sjónvarpsþáttaröð sem
hefur vinnuheitið Aldahvörf- sjávarútvegur á
tímamótum - og verður skipt í átta þætti. Ég
kynnti þessa hugmynd fyrst á Sjónvarpinu
uppúr miðju ári 1997 og hafði þá í huga tíu
þætti til þess að sýna þessum aðalatvinnuvegi
þjóðarinnar á þessari öld tilhlýðilega virðingu
á aldamótum. Ég kynnti þetta á þeim for-
sendum að hefðbundinn iandbúnaður hefði
verið aðalatvinnuvegurinn fram að síðustu
aldamótum en sjávarútvegur risið hæst á
þessari öld og stæði undir þeim góðu lífskjör-
Páll Benediktsson.
um sem við búum við. Forráðamenn Sjón-
varpsins tóku vel í þetta og ég var beðinn um
að útfæra hugmyndina nánar. Eftir að hafa
leitað til stórra samtaka í sjávarútvegi og
46
Sjómannablaðið Víkingur