Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1932, Blaðsíða 12

Náttúrufræðingurinn - 1932, Blaðsíða 12
170 NÁTTÚKUFR. gulleitum blæ, sem þótti auka fegurð hans, hann vó 1331/;, karöt, og var einn af austurrísku krúnu gimsteinunum. Nassak (5. mynd) vó 89,59 karöt, var fluttur til New York árið 1927 og hefir líklega lent hjá einhverjum auðmanninum. 1905 fannst Cullinan gimsteinninn í einni námunni i Transvaal, sem nýlega var byrjað að vinna. Var það Afríkumaður sem stein- inn fann. Að stærðinni til yfirsteig hann alla demanta, sem þekkst hafa síðan sögur fara af, vó hann 3024 karöt eða talsvert meira en !/2 kg (ca. 605 gr). Stjórnin í Transvaal keypti steininn árið 1907 og gaf hann Játvarði VII. Englands konungi. Hann var send- ur til Amsterdam til vinnslu og fágunar, og var sagaður niður i 9 fremur stóra steina og 96 mjög smáa. Á myndinni á bls. 163 er aðalsteinninn sýndur til vinstri handar með sömu gerð og hann hafði, er hann kom úr jörðu, en til hægri handar 9 stærstu stein- arnir er úr honum voru gjörðir. Fjórir hinir stærstu vega 516V2 karöt sá stærsti, hinir eftir stærð 3093/ig karöt, 92 karöt, 62 karöt en aðrir miklu minni. Allir voru steinarnir gallalausir og uppfylltu ströngustu kröfur. Margir aðrir fagrir og stórir (150—457 karöt) demantar hafa fundizt í Afríkunámunum. Nafnkunnastur demant, sem fundizt hefir í Brasilíu hefir verið nefndur „Suðurstjarnan“. Hann fannst 1853 og vó 254V2 karöt er hann kom úr jörðu, og var seldur fyrir 800,000 kr. Þegar búið var að fága hann, vó hann 125 karöt og var þá seldur fyrir 1600,000 kr. Á 6. mynd eru sýndir gimsteinar af venjulegastri stærð og útliti, eins og þeir koma úr jörðu í námum í S.-Afríku. Er fróð- legt að bera myndina saman við forsíðumyndina. Ég hafði ætlað mér að skrifa nánara um demantana, einkum um námurnar og rekstur þeirra í S.-Afríku en því verður að fresta nú og láta það bíða betri tíma. G. G. B. Hveraftiglar. í „Dulrænum smásögum“, eftir Br. Jónsson frá Minnanúpi, segir Gísli Magnússon, fyrrum bóndi í Króki í Grafningi, frá fuglum nokkurum, sem bæði sjálfur hann og aðrir höfðu séð á „stóra hvernum“ á Ölkelduhálsi. Á árunum 1912—1920 átti eg nokkurum sinnum leið fram

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.