Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 2006, Qupperneq 62

Náttúrufræðingurinn - 2006, Qupperneq 62
Náttúrufræðingurinn 1. tafla. Átta tegundir af ættinni Zonitidae hafa fundist á íslandi. - Eight species ofthefamily Zonitidae have beenfound in lceland. Vitrea crystallina (O.F. Muller, 1774) kristalbobbi Vitrea contracta (Westerlund, 1871) agnarbobbi Aegopinella pura (Alder, 1830) grundarbobbi Nesovitrea hammonis (Ström, 1765) geislabobbi Oxychilus alliarius (Miller, 1822) laukbobbi Oxycliilus draparnaudi (Beck, 1837) breiðbobbi Zonitoides nitidus (O.F. Muller, 1774) vallbobbi Zonitoides arboreus (Say, 1816) húsabobbi Ætterni Ættkvíslin Oxychilus tilheyrir ætt- inni Zonitidae. Sameiginleg ein- kenni ættarinnar er þunn, glansandi og gegnsæ skel. Kuðungurinn er undinn upp í nokkuð flata skífu sem er með kúptu ummáli. Útrönd munnans er þunn og ekki útsveigð. Saumurinn er grunnur og munna- saumurinn er ekki niðurbeygður. Eftir að dýrið drepst veðrast kuð- ungurinn fljótt og verður mattur og ógegnsær. Þá getur verið erfitt eða jafnvel ógerningur að greina kuð- unginn til tegundar. í ættinni Zonitidae hefur verið lýst nokkur hundruð tegundum sem dreifast um nær alla jörðina, að meirihluta þó um norðurhvel. Oxychilus er stærsta ættkvíslin. Mest er tegundafjölbreytnin í suð- austanverðri Evrópu og suðvestan- verðri Asíu. í Tyrklandi hafa t.d. fundist a.m.k. 28 tegundir af Oxychilus2. í Mið-, Norður- og Vest- ur-Evrópu eru tegundirnar aðeins 12, og aðeins 3 þeirra lifa í Norður- Evrópu og Skandinavíu3. Ein þeirra er O. cellarius (O.F. Muller, 1774) sem er frumfyrirmynd ættkvíslar- lýsingarinnar (type of the genus). Hana mætti kalla kjallarabobba. Kjallarabobbinn er algengur víða um heim og hefur líklega breiðst út með umsvifum mannsins. Hann hefur þó ekki fundist enn hér á landi. Ef litið er til mikillar aðlög- unarhæfni þessarar tegundar er það varla nema spurning um tíma hvenær hún flyst hingað til lands, sérstaklega í ljósi þess að breið- bobbinn, sem er ekki eins harðgerð tegund, er þegar kominn hingað og virðist þrífast ágætlega. Nokkrar tegundir af ættinni Zonitidae finnast hér á landi, sjá 1. töflu. Þetta eru yfirleitt harðgerðustu teg- undir ættarinnar og þær sem hafa mesta aðlögunarhæfni, þ.e. þær sem finnast við fjölbreytilegust skil- yrði. Þær eru hér yfirleitt við norð- urmörk útbreiðslusvæðis síns. Heiti Latína: Oxychilus draparnaudi (Beck, 1837) Enska: Draparnaud's glass snail Þýska: Grofie Glanzschnecke Danska: Draparnauds glanssnegl LÝSING Einkenni ættarinnar, sem talin eru að framan, eiga vel við um breið- bobbann. Kuðungurinn hefur 5-5 Ý2 vinding og fíngerðar en óreglulegar vaxtarrákir. Vaxtarrák- irnar líkjast stundum fíngerðum fellingum, einkum nálægt saumn- um. Liturinn á skelinni er ljósbrúnn eða fölgulleitur. Liturinn á dýrinu er mjög einkennandi fyrir tegund- ina og sést hann vel í gegnum hálf- 2. mynd. Safn af átta breiðbobbum úr garðinum við Laufásveg 26; mælikvarðinn sýnir cm. - A collection of eight snails o/Oxychilus draparnaudi from Reykjavík. The scale is in cm. 122
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.