Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2001, Síða 12

Náttúrufræðingurinn - 2001, Síða 12
Bréf th Náttúrufræðingsins Ofveiði, OF LÍTIL VEIÐI EÐA KJÖRVEIÐI Náttúrufrœðingnum barst eftirfarandi bréf með beiðni um birtingu. Líffræðingar sem leggja á ráðin um nýtingu dýrastofna á landi og fiskistofna í vötnum hafa annað líkan við ályktanir sínar en líffræðingar sem leggja á ráðin um nýtingu fiskistofna sjávar. í líkaninu á landi er ástand dýrastofnsins á öllum aldri frá tímgun metið og síðan litið til þess við áætlanir um nýtingu, en við áætlanir um nýtingu fiska hafsins er litið til stærðar stofnsins í nýtanlegum árgöngum en ekki til ástands stofnsins, þ.e.a.s. lífsskilyrða eins og þau birtast í þrifum á öllum aldri. Þetta á ekki aðeins við um ísland, heldur almennt um heiminn. Sú fræðigrein er frumstæð sem ekki á samstætt líkan fyrir sama viðfangsefni, eins og hér reynist vera. Til marks um hversu sneydd líffræði hafsins er rannsókn á næringu er ritið Hafrannsóknir við ísland, sem kom út í tveimur bindum (1988 og 1990), tæpar 800 blaðsíður. Atriðisorðaskrá fyrra bindis, en það nær til ársins 1937, geymir orðið næringu, en þó ekki í sambandi við þrif fiska; í skrá síðara bindis er það alls ekki að íinna. Höfundurinn, Jón Jónsson, fjallaði reyndar um samhengi stofnstærðar og vaxtar í Náttúrufræðingnum 1964 (Ofveiði og kjörveiði, bls. 4-8), m.a. með þessum orðum: „Of lítil veiði getur verið jafn skaðleg og of mikil veiði. Það hefur t.d. komið í ljós, að þau ár, sem mjög sterkir árgangar af þorski hafa verið í aflanum, hefur fiskurinn vaxið hægar en þegar lítið hefur verið af fiski í sjónum. Við skýrum þetta með því, að þegar mikið er um fisk sé ekki nóg fæða í sjónum fyrir allan þann fjölda.“ Enga athugun af þessu tagi er að finna í Hafrannsóknum við ísland, enda vantar þessa grein Jóns í ritaskrá síðara bindis. Orðin í heiti greinarinnar, ofveiði og kjörveiði, koma varla fyrir í atriðisorðaskrá ritsins, ofveiði aðeins einu sinni í fyrra bindinu (um lúðu og skarkola) og í síðara bindi líka aðeins einu sinni, vegna athugana frá því fyrir seinni heimsstyrjöld, en orðið kjörveiði kemur aldrei fyrir í skránni. Vel væri ef ritstjórn Náttúrufræðingsins tæki upp þráðinn í grein Jóns frá 1964 og efndi til rökræðna í ritinu um ofveiði, vanveiði og kjörveiði, undir því sjónarhorni sem hann hafði þá. Björn S. Stefánsson, dr.scient. Kleppsvegi 40 105 Reykjavík http://www.simnet.is/bss Netfang: bss@simnet.is 90
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.