Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2001, Page 29

Náttúrufræðingurinn - 2001, Page 29
dreifingu (Kellogg 1980, Buckland o.fl. 1986). Slíkar aðstæður gætu einnig hafa verið til staðar í lok fyrri jökulskeiða í byrjun og um miðbik ísaldar. Allmiklar umræður hafa verið um það hvort fjörudoppa hafi komist til Norður- Ameríku af sjálfsdáðum eða borist þangað með mönnum. Elsta fjörudoppa sem fundist hefur í Norður-Ameríku er frá Nova Scotia, úr setlögum frá miðhluta síðasta jökulskeiðs, og verður það að teljast athyglisvert þegar tekið er tillit til þess að hér er ekki um neina kald- sjávartegund að ræða (Wagner 1977). Einnig hafa fundist tvær skeljar í strand- hjalla á norðurhluta Nýfundnalands þar sem norrænir menn höfðu reist hús, og eru þær því líklega eldri en norrænt landnám á svæðinu (Bird 1968). Að auki hafa fundist nokkrar skeljar í tveimur sorphaugum indíána í Nova Scotia og ennfremur tvær í New Brunswick og reyndust skeljarnar 500-1000 ára gamlar (Clarke og Erskine 1961). Þetta styður þá tilgátu að fjöru- doppa hafi verið komin til Norðaustur- Ameríku fyrir landnám Evrópubúa. Þótt hún hafi ekki fundist í eldra seti í Norður- Ameríku er ekki hægt að útiloka flutning frá Evrópu í lok jökulskeiða á fyrri hluta isaldar, þ.e. áður en grunnsjávarsvæðin á ^ryggjunum beggja megin við ísland hurfu og meðan flutningur grunnsjávar- tegunda var mun auðveldari. A hinn bóginn er ekki unnt að útiloka að fjörudoppa hafi flust frá Evrópu til Norður- Ameríku öðru hverju eftir síðustu jökul- hörfun (Agnar Ingólfsson 1992). N. Spjeld- naes og K.E. Henningsmoen (1963) komust jafnvel að þeirri niðurstöðu að fjörudoppan hefði borist til Norður-Ameríku af manna- völdum. Þó er talið sennilegra að víkingar hafi flutt með sér lifandi eintök; þau hafi styrkt stofninn sem fyrir var og tegundin síðan aukið útbreiðslu sína. Það hafi aftur leitt til þess að fjörudoppan varð sums staðar ríkjandi tegund í mörgum strand- fánum. Skipaferðir gætu einnig hafa hjálpað til við að dreifa tegundinni frá St. Lawrence- flóa (Clarkeog Erskine 1961,Clarke 1971). Fjörudoppa hefur fundist á vesturströnd Norður-Ameríku, en þó ekki náð þar veru- legri útbreiðslu. Líklegt þykir að hún hafi flækst frá Atlantshafsströndum inn í Kyrra- haf með ostrum af Crassostrea- eða Mercenaria-ætíkvíú, en þær voru fluttar þangað af mönnum. ■ HELSTU NIÐURSTÖÐUR. Fjörudoppa (Littorina littorea) lifir ekki við strendur íslands nú á dögum. Hér á landi er hún eingöngu þekkt úr sjávarsetlögum í Búlandshöfða á Snæfellsnesi. Þau eru mynduð við strönd á miðhluta ísaldar fyrir rúmlega 1,1 milljón árum. Tegundin hefur ekki fundist í Tjörneslögum og eintök sem hafa verið nefnd þaðan virðast ranglega greind. Þau tilheyra annaðhvort aurdoppu (Littorina squalida) eða fróndoppu (L. islandica). Fjörudoppa þróaðist frá aurdoppu eftir að Tjörneslög mynduðust, en yngsti hluti þeirra er um 2,6 milljón ára. Talið er að hún hafi myndast vegna aðlögunar aurdoppu að lækkandi sjávarhita og orkuríkara umhverfi á grunnsævi í tengslum við fyrstu stóru jöklunina (jökulskeiðið) á norðurhveli, en hún varð um þetta leyti. Líklegast hefur þetta átt sér stað á Íslands-Færeyja- hryggnum þegar aurdoppa var á suðurleið frá íslandi fyrir 2,4-2,6 milljón árum. Fjöru- doppa varð síðan ein algengasta tegund strandsnigla í austanverðu Norður-Atlants- hafi, á sama tíma og aurdoppa hvarf úr Atlantshafi. ■ ÞAKKARORÐ Við stöndum í mikilli þakkarskuld við Dr. David G. Reid á Breska náttúrugripasafninu í London (British Museum) fyrir góð ráð og staðfestingu á greiningu fjörudoppunnar frá Búlandshöfða. Einnig viljum við þakka Godtfred Höpner Petersen á Dýrafræði- safninu í Kaupmannahöfn fyrir aðgang að skeljasafni þeirra og þá sérlega skeljum frá íslandi, sem og Ævari Jóhannessyni fyrir að mynda skeljar a-d á I. mynd. 107

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.