Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1951, Page 43

Náttúrufræðingurinn - 1951, Page 43
Hermann Einarsson: Síldargöngur í Noregshafi í stríðslok eignuðust Norðmenn tvær korvettur enskar, sem bún- ar voru nýju tæki. Þetta tæki heitir Asdic, og var í stríðinu notað til þess að leita að kafbátum. Nokkrir Norðmenn höfðu hlotið þjálfun í meðferð þessa leitartækis, og þegar lokið hafði verið byggingu liins nýja hafrannsóknarskips, G. O. Sars, var öðru þessara leitartækja komið fyrir í rannsóknarskipinu. Þetta tæki hefur reynzt með af- brigðum vel til Jress að kanna göngur síldarinnar í úthafi, en stjórn þeirra rannsókna liefur norski liskifræðingurinn Finn Devold halt með höndum. Asdic-tækið starfar á mjög svipaðan hátt og bergmálsdýptarmælir, en er frábrugðið að því leyti, að Jrað sendir skáhallt út frá skipinu og með því að snúa Jrví í hring er hægt að leita allt í kringum skijrið. Bergmálsgeislinn, sem Jrað sendir, er um 10 gráður. Gerðar hafa verið ítrekaðar tilraunir til þess að útvega tæki þetta til íslands, en án árangurs. Athuganir Devolds liafa leitt til þess, að menn eru byrjaðir í al- vöru að atliuga möguleikana á að veiða síld í úthafi, en þar elur hún aldur sinn að langmestu leyti. Hugmyndir Jrær, sem hann gerir sér um göngur síldarinnar í Noregshafi eru líka mjög frábrugðnar fyrri tilgátum í Joví efni. Fyrir íslendinga eru rannsóknir þessar hin- ar athyglisverðustu, ekki sízt fyrir þá sök, að einhver hluti norska síldarstofnsins leitar árlega ujrp að norðurströndinni, og er Jiað meira að segja efst á baugi, að norski stofninn myndi ujrjristöðuna í norðurlandssíldinni. Árni Friðriksson liefur verið talsmaður þeirrar skoðunar, að norska síldin leiti til norðurlandsmiðanna úr hafi, komi beint norð- an að, úr hafinu milli Jan Mayen og íslands. Þangað álítur hann síldina berast með hafstraumum, sem um miðbik Noregsstrandar-

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.