Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1958, Page 20

Náttúrufræðingurinn - 1958, Page 20
162 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 6. mynd. Fagrifjörður, Langisjór. Háskanef yzt t. v. Móberg cliffs at Langisjór. Ljósrii.: Guðm. Kjartansson. vera mun myndunarskeið flestra íslenzkra móbergsfjalla, hafi ís- skjöldurinn verið sérlega þykkur yfir Tungnáröræfum. Og fleira ber að sama brunni. I.ega þessa svæðis nærri suðurströnd landsins gerir þetta sennilegt af veðurfræðilegum ástæðum, en auk þess sýna jökulrákirnar á útjöðrum svæðisins (innan þess vantar þær bergtegundir, sem slík merki geta varðveitzt í), að skriðstefna jök- ulsins lá út af því til beggja hliða, t. d. vestur og jafnvel norðvestur yfir Köldukvísl hjá Þórisósi, norður yfir Sprengisand og suðaustur | yfir Síðumannaafrétt (Guðm. Kj. 1955). Um öll Tungnáröræfi er móbergsgrunnurinn smurður jökul- ruðningi og ausinn vikri, svo að varla sér á fasta klöpp nema á há- vöðum, í brattlendi og í gilskorum. Ruðningsmelarnir, sem í grennd við Langasjó eru fádæma snauðir að blágrýtissteinum, eru víðast huldir þykkum vikursköflum í slökkum og á jafnlendi. Vik- urinn er allur svartur (basaltvikur) og næst Langasjó mun mikið af honum ættað úr Eldgjá og fleiri gömlum eldstöðvum í suð-

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.