Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1958, Side 52

Náttúrufræðingurinn - 1958, Side 52
Þór GuÖjónsson: Stórir laxar Það þykir jafnan tíðindum sæta, þegar veiðast risar rneðal dýr- anna. Veiði stóra laxins við Grímsey 8. apríl síðastliðinn vakti að vonum mikla athygli. Óli Bjarnason, sjómaður í Grímsey, veiddi laxinn í þorskanet, er hann hafði lagt um 400 m vestur af eynni. Var netið með 4 þuml. teini. Laxinn var 132 cm að lengd og vóg 49 pd (24i/2 kg) blóðgaður. Má ætla, að hann hafi verið nær 50 pd með blóðinu. Mesta ummál hans var 72 cm. Höfuðlengd lax- ins var tæplega 14 af lieildarlengdinni. Laxinn reyndist vera 10 vetra gamall og hafði dvalizt 4 vetur í fersku vatni, áður en hann gekk fyrst í sjó. Hann hafði hrygnt tvisvar, 7 vetra og 9 vetra gam- all. Laxinum var gotið haustið 1946. Vorið 1951 gekk hann í sjó í fyrsta skipti, þá nál. 16 cm langur. Sumarið 1953 gekk hann í ána til þess að hrygna, og má ætla að hann liafi verið nál. 80 cm að lengd. Sumarið 1955 gekk hann öðru sinni þá nál. 120 cm að lengd. Laxinn hefur gengið til sjávar veturinn 1955—56. Eftir um árs veru í sjó veiddist hann mánudaginn 8. apríl í þorskanet við Grímsey, svo sem fyrr segir, við botn á 16 m dýpi. Laxinn hafði fest sig á hausnum í netinu og vöðlað því utan um sig. Þegar net- ið var innbyrt, var mjög af laxinum dregið. Telja má líklegt, að risalaxinn frá Grímsey, sem almennt hef- ur verið kallaður Grímseyjarlaxinn, sé íslenzkur að uppruna. Hann gæti vel hafa verið úr Laxá í Þingeyjarsýslu, eins og margir hafa getið sér til, því að í þá á ganga óvenjulega stórir laxar. Þegar laxinn gekk í sjó að aflokinni hrygningu, líklega fyrri hluta árs 1956, var hann af svipaðri stærð og stærstu laxar, sem veiðast í Laxá. Lax hefur áður veiðzt við Grímsey, og er greinarhöfundi kunn- ugt um tvo laxa, sem fengizt hafa þar í snurpinætur að sumarlagi. Annar laxinn veiddist af ms. Eldborg frá Borgarnesi í júlí 1938,

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.