Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1990, Blaðsíða 42

Náttúrufræðingurinn - 1990, Blaðsíða 42
tókst að finna forlirfur í þörmum sela- lúsa. Næstu þroskastig ormsins, þ.e. fyrsta, annars og þriðja stigs lirfur, fundust einnig í ýmsum líkamshiutum og líffærum lúsanna, s.s. í hinu opna blóðrásarkerfi, þörmum, klóm og haus en oftast reyndust þær staðsettar í fituvef (Geraci o.fl. 1981). Talið er að smithæfar þriðja stigs lirfur berist til baka í blóðrás selsins þegar lúsin sýgur úr honum blóð. Þar skipta þær tvisvar um ham og þroskast í fullvax- inn, kynþroska orm. Allmargir erlendir aðilar hafa greint frá sýkingartíðni og fjölda hjartaorma í landselum. Við strendur Ameríku reyndist sýkingartíðni í 47 dýrum af undirtegundinni P. v. largha vera 8,5% og í 99 dýrum af undirteg- undinni P.v. richardii vera 17,2% (El- ey 1981). I Norðursjó reyndist sýking- artíðnin í P.v. vitulina árið 1988 vera nokkuð breytileg eða 18,1% í rann- sókn Webers (1988) á 72 selum en 27,5% í rannsókn Schnieders o.fl. (1988) á 102 selum. Könnun á 50 landselum undan ströndum Hollands þremur áratugum fyrr leiddi í ljós nokkru hærri sýkingartíðni eða 50% (van den Broek og Vensvoort 1959). Vegna þess hversu fáir selir voru at- hugaðir hér við land er hæpið að bera sýkingartíðnina við Island (20%) sam- an við ofangreindar niðurstöður. Samanborið við erlendar niður- stöður reyndust fáir ormar (1 - 8) vera í íslensku landselunum. Erlendis hafa allt að 100 ormar fundist í hjarta og lungnaslagæð einstakra landsela (van den Broek og Vensvoort 1959, Con- louge og Foreyt 1980). Að minnsta kosti 50 ormar fundust í hjarta og lungnaslagæð einstakra landsela sem Weber (1988) rannsakaði úr Norður- sjó en þeir drápust í selafári því sem getið er um framar í grein þess- ari. Líklegt er að vanlíðan sela aukist eftir því sem ormarnir eru fleiri og sýnt hefur verið fram á að mikil sýk- ing hafi valdið dauða hýsilsins (Fager- holm o. fl. 1989). Mikill fjöldi orma hindrar eðlilegar hreyfingar hjartans og mynda þeir fyrirstöðu í blóðrás og geta algjörlega teppt hana (van den Broek og Vensvoort 1959, Taylor o. fl. 1961, Dunn og Wolke 1976). Það eru ekki einungis fullorðnu ormarnir í hjarta og lungnaslagæð sem geta hrjáð selina heldur einnig for- lirfustig ormsins. Forlirfurnar, sem geta orðið 4000 talsins í hverjum milli- lítra af blóði (Geraci o.fl. 1981), halda til í blóðrásinni og berast með henni út í háræðanet selsins. Þær berast það- an í lýsnar þegar þær sjúga blóð. Sýnt hefur verið fram á að lendi forlirfurn- ar út úr háræðum í lungum getur það leitt til lungnabólgu (Taylor o.fl. 1961, Dunn 1976). Athuganir á vefjameina- fræði sýktra sela hafa leitt í ljós að for- lirfur orsaka skaðlegar vefjabreytingar í æðaveggjum, lungum, lifur og milta (Dunn 1976). SELALÚSIN ECHINOPTHIRIUS HORRIDUS OLFERS, 1816 Selalúsin fannst á nokkurra vikna gömlum landselskóp (58 cm langri urtu) sem flækst hafði í grásleppuneti og drukknað skammt frá Lundakletti á Breiðafirði um 10. júní 1985 (2. mynd). Kópurinn var sendur til upp- stoppunar á Náttúrufræðistofnun Is- lands þar sem lúsin fannst. Alls fund- ust 10 lýs á trýni kópsins. Alls eru 12 soglúsategundir (Ano- plura) þekktar á hinum ýmsu teg- undum sela. Þær tilheyra allar ættinni Echinophthiriidae sem skipt er í fimm ættkvíslir (Kim 1975). E. horridus er eina lúsartegundin sem fundist hef- ur á landsel (Hopkins 1949). Engar 96
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.