Andvari

Volume

Andvari - 01.07.1962, Page 83

Andvari - 01.07.1962, Page 83
ANDVARI GOÐINN I-'RÁ VALÞJÓFSSTAÐ 193 aði málum þeirra í milli. Fór hann svo utan þetta haust 1281 á sama skipi og Loðinn leppur. Þegar hér var komið hafði mágkona Þorvarðar, Randalín Filipus- dóttir á Valþjófsstað, setið í sorgum, allt frá dauða manns síns. Yfir beinum Odds, undir kirkjugarðsveggnum á Seylu, hvíldi bannfæring heilagrar kirkju. En nú hafði hún með fulltingi Arna biskups Þorláks- sonar fengið leyfi til þess hjá páfanum í Róm að grafa þau upp og flytja í Skál- holt til greftrunar í vígðri mold. Lagði Randalín og margir fleiri fram mikla fjár- fúlgu til aflausnar beinum Odds. Greftr- unin fór svo fram í Skálholti 19. júlí 1279. Þorvarðar er lítt eða ekki getið í sambandi við mál þetta, og verður það því ekki rætt frekar hér. Nú kemur alllangt tímabil, sem Þor- varður hverfur um stund af sviði sögunn- ar og hans er hvergi getið við mál hér á landi eða frá árinu 1281—1288. Vetur- inn 1282—83 er hans getið í Noregi og einnig 1286. Einnig er þess getið, að þar hafi hann kvænzt í annað sinn. Það má því telja öruggt, að í Noregi hafi hann dvalið þessi sjö ár. En haustið 1288 kom hann út hingað á sama skipi og Jörundur Flólabiskup. Magnús konungur andaðist árið 1280, og kom þá til ríkis Eiríkur sonur lians, ungur að aldri. Notuðu ver- aldlcgir höfðingjar í Noregi þetta tæki- færi til þess að rísa gegn valdi kirkjunnar. Þóttust þeir reka konungserindi, og fékk þá hinn ungi konungur viðurnefnið prestahatari. Ekki leið á löngu þar til öldur þeirrar hreyfingar náðu einnig út hingað til íslands. Árið 1282 fór Hrafn Oddsson, merkismaður konungs á íslandi, utan. Kom hann svo aftur út liingað árið 1283 ásamt Erlendi Ólafssyni með kon- ungsbréf þess efnis, að leikmenn, er áður höfðu látið af hendi við biskup kirkjur og staði, sem þeir höfðu erft, skyldu aftur ná eignum sínum. Vorið 1284 hófu svo leikmenn endurheimt staðanna og héldu svo látlaust áfram næstu árin. Kom svo, að um hríð hefur Árni biskup kosið að láta fremur undan síga. En þá sáust á ný veðrabrigði í lofti í þessum málum. Árið 1286 töldu ráðamenn Noregs bættu á ófriði milli Norðmanna og Svía. Var þá stofnað til herútboðs um allt ríki Noregskonungs. Kom þá hingað til lands sendiboði konungs varðandi þetta mál. Arni biskup gerðist stuðningsmaður þessa máls, en hlaut að launum vinfengi konungs. Til ófriðar kom aldrei, en við þetta fékk Árni biskup byr undir vængi og hugðisí nú, eftir boði erkibiskups, að hefja aðgerðir í staðamálum að nýju. En áður en til þess kæmi varð hann haustið 1288 ásamt Hrafni að leggja mál þessi í dóm konungs og crkibiskups. Ekki er vitað hvort Þorvarði Þórarins- syni var skipuð sýsla, er hann kom út 1288. Líklegt er þó, að hann hafi haft völd í Sunnlendingafjórðungi, því að um haustið 1289 er hann búsettur í Arnarbæli í Ólfusi. Árna biskupi var mikið í mun, að komast út til íslands svo fljótt sem auðið var sumarið 1289. En Hrafn vildi ekki hleypa honum á undan sér vegna ólokinna mála. Gat hann komið því til leiðar, að konungur bann- aði biskupi að fara. Var Hrafn þá sjálfur í banni erkibiskups. En hann átti ekki afturkvæmt til íslands, því hann andaðist úti í Noregi þá um haustið. Þar eð Árni biskup komst ekki að þessu sinni til stóls síns, fól erkibiskup Hólabiskupi yfirreið í Skálholtsbiskupsdæmi, og skyldi hann m. a. heimta staði úr höndum leikmanna og afhenda prestum. Idóf svo Jörundur I Iólabiskup yfirreið um Skálholtsbiskups- dærni austan frá. Runólf ábóta, umboðs- mann Árna biskups, hitti hann svo í Hornafirði. I byrjun október komu þeir að Arnarbæli í Ölfusi, en þar bjó þá Þor- varður Þórarinsson. Tók hann á móti 13
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.