Andvari

Árgangur

Andvari - 01.07.1962, Síða 84

Andvari - 01.07.1962, Síða 84
194 SIGURÐUR SIGURMUNDSSON ANDVAUl þeim höfðinglega og var þeim búin fögur veizla. Þarna var svo háður sáttafundur um staðinn Garða á Alftanesi og segir, að herra biskupinn og Þorvarður hafi átt góðan hlut að. Það sem hér er sagt bendir ótvírætt í þá átt, að nú þegar Þorvarður er kominn aftur út sem valdsmaður kon- ungs eins og síðar kemur fram, hafi hann séð, að baráttan um staðamálin varð að taka enda, því hafi hann kappkostað að ná sættum og bjóða höfðingjum kirkj- unnar frið. En friðurinn átti þó enn nokkuð langt í land. Umboðsmaður Árna biskups hafði nú í tvö ár framfylgt kröfum kirkjunnar yfir leikmönnum í staðamálum. Sumarið 1291 kom svo Árni biskup til landsins og lét greipar sópa um staði og gaf nú prest- um flestallar kirkjur í umdæmi sínu. Þessar aðfarir hafa leikmönnum sviðið sáran, og hafa nú að kappi búið sig undir gagnsókn. Var þá ekki í annað hús að venda en til konungsvaldsins. Eftir frá- fall Hrafns Oddssonar stóð Þorvarður Þórarinsson einn uppi af höfðingjum hinnar síðustu lýðveldiskynslóðar. Það vill nú svo til, að eftir áliti dómbærs manns megi telja sannað, að hann hafi verið merkismaður eða hirðstjóri konungs frá því um 1290 til dauðadags 1296. Undir Iians forustu hófu nú leikmenn átök um staðamálin að nýju. Árangur þeirrar atlögu var sá, að árið 1292 komu tveir íslenzkir herramenn, hvor úr sínu biskupsdæmi, með konungsbréf því nær sama efnis og þeir Idrafn og Erlendur komu með 1283. En þar stóð, að allir þeir staðir, er ranglega voru úr höndum leikmanna teknir, skyldu aftur undir þá hverfa. Árið eftir, 1293, greina svo ann- álar frá því, að lcikmenn taki staði víðs- vegar um landið með valdi herra Þor- varðar Þórarinssonar. Árið eftir, 1294, eru svo margir fyrirmenn íslendinga staddir í Noregi. Væntanlega hefur þá konungur fengið nákvæmar skýrslur um það hverju fram fór í staðamálunum á Islandi. Allir þeir menn komu út næsta vor 1295. Styrjöldin um staðamálin á Is- landi hafði, þegar hér var komið, staðið um aldarfjórðung. Þar gekk á ýmsu, og völdin færðust til á milli leikmanna og kirkjuvalds sem víglína á milli skotgrafa. Leikmenn höfðu nú unnið það á í síð- ustu átakahrinunni, að árið 1295 hafa þeir knúið forvígismenn kirkjunnar til sættar eða samkomulags Einn annáll get- ur þess, að út Iiafi komið sterk konungs- bréf máli leikmanna til styrktar. Er það vitanlega árangur af utanferð höfðingj- anna árið áður. Annar annáll getur þess, að haldinn hafi verið fundur í Stafaholti, þar sem konungsbréfin og staðamál hafa verið tekin til meðferðar. Árna biskups er eins gctið af fundarmönnum. En eitt- hvað hefur máðst út og er ólæsilegt í málsgreininni. Enginn vafi getur á því leikið, að hér hefur verið um að ræða mikilvægan fund kirkjuvalds og leik- manna um staðamál. Ekki getur heldur leikið á tveirn tungum, að þar hafi komið til móts við biskupinn fremsti maður leik- manna og hirðstjóri konungs á íslandi, Þorvarður Þórarinsson. Þriðji annállinn segir, að sætt hafi tekizt á þessu ári á milli Árna biskups og almennings í landinu. Að því hefur dómbær maður fært full- gild rök, að slík sætt hafi hvergi getað farið fram nema á alþingi,1) og hafi því verið beint framhald af fundinum í Stafa- holti. En til þcss að sættin fengi fullkomið lagagildi, varð erkibiskup að samþykkja og staðfesta fyrir hönd kirkjunnar, en konungur aftur sem æðsti fulltrúi hins veraldlega valds. Allir annálar geta þess, að Þorvarður Þórarinsson hafi farið utan árið 1295 og einnig tveir aðrir höfðingjar honum handgengnir. Þótt heimildir ged 1) Björn Þórðarson: Síðasti goðinn.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Andvari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.