Andvari

Volume

Andvari - 01.10.1963, Page 121

Andvari - 01.10.1963, Page 121
ANDVARI DULMÁL HAMÐISMÁLA 239 og mun Gudmund Schiitte hafa bent einna skilmerkilegast á það. Með þessum ummælum er ekki sagt að líta megi á Hamðismál sem níðrit eða sögufölsun, því að það er ekki skoðun mín, — og heldur ekki það, að ég væri til þess búinn að skrifa undir kenningar Schuttes að mestu; en vel gæti ég trúað, að þeim hafi verið, yfirleitt, of lítill gaumur gefinn — að sínu leyti líkt og rannsóknum Barða Guðmundssonar um uppruna íslendinga og uppruna Njálu. Njála, Ljósvetninga saga og Olkofra þáttur cru að kenningu Barða öðrurn þræði dulbúin áróðursrit (níðrit), en sögufölsunarkenndur áróður í Þorgils sögu skarða. Einhverjum kynni að þykja kenning mín um dulmál I Iamðismála ósennilegri fyrir þær sakir, að þau eru ekki táknræn atriði fyrir atriði (allegóría), en það er ein- mitt langt frá að dæmisögur séu flestar allegórískar; líkingaratriðið er olt bara eitt (t. d. flestar dæmisögur Jcsú); aðrar eru dálítið allegórískar, og það tel ég Hamðismál vera. Og ekki þurfti þar að leggja áherzlu á það, hver hjónabönd Guðrúnar höfðu verið, því að sagan var alkunn. — Líta má á ófarir Jörmunreks sem hrakspá Þjóðreki, jaðrandi við galdra. í sambandi við það, sem hér að framan greinir um viðhorf Herúla (Italíu-Erúla) við Theoderic og umræðu Hamðismála frá því sjónarmiði, á það heima að gera athugasemd um atriði, scm Eddu-fræðinga hefur ávallt furðað nokkuð á: Theoderics er sama sem ckki getið í Eddu-kvæðun- um. í ljósi þess, er að framan hefur verið rætt: 1) um skipti Theoderics við Herúla, og 2) hin miklu líkindi þess, að Hamðis- mál — og þá ekki ósennilega fleiri hetju- kvæði Eddu — séu frumorkt með Herúl- um, — þá hættir þetta að vera nokkurt undrunarefni. ldve lengi andúðin á Theo- deric hefur enzt með frumhöfundum hetjukvæðanna verður að sjálfsögðu ekki vitað um, — en það gæti hafa verið öld- um saman, þó að sennilega hafi verið með öllu gleymd, þegar hin seinni hetjukvæði voru ort eða endurort. Sjálfsagt tel ég, að Hamðismál hafi flutzt til Norðurlanda með þeirri leif Erúla-þjóðarinnar sem þangað fluttist í byrjun 6. aldar — og nærri þvi eins sjálf- sagt, að hún hafi þá flutt með sér flest eða allt, scm þá var til af merkari kvæð- um hetjusagnaefnis í fórum germanskra þjóða í Mið-Evrópu, cn þar áttu Erúlar allvoldugt ríki cftir dauða Attila. Hníga sterk rök að því, að ekki séu heldur aðrar þjóðir til þess hklegri — og ckki einu sinni eins líklegar og Erúlar — að hafa ort slík kvæði. Að því stuðlar m. a. hinn umbyltingarsami ferill, hið hrikalega mót- læti. Að lokum skal þess minnzt, að Thco- deric átti einnig vinsamleg skipti við Er- úla — þ. e. a. s. ríki þeirra eða konung. Eru til, orðrétt, úr safni Cassiodorusar, sem um skeið var hægri hönd Theoderics við stjórnarstörfin, tvö bréf frá Theoderic til konungs Erúla, en þess hins vegar ekki getið hvar sá stórhöfðingi hafi verið til húsa. Var lengstum talið sjálfsagt að hann hefði verið konungur í Llngverjalands- ríki Erúla, sá, er seinna féll fyrir Lang- börðum í orustunni, er sundraði Erúlum þess ríkis, en það leiddi til þegar umrædds heimhvarfs hluta þjóðarinnar með kon- ungaættina í fararbroddi. Þá var ekki gert ráð fyrir öðru en að öll Erúla-þjóðin helði verið í þjóðflutningaflakkinu. Með 20. öldinni komust flestir eða allir norrænu- fræðingar, er létu sig málið skipta, á þá skoðun, að Flakk-Erúlar hefðu aðeins verið hluti Erúla-þjóðarinnar — stofninn hefði orðið eftir heima á Norðurlöndum — líklegast í Danmörku, og að þar hefðu þeir jafnvel enn átt ríki um 500 e. Kr. og að til þess ríkis muni hin hcimhverfandi leif hafa ætlað sér að leita athvarfs.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.