Andvari

Årgang

Andvari - 01.06.1964, Side 7

Andvari - 01.06.1964, Side 7
ANDVAHI ANNA BORG 5 ,,Út í heiminn" þýddi auðvitað fyrst og fremst — til Danmerkur, þar sem Anna Borg hlaut menntun sína, þjálfaði sig í list sinni og rnætti örlögum sín- um, viðfangsefnum og mikilli hamingju í einkalífinu. En fyrst kom hún samt fram á íslandi, því það virðist hafa verið ákveðið frá því fyrsta, að leikkona skyldi hún verða, þó að hún yrði afhuga leiklistinni skamma hríð á unglingsárunum. Það er athyglisvert, að hún var sviðsvön frá tveggja ára aldri og með í leik- húsinu. Oft voru börn í þeim leikritum, sem áhugaleikarar léku með frú Stefaníu, og fyrst og fremst voru þau valin úr barnahóp hennar. Anna Borg man sjálf frá fimm ára aldri eftir ótta sínum við að sofna í raun og veru, þegar hún var litla stúlkan, sem kastað er í fossinn i „Fjalla-Eyvindi". í atriðinu áður en ósköpin gerast, liggur bamið sofandi á sviðinu, og þá valt á fyrir hana að láta ekki hlekkinguna svæfa sig. Leikrit Jóhanns Sigurjónssonar gengur reynd- ar eins og rauður þráður gegnum list Önnu Borg, frá barnshlutverkinu til frum- raunar hennar í Konunglega leikhúsinu, unz hún loks 1955 kom fyrst fram sem leikstjóri í Leikhúsi útvarpsins einmitt í þessum stóra og sterka, íslenzka harmleik. Fyrsta langferð Önnu Borg lá þó ekki til Kaupmannahafnar, heldur Kanada, en móður hennar hafði verið boðið þangað til að leika sem gestur um nokkurt skeið hjá íslendingum í Winnipeg. Þetta var skömmu eftir heimsstyrjöldina fyrri, og þegar rnóðir Önnu gaf henni leyfi til að fara með, ef hún yrði dugleg að læra hlutverkin sín, féllst hún strax á það, þótt hún skrifi, að hún hefði einmitt um þetta leyti ákveðið að verða ekki leikkona. „Svo lengi, sem eg mundi, hafði eg verið við leikhúsið, nú var nóg komið að mér fannst." Það varð aldrei nóg. Leikhúsið er ekki aðeins draumaheimur, en líka ófreskja, sem gleypir börn- in sín — vill helzt eta þau upp til agna, og aðeins sárfáir komast óskaddaðir gegnum sigrum krýnt leikhúslíf. Anna Borg var þess rnegnug, eins og við mun- um sjá, en hún var líka ein af þeim sterku og sjaldgæfu. Og lengi átti leikhúsið h'f hennar allt. Á íslandi kom hún fyrst fram í stóru hlutverki 1925, en áður hafði hún verið með í mörgum þvðingarmiklum hlutverkum frá Maríu í „Heimilinu" til Signu í „Veizlunni á Sólhaugum". Frú Stefanía var orðin formaður leikfélagsins í Reykjavík, sem varð vísir að Þjóðleikhúsi Islands, er fékk sína nýju rnyndar- legu hyggingu vorið 1950, en við vígslu þess auðnaðist Poul Reumert að af- henda styttuna eftir Jens Locher af Önnu Borg í genú Valborgar í leikriti Oehlenschlágers sem gjöf frá danska leikarasambandinu. — Hinn dugmikli framkvæmdastjóri, frú Stefanía, bauð 1925 Adarn Poulsen sem gesti til íslands. Hann lék þá prinsinn í „Einu sinni var" eftir Holger Drachmann og Lange-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.