Andvari

Árgangur

Andvari - 01.06.1964, Síða 8

Andvari - 01.06.1964, Síða 8
6 SVEND KRAGH-JACOBSEN ANDVARI Miiller. Anna Borg var prinsessa hans. Honum virtist hún hafa svo ótvíræða hæfileika, að hann stahk upp á, að hún færi til Kaupmannahafnar til að leita frekari menntunar við leiklistarskóla Konunglega leikhússins. í fyrstu virtist ómögulegt að framkvæma þessa hugmynd. Anna Borg var svo ung, að foreldrum hennar fannst ekki rétt að senda hana eina til Kaupmannahafnar, þó varð þetta úr eftir fáa mánuði. Reyndar fór hún ekki ein af stað. Um árabil hafði frú Stefanía þjáðst af gallsteinum. Nú var ákveðið að senda hana til sérfræðinga í Kaupmannahöfn til aðgerðar. Síðari hluta sumars 1925 fór Anna Borg suður á bóginn með móður sinni. Danski sendi- herrann á Islandi, Frank le Sage de Fontenay, gekkst fyrir umsókn hennar um upptöku í leiklistarskólann. Móðir hennar var lögð á Finsens sjúkrahúsið, og þar dó frú Stefanía 16. janúar 1926. Alla þá mánuði, sem á undan fóru, skipti Anna Borg sér milli leikhússins og sjúkrahússins. Á námsárum sínum varð hún að ganga gegnum það erliðasta, sem komið getur fyrir leiklistarmann: Flún varð að taka upp nýtt mál. Að vísu hafði hún þegar lært dönsku í skólanum á ís- landi, en eitt er að tala mál svo það skiljist, annað — og margfalt erfiðara — að tileinka sér nýtt mál, svo að það verði eðlilegt tæki til listrænnar tjáningar. Aðstöðumunurinn er gríðarlegur. Aðeins sárfáir sigrast á honum. Anna Borg barðist við framburðinn, við málfræðina, við að fá danska hljóðrofið á réttan stað, útrýma íslenzka tungubrodds errinu og finna blæbrigðin milli hinna óskýru dönsku sérhljóða. Hún, sem hafði þroskazt við frjálsræði heima hjá sér í Reykja- vík, varð innibyrgð þessi þrjú ár á leiklistarskólanum. Hún færðist undan sam- vístum við félaga sína fyrstu árin, af því henni fannst hún vera utanveltu og ekki óhult í þessum fjöruga félagsskap. Og hún þorði ekki að umgangast of marga ís- lendinga, af því að henni fannst það aðalverkefni sitt að leggja rækt við dönsk- una og þorði því ekki að láta eftir sér þá auðveldu ánægju að tala íslenzku við landa sína. Það var danskur framburður, sem hún vildi sífellt hlýða á og læra. I fyrstu hafði hún reyndar móður sína sér til huggunar, þótt hún sæi, að kraftar hennar fóru smám saman þverrandi. Daglega lá leið hennar frá gistiheimilinu til leikhússins og áfram til sjúkrahússins. Vitni um ótaldar stundir, sem hún dvaldi þögul við sjúkrabeð móður sinnar, er postulínsstellið, sem hún málaði þar. Til einhvers varð hún að nota hendurnar. List varð það að vera. Anna Borg lærði að mála postulín, og það er fallegt að sjá í dag, hvernig gleði hennar af náttúrunni — blómunum — fékk útrás í málverkinu. Seinna bætti hún út- saumi sem tómstundaiðju við kunnustu sína. Þegar hún fékk ekki eins mikið að gera í leikhúsinu og hún gjarnan vildi, og þegar hernámsárin kröfðust starfs til að hvíla taugarnar, komst hún líka svo langt á þessu sviði, að hún náði valdi yfir smásporasaumnum, svo að í honum sást speglast smekkur hennar og gleði
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144

x

Andvari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.