Andvari - 01.03.1968, Page 57
ANDVARI
GUÐIR OG SELIR í TRÚARBRÖGÐUM ESKIMÓA
55
Eskimóar í Alaska héldu dansleiki til aS fagna góðri veiði. Myndin er tekin í leiðangri
Knud Rasmussens 1921—23.
Eskimóa. Það er engu líkara en öll boð og bönn séu þá ielld úr gildi um hríð,
— begar nauðsyn ekki krefur. Með haustinu vaknar aftur óttinn við hinn kalda
vetur, og þá er þakkað fyrir það, sem mönnunum hefur hlotnazt yfir sumarið,
og jafnframt lögð drög að því, að hið gjöfula sumar komi aftur næsta ár. Menn
eru aldrei vissir um, að árstíðirnar fylgi hver annarri, enda þótt þær hafi gert
það svo lengi, sem elztu menn muna. Brjóti mennirnir eitthvað það af sér, sem
máttarvöldin vilja ekki fyrirgefa og verða ekki heldur knúin til að fyrirgefa,
getur svo farið, að veiðidýrin hverfi með öllu, bæði selirnir í sjónum og hrein-
dýrin á landi, og þá bíður allra bráður dauði af hungri og harðrétti.
Hausthátíðirnar fara venjulega fram með þeim hætti, að fólkið safnast saman
til þess að eta. Yfir sumarið hafa hóparnir verið dreifðir víðs vegar um landið
í leit að hreindýrum. Nú er komið aftur til hinna gömlu staða, þar sem sitja
skal um veturinn. Farið er í ýmsa leiki, og eru hinir merkustu ritúal-leikir. Er
Sedna kölluð fram, og er hún leikin. Ráðizt er á hana og hún felld sem tákn