Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1978, Page 60

Andvari - 01.01.1978, Page 60
58 THEODORE M. ANDERSSON ANDVARI því að honum dettur ekki í svipinn neitt annað betra í hug. Mestu máli skiptir, að Hektor er ekki að brynja sig upp sem hetja, heldur reynir hann að sefa harm Andrómökku. Það sem hann bæði gerir og segir í þessu skyni er meira virði en allt feigðartal. Aldrei mundi söguhöfundi detta í hug að tala um Andrómökku eins og hér er gert, þegar segir, að Hektor léti son sinn í fang sinnar „kæru konu“, og þá mundi það á mælikvarða sagnanna ekki síður þykja næstum sjúkleg viðkvæmni, þegar Andrómakka er látin hlæja með tárin í augunum, en í því felst í senn gleði hennar yfir drengnum og kvíði vegna eiginmannsins, blandin geðshræring, þar sem barnið er henni annars vegar sárabót í yfir- vofandi missi, en gerir hann þó jafnframt enn sárari. f orðum Hektors fer saman nærgætni hans og væg áminning um þá kvöð, sem skyldan leggur á mann, en þessu blandast svo e. t. v. ótti um, að Andrómakka kunni að láta bugast, og bezta ráðið til að styrkja hana sé að fá henni ærið að starfa heima fyrir. Þótt ekki sé kveðið nákvæmlega upp úr um áhyggjur þeirra, leikur enginn vafi á, að þau skilja hvort annað. Þau tala eina og sömu tungu, og þar fer ekkert á milli mála. I íslenzkum fornsögum fer svo að jafnaði um elskendur, þegar þeir kveðj- ast, að þeir ná alls ekki sambandi. Hektor neitar ekki, að honum sé háski búinn, en í Hávarðar sögu gerir Ólafur markvisst lítið úr þeirri hættu, sem við blasir. Hann er allur með hugann við vígstöðu sína, en bregzt Sigríði og lætur sig engu skipta áhyggjur hennar. Því fastar sem hún knýr á, því meir snýst allt um hetjuskap hans sjálfs, hann er sem dáleiddur í þeirri afstöðu, sem hann hefur tekið, og það svo, að henni finnst sem hún verði að standa með honum í þessu og dást að ungæðishreysti hans. Sá vandi, sem henni verður á höndum, missi hún hann, hvarflar ekki að honum, þar kemst ekki annað að en tilhugsunin um að æðrast hvergi. Skilnaður Helga og Tófu Hlíðarsólar er ekki alveg eins kuldalegur, en stuttaralegri. Hvorugt þeirra segir nokkuð, en Tófa grætur, og kemur það ekki lítið flatt upp á þrautreyndan sögulesanda. Hvernig tekur nú Helgi þessu óvænta sjónarspili? Hektor klappar konu sinni og kann að haga orð- um, þegar hann telur í hana kjark og leggur á ráðin um, hvað henni sé fyrir beztu. Helga hugkvæmist hins vegar ekkert annað en gefa Sigríði gott belti og hníf. Hómer er oss meira að skapi, og orti hann þó kvæði sín tveimur þúsund- um ára fyrr en sögurnar voru ritaðar. Fornsagnakapparnir vilja naumast kannast við það líf, sem hetjur Hómers lifa, og þar sem vér teljum, að slík afneitun fái ekki staðizt, og oss því næst að halda, að tilraun í þá átt leiði til afstöðu, sem á séu dauðamörk, er eins víst, að oss f.alli betur hetjuandi Hómers, hann veki með oss sterkari enduróm, þótt fenginn sé með veikari áslætti. Finnbogi Guðmundsson þýddi.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.