Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1978, Side 73

Andvari - 01.01.1978, Side 73
FJNNBOGI GUÐMUNDSSON: Um Gunnarshólma Jónasar og 9. hljómkviðu Schuberts Eitt sinn fyrir löngu, er ég hlýddi á 9. hljómkviðu Schuberts, hina síðustu og hina miklu eins og hún hefur verið kölluð, kom mér ósjálfrátt í hug kvæði Jónasar Hallgrímssonar, Gunnarshólmi, fannst þar kenna andlegs skyld- leika, þótt annað verkið væri í orðum, en hitt í tónum. Ég gerði það þá að gamni mínu að lesa kvæðið við óminn af fyrsta þætti hljómkviðunnar, og féll það að mér fannst mætavel saman. Ekki varð þó af því þá, að ég kannaði umrædd verk frekar eða reyndi að átta mig betur á skyldleika þeirra, hvort hann væri hugboð eitt eða til hans lægju nokkur rök, ef eftir þeim væri leitað. Fyrir nokkrum árum barst mér í hendur bók prentuð í London 1972, eftir enskan mann, John Reed, um síðustu ár Schuberts, og þegar ég fór að skoða hana, sá ég, að hún fjallaði m. a. rækilega um 9. hljómkviðu tón- skáldsins, en það vakti að nýju forvitni mína. Ég mun nú lýsa að nokkru tilorðningu Gunnarshólma og hljómkviðunn- ar og þá fyrst kvæðis Jónasar. Jónas Hallgrímsson kom heim til íslands vorið 1837 eftir nær fimm ára dvöl í Kaupmannahöfn. í skýrslu á dönsku um fimm sumarferðir um Is- land á árabilinu 1837—1842 getur Jónas þess, að ferðin 1837 hafi verið fyrsti rannsóknarleiðangur hans og hafi hann verið farinn sem liður í námi hans °g án opinbers styrks. Jónas hélt frá Kaupmannahöfn 18. maí og kom til Vestmannaeyja 3. júní, en þar var hann hálfan mánuð. Hefur hann lýst í dagbók athugunum sínum á eyjunum, myndun þeirra, fuglalífi o. fl. Þegar sr. Tómas Sæmundsson frétti um ferðir Jónasar, fór hann út í Eyjar og sótti hann, bauð honum að dveljast með sér á Breiðabólstað í Eljótshlíð. Kemur þetta fram í bréfi Tómasar Sæmundssonar til Konráðs Gíslasonar 21. ágúst 1837. Jón Helgason prestaskólakennari og síðar biskup, dóttursonur Tómasar, gaf út bréf hans 1907, og segir hann neðanmáls í athugasemd við umrætt bréf: ,,Ekki er ólíklegt, að séra Tómas hafi í leiðinni frá sjónum upp að Breiða- bólstað lagt leið sína um „hólmann, þar sem Gunnar sneri aftur“, sem er
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.