Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1980, Side 83

Andvari - 01.01.1980, Side 83
andvahi I MINNINGU GUTTORMS 81 myndum og grimmdarferli nasista, en jafnframt býr verkið yfir víðari skírskotun - ádeilu á kúgun og harðstjórn hverju nafni sem nefnist. I hinum hreinræktaðri heimspekilegu leikverkum glímir Guttormur við marg- víslegar tilvistarlegar gátur mannlegs lífs. Hann teflir einatt saman ólíkum þáttum mannlegs eðlis, persónugerðum og táknfærðum á ýmsa lund. Ef til vill er „Hringurinn" best gert þessara leikrita og sterkast allra leikverka Guttorms. „Saga“ leiksins er einföld, lýsir villu, hringgöngu fjölskyldu í snæviþöktum eyðiskógi þar sem að lokum bíður hennar ekki annað en tortíming og dauði. I táknmáli sínu er þessi mynd sterk og óhugnanleg - lýsir eilífri hringför kynslóðanna um frumskóg tilverunnar. Jafnframt eru sviðsmynd og orðræður þessa leiks raunsæilegri en í flestum öðrum leikritum Guttorms. Flest eru leikrit Guttorms stutt og mestui hluti þeirra einþáttungar. Dramatískur veikleiki þeirra eru all-langdregnar orðræður persóna. Oft fer fremur fram heimspekileg rökræða en lifandi orðaskipti venjulegs fólks. A sinni tíð fólst ferskleiki þeirra fyrst og fremst í afneitun hins natúralíska leikhúss og blæ þess nýstárleika halda þau enn þó að áratugir séu liðnir frá ritun þeirra. Ótvírætt benda þau í átt til nútímalegrar leikritunar fremur en ýmis þau raunsæisverk er fram komu á svipuðu skeiði. Það væri verðug tilraun fram- sæknu leikhúsfólki á okkar dögum að dusta rykið af einhverjum leikrita Gutt- orms og sjá hversu þau gengju á sviði. VI Auk ljóða og leikrita samdi Guttormur ýmsa þætti í lausu máli, einkum ferða- minningar og ævisögubrot. Fyrir nokkru sendu erfingjar Guttorms Landsbókasafni íslands að gjöf bréfa- safn hans mikið að vöxtum ásamt nokkrum prósaþáttum hans og fáeinum kvæða- handritum. Er þarna mest að vöxtum handrit Guttorms að nokkrum æviminn- ingum og eru tvær þeirra birtar í þessu hefti Andvara. Frásagnargleði Guttorms og sérstætt og persónulegt skopskyn njóta sín vel í lausu máli þó að þeir þættir, sem hér birtast séu af öðrum toga: annar dæmi um átakanlega harmsögulega reynslu - raunsæ mynd úr lífi íslensku landnemanna vestra - hinn frásögn af skógarvillu sem vel gæti verið ein rótin að leikriti hans ,,Hringnum“. Þegar litið er á höfundarverk Guttorms í heild sinni blasir það við að sem ljóðskáld stendur hann undir merkjum hefðbundinnar íslenskrar ljóðagerðar 19. aldar. Hugmyndalega er hann annars vegar mótaður af þjóðernisrómantík tíma- bilsins, hins vegar af sósíalískum og raunsæilegum þjóðfélagslegum ádeilukveð- skap. Myndmál hans og bragform eru einnig mörkuð sömu íslensku hefð. Sem ljóðskáld gerðist Guttormur ekki frömuður nýjunga þrátt fyrir kynni sín af er- lendum - einkum engilsaxneskum - bókmenntum. Hann verður varðveislumað-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.