Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.1999, Blaðsíða 44

Andvari - 01.01.1999, Blaðsíða 44
42 VÉSTEINN ÓLASON ANDVARI Þar sem Einar Ólafur fjallar um þróun bókmenntagreinarinnar vísar hann (bls. 162) til bókar sinnar Sturlungaöld. Drög um íslenzka menningu á þrettándu öld (1940). Ljóst er af orðum hans að skoðanir hans á þeirri öld sem ól flestar sögurnar af sér eru í grundvallarat- riðum óbreyttar aldarfjórðungi eftir að bókin um Sturlungaöld birt- ist. í þeirri bók er dregin upp mjög skýr mynd af hugmyndum Einars Ólafs um heim sagnanna, heiminn þar sem þær urðu til, og um leið má segja að bókin birti hugmyndafræði hans í hnotskurn. Hvort tveggja er að þessi bók er eitt hið merkasta framlag til íslenskrar menningarsögu á öldinni og jafnframt leiðir hún skýrt í ljós þjóðern- isleg viðhorf sem eru allfjarri flestum fræðimönnum við árþúsunda- mótin. Saga menningar og bókmennta Bókin um Sturlungaöld er, eins og gerð er grein fyrir í formála, orðin til upp úr vinnu höfundar við að semja II. bindi af verkinu Um Njálu (ix), en þegar útgefandi I. bindis, Menningarsjóður, vildi ekki þiggja framhaldið, tók rannsóknin aðra stefnu, og ritið fékk almennara inn- tak. Á titilblaði stendur að kostnaðarmenn útgáfunnar séu „Nokkrir Reykvíkingar“. Hér verður ekki reynt að rekja þá sögu sem að baki býr, en sennilegt má telja að þessi útgáfusaga tengist ágreiningi við hinn volduga forstöðumann Menningarsjóðs, Jónas Jónsson frá Hriflu. Formálinn er annars merkur fyrir það m.a. hve afdráttarlaus afstaða kemur þar fram þegar í upphafi til þess efnis sem um á að fjalla: „. . . tvo síðustu mannsaldra hins forníslenzka þjóðveldis . . . á ofanverðri 13. öld, þegar fornmenningin hrynur í rústir,“ segir höf- undur, og er ekki laust við að orðalagið skjóti skökku við þá vísinda- legu hlutlægni sem Einar Ólafur leggur mikið kapp á að fylgja í flest- um ritum sínum. í upphafi Forspjalls, sem tekur við af formála, er orðalag í senn skáldlegt og tilfinningaþrungið: Síðasta öld þjóðveldistímans er eigi aðeins eitthvert hið örlagaríkasta tíma- bil, sem yfir ísland hefur komið, heldur einnig eitthvert merkilegasta tíma- bilið í menningarsögu þess. Hvert mannsbarn minnist hins mikla gæfuleysis, þegar landsmenn gengust undir erlent vald; sú mikla harmsaga leggur sinn sorgarblæ yfir allar hugmyndir vorar um þessa öld. En henni er þó ekki gefið þetta eitt að sök. Hún er einnig kunn að mörgum ódáðum, ófriði, hryðju- verkum, manndrápum og brennum, svikum og siðleysi. Köld og gnúpleit og grimmleg er hún á svipinn, þar sem hún stendur fyrir hugskotssjónum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162

x

Andvari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.