Andvari - 01.01.1958, Blaðsíða 34
30
Níels Dungal
ANDVABI
stjórnarfari voru. Hann var kosinn á þing fyrir Húnvetninga,
en sat aðeins á Alþingi 1914—1915 og hafði heldur litla ánægju
af því. Einhvern veginn féll honum ekki sá félagsskapur, m. a.
af því, að það átti engan veginn við hann að vera flokksbund-
inn og þurfa að fara eftir flokkssamþykktum, hvað svo sem
vit hans og samvizka sagði.
Jafnframt öðrurn störfum hugsaði hann mikið um stjómar-
far og pólitík á ámnum eftir fyrri heimsstyrjöldina, enda var þa
mikill órói á stjórnmálasviðinu í Evrópu og mikið rætt um breyt-
ingar til bóta á stjórnarfari. G. H., sem daglega var á lands-
bókasafninu, var sílesandi, þegar hann var ekki skrifandi, og
komst yfir að lesa ótrúlega rnikið af alls konar bókurn og tínia-
riturn, horfðist í augu við galla þingræðisskipulagsins eins og
það var framkvæmt hér og fylgdist með þeirri miskunnarlausu
gagnrýni, sem það sætti á þeim árum frá mörgum hugsandi
mönnum, víðsvegar um heim. Loks gat hann ekki orða bundizt,
svo að hann skrifaði margar og langar greinar í Morgunblaðið
urn þetta efni snemma á árinu 1926, sem seinna kornu út ser-
prentaðar í bæklingsformi 1926 undir nafninu „Út úr ógöng-
unum".
Þessar greinar vöktu allmikla athygli, því að þar var glöggt
sett fram, hvemig þingræðið hefði gefizt, allt frá fornöld til
vorra daga. Það gat verið gott, þegar góðir menn réðu, en afleitt
í höndum lélegra manna, sem eyðilögðu það, sem aðrir höfðu
byggt upp. Raunverulega ræður almenningur engu, heldur
flokkarnir, og ekki heldur þeir, heldur foringjar þeirra, sem
marka stefnuna og þvinga flokksmenn sína til þess að fylgj11
sér. Foringjarnir ráða framboðum og er ekkert sérlega um það
gefið að fá beztu mennina á þing, því að þeir gætu orðið keppi'
nautar um forustuna. Til að þóknast kjósendum er fé ausið
í þá með ýmsu móti af stjórn og þingi, og ekki fer hjá því, að
skattar aukast æ meir, teknir af þeim, sem bjargálna eru og
einhverja framtakssemi hafa sýnt, en lagðir á af þeim, sem
duglegastir voru að skruma fyrir kjósendum. Ekki er nauðsyn-