Andvari - 01.01.1906, Blaðsíða 114
108
Fiskirannsóknir. 1905.
austanfjalls varð yfirleitt ekki vart við þorskgöngur
fyr en eftir miðjan mánuðinn.
1903 urðu botnvörpungar ekki varir við fisk í
flóanum snemma í febrúar og það er fyrst 17. eða
18. marz, að vart verður í net í Garðsjó og næstu
daga þar á eftir er fiskur kominn undir Vogastapa.
Fiskur gekk mjög mikill í flóann þessa vertíð. Hve-
nær hann byrjaði að hrygna, fekk eg enga vitneskju
um, en hann var að hrygna fram til loka, því að af
þorski þeim, er aflaðist í net í Þúfuál 3. maí, var
margt ógotið, og nokkuð margir ógotnir, er öfluðust
þar 10. s. m.
1904 var ágætisafli í Akranesforum allan febrúar,
að nokkru leyti fullvaxinn þorskur. Eg sá nokkuð
af íiski þessum öðru hvoru, en hann var ekki með
fullþroskuðum hrognum. Síðan var aflalaust í flóan-
um fram í miðjan marz. Afli var svo mjög góður
siðari hluta marz og apríl, og um miðjan apríl stóð
hrygningin sem hæsl. Fiskur, sem var að byrja að
ganga á Selvogsgrunni þegar skipin komu þangað út
um miðjan marz, var allur sagður ógotinn. Porskur,
veiddur á Sviði 10. maí, 90 cm. langur, hafði 24 cm.
langt hrogn, það var laust, o: fiskurinn var að byrja
að gjóta.
1905. 23. febr. skoðaði eg í þorsk, sem seldur
var úr botnvörpung; hafði hann veitt fiskinn á
Eldeyjagrunni fáum dögum fyrr. Hrognin liöfðu þá
náð fullri stærð, en engin voru farin að losna, o:
voru ekki fullþroskuð.
Frá marz byrjun hafði eg gott tækifæri til að
fylgjast með hrygningu þorsksins, þar eð botnvörpu-
skipin, er öflnðu fyrir »Edinborg«, fluttu altaf öðru
hvoru fisk í land, er eg átti kost á að skoða. Fyrst
reyndu þau i flóanum 7. marz, en þá var þar eng-
an íisk að fá. Fiskuðu þau því fram lil 20, mest á