Andvari - 01.01.1906, Blaðsíða 152
146
Fiskirannsóknir 1905.
voru á »Thor« á Skagafirði. Fitan var 25°/o, mælt á
fituvog Bulls1.
Menn eru nú farnir að sjá það, að minsta kosti
á Norðurlandi, að reknetaveiðarnar geta orðið arð-
vænn atvinnuvegur og ekki stopulli en aðrar iiski-
veiðar. Jón kaupm. á Raufarhöfn segir svo í bréfi
til mín: »Eins og nú er orðið ástatt hér fyrir Norð-
urlandi með þorskveiðar, þá álit eg reknetaveiðina
langtryggasta og bezta; auðvitað geta ináske komið
síldarleysis ár, en í 9 ár, sem við erum búnir að
vera hér, hefir það aldrei brugðizt að síld hafi kom-
ið og maður getur nærri því sagt, bæði jafnmikið á
hverju ári og á sama líma, seinast í júlí og hverfur
svo aftur um miðjan september«. Reknetaveiðarnar
hafa einnig ýmsa mikilsverða kosti, að minsta kosti
fyrir Norðlendinga þá, sem nú stunda hana helzt:
þær eru reknar þann tíma ársins (frá miðjum júlí
þangað til eftir miðjan september), sem veður eru
kyrrust að jafnaði, svo skipin þurfa ekki að vera
sérlega stór eða sterk; það má brúka sömu skipin
og þau er ganga á hákarlaveiðar og jafnvel þorsk-
veiðar, af því að síldarveiðin byrjar svo seint, og
svo þarf ekki nema fáa menn (8—10) á livert. og
það er mikils virði á þessum fólkseklutímum. Kaup-
ið er í Eyjafirði þannig, að liáselar fá 60—100 kr. á
mánuði og 3—10 aura fyrir tunnuna eða aðeins 50
aura fyrir tunnuna. Við Faxafióa l'á þeir 45 kr.
um mánuðinn og 15—20 a. verðlaun á tunnuna
(strokkinn).
Það sem dýrast er við þessa útgerð, eru veiðar-
færin. Netin, á eitt skip, með öllum útbúnaði kosta
1500—2000 kr. og snyrpinótin er enn þá dýrari.
Það væri því full þörf á að menn gætu fengið lán
1) Pessi vog er sögð áreiðanlcg, fæst hjá Instrumentmager Martin
Olsen í Bergen og kostar 13 krónur.