Fálkinn


Fálkinn - 06.07.1935, Blaðsíða 10

Fálkinn - 06.07.1935, Blaðsíða 10
10 F Á L K 1 N N S k r í 11 u r. — Mundirðu eftir skyrtuhnöpp- unum handa mjer? — Finst þjer jeg ekki hafa nóg — Það gerðist suður i Alpa- fjöllum....... aö bera? — Hjálpt hjálpi Jeg sje fætur undir rúminu. Svona atvikaðist það, að Olsen gat sofið fimm mínútum lengur á morgnana eftir að hann fjekk sjer tevagninn. — Gamli vinur, lánuðu mjer 50 krónur í einn mánuð — jeg hefði getað fengið þær hjá Andrjesi, en hann vildi hafa 5 krónur í rentar fyrir þennan eina mánuð. — Hjerna eru fimm krónur til að borga renturnar með. — Fyrirgefið þjer. Þekkið þjev kafara sem heitir Olsen? Grímur var nýsestur við borðið á kaffihúsinu þegar Gestur víkur sjer að honum og segir: — Afsakið þjer, en þjer settust á hattinn minn! — Ætlið þjer að fara strax, svar- aði Grimur. Töframaðurinn dregur kaninu upp úr pípuhattinum sinum og segir: — Þessi hattur er ótæmandi. Það er altaf eitthvað i honum. — Og lika þegar þjer hafið hann á höfðinu? spyr einn áhorfandinn. Þau voru að leggja af stað í leik- húsið, þegar frúin sagði: — Heyrðu, Adolf, svona órakaður máttu ó- mögulega fara í leikhúsið. — Hvað er þetta, kona, við sem erum að fara á .„Rakarann í Se- villa“. Það datt alveg ofan yfir Jón þeg- ar konan hans eignaðist tvíburana. Þegar Ijósmóðirin kom með króana til hans, að sýna honum þá, spurði hann í öngum sinum: — Á jeg að velja úr? Copyrighf P. I. B. Box 6 Copenhageo Nr. 339. Adamson borðar morgunverð. — Mikil harðyðgi er að lokn veslings dýrin inni í búrum. Lœknirinn (við fjörgamla ekkju): Hvernig líður yður í dag? Ekkjan: — Jeg er engu betri. Jeg lendi bráðum i faðmi Belsebubs. Lœknirinn: — Þjer meinið faðnii Abrahams? Ekkjan: — Þegar þjer hafið verið ekkjumaður í 40 ár stendur yður víst alveg á sama i hvaða faðmi þjer lendið. tíamla konan (hróðug): — Jeg skal segja yður, að jeg keypti tólf hænur fyrir heilu ári og síðan hafa þær verpt áttatíu eggjum — og ekkert þeirra var fúlt! Arni: — Jeg verð þjer æfinlega skuldbundinn ef þú vilt gera svo vel að lána mjer fimtiu krónur. Djarni: — Það er nú meinið. Tómas (montinn): — Jeg hefi notað þessa sömu regnhlif í tíu ár. Jónas: — Þá held jeg væri kom- inn timi til að þú skilaðir henni. — Veistu það, frændi, sagði Jóna litla, að barn sem var alið á fíla- mjólk þyngdist um tuggugu pund á viku? — Hvaða bull er þetta, telpa. HVer átti barnið? — Fíllinn, náttúrlega! Stúlka úr Hjálpræðishernum er að reyna að leiða ungan en efunar- Frakki vasaþjófsins. saman mann til betri vegar, og hann spyr hana hvort liún trúi sögunni um Jónas í hvalnum. — Já, það geri jeg, þó jeg geti ekki útskýrt hvernig þetta hefir gerst. En jeg skal spyrja Jónas að Iþví sjálfan, þegar jeg kem til himnaríkis og liitti hann. —En hvernig fer, ef Jónas er ekki í himnaríki? spyr sá vantrú- aði. — Þá getur þú spurt hann sjálf- ur, svaraði hjálpræðishetjan. Kennarinn: — Fyrir livað voru hinir fornu Rómverjar kunnastir? Nemandinn: — Þeir töluðu allir latinu reiprennandi. Maður nokkur fór í meiðyrða- nxál við nágranna sinn, sem hafði kallað hann ljótan flóðhest. Dómar- inn segir: — Jeg sje að þetta gerðist fynr þremur árum. Hversvegna eruð þjer að fara i mál núna? — Jeg hefi aldrei sjeð flóðhest fyr en jeg kom í dýragarðinn í vik- unni sem leið. Það var verið að tala um hjóna- bönd og Jón situr ólundarlegur hjá og hlustar á, þangað til hann segir: — Eini munurinn, sem jeg hefi nokkurntima orðið var við á brúð- kaupi og jarðarför, liggur i sálma- lögunum, sem sungin eru.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.