Fálkinn


Fálkinn - 23.11.1935, Blaðsíða 14

Fálkinn - 23.11.1935, Blaðsíða 14
14 F Á L K I N N Kristján H. Magnússon, málari hefir haft sýningu á um fjörutiu málverkum sínum nú undanfarið, í hinni nýju vinnustofu sinni á Skóla- vörðustíg 43. Eru myndir þessar víðsvegar að, en flestar frá Þing- en flestir íslenskir málarar. Hefir hann haldið sýningar hæði í Ame- ríku og Englandi og ágætt safn vestra, Worcester Art Museum, hefir keypt myndir eftir hann og fer mjög Einár .Kristinn Auð- unsson, handsetjari í Ríkisprentsmiðj- unni Gutenberg, á í dag 70 ára afmæli. Hættir hann nú störfinn eftir að hafa unriið að prentverki í sam- fleytt 56 ár, lengur en nokkur annar prentari hjer á iandi. En þótt hann hverfi nú frá vinnu fyrir aldurs sakir, er hann ekki á flæðiskeri staddur, þvi að hann mun fá lífsuppeldi af sjóðum prentara. í kvöld halda starfs- bræður hans hon- um samsæti. Mynd- ina tók K. Ó. B. af Kristni við setjara- kassann. Adam Ouickery í New Jersey var gjaldþrota og alt var tekið af hon- um, búðin, húsið og yfirleitt alt sem 'hann átti. Einasta vonin hans var að sonur hans mundi sjá fyrir hon- um það sem éftir var af æfinni. En sonurin hafði flust til Argentínu fyrir allmörgum árum og ekkert lát- ið heyra frá sjer. Nú var því um að gera að komast í samband við hann. Og gamli Ouickery fann ráð til þess. Hann þekti auðsjáanlega son sinn vel, því hann sló vin sinn fyrir nokrum dollurum í auglýsingu — og auglýsti „eftir erfingja að því, sem eftir var af auði Adams Ouick- ery í New Jersey“. Auglýsingin birt- ist i dagblaði í Buenes Aires óg bar þann árangur að margir gáfu sig fram, þar á meðal sonurinn. Iiann tók sjer ferð á hendur norður til New Jersey og þar var hann dæmd- ur til þess að sjá föður sínum far- borða meðan hann lifir. STÆJRSTA GISTIHÚS HEIMSINS. er Waldorf Astoiúa Hotel í New York, sem nýlega hefir verið reist í stað eldra hótels með sama nafni. Er það 47 hæðir og hefir 2200 her- bergi. Byggingar kostnaður varð jafn margar miljónir dollara og hæðirnar eru margar. — Stúlka. nokkur hafði verið kvödd sem vitni í máli og dómar- inn kallar hana fyrir sig. — Hvað eruð þjer gömul? spyr hann. — Jeg er tuttugu og sjö ára og nokkurra mánuða, svarar hún. 1— Hm! sagði dómarinn og ræskti sig um leið og hann virti hana fyrir sjer.Hvað margra mánaða þá? Þjer vitið, að það getur komið til, að þjer verðið að vinna eið að öllu sem þjer segið hjer fyrir rjettinum. Sætubrosið hvarf af vitninu og stúlkan stokkroðnaði í kinnum, meðan hún reiknaði og reiknaði. Loks svaraði hún: — Eitt hundrað tuttugu og þriggja mánaða! völlum og af Fjallabaksvegi, enn- fremur úr Kjósinni, frá Vestmanna- eyjum, af Fljótsdalshjeraði, Snæ- fellsnesi og víðar, en stærsta mynd- in er af Hrafnabjörgum, sú sem myndin er af, sem sjest hjer að ofan. Kristján á sjer marga vini og unnendur sem listamaður, bæði ut- an lands og innan og er víðförlari lofsamlegum orðum um liann. Og list- dómarar ensku blaðanna „The Times“, „Morningpost" og „Ob- server“ hafa farið mjög lofsainleg- legum orðum um myndir hans. — Á sýningunni eru fjöldamargar gull- fallegar myndir, sem ráða má fólki til að sjá. S.TERLEYFIN í ABESSINÍU. Eins og menn muna varð uppi fótur og fit í haust, er það frjettist að ýmsir útlendingar hefðu fengið víðtæk sjerleyfi í Abessiníu. Var nafn Standard-olíufjelagsins bendl- að við málið, en þó einkum ann- ars manns, sem Leo Chertok heitir, og kvaðst hafa enskt auðmagn að baki sjer. Myndin er af Chertok og tekin er hann kom af fundi við sendiherra Abessiníu í London. Elínborg Tómasdóttir frá Stakkhamri, nú á Hringbraut Vi6, verður 70 ára þ. 29. nóv. Á LEIÐ TIL KEISARANS. Myndin er af höfðingja einum í Abessiníu, sem er á leið til Haile Selassie keisara til ])ess að bjóða honum aðstoð sína í hernaðinum gegn ítölum. Er gamli maðurinn all vígabarðalegur að sjá og skeggjaður eins og keisarinn. En að litlu gagni kemur honum sennilega skjöldurinn gegn skeytum ítala. JACKIE COOGAN, sem á barnsaldri varð frægur fyrir leik sinn í kvikmyndum, með Cliarlie Chaplin er nú svo vaxinn að aldri, að hann hefir trúlofað sig. Konuefn- ið er Toby Wing kvikmyndaleikkona og sjást þau hjer á myndinni.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.