Fálkinn


Fálkinn - 10.01.1966, Síða 38

Fálkinn - 10.01.1966, Síða 38
KYENÞJOBIN RITSTJÓRI: KRISTJAIVA STEHVGRÍMSDÓTTIR ÍS í SÚKKULAÐIFATI 150 g dökkt súkkulaði — 100 g ljóst — 1 msk. smjor — Þykkur málmpappír — 15—20 litlar makkarónur — ís — Niðursoðnir ávextir. — Brjótið súkkulaðið smátt og bræðið það yfir gufu, án þess að hrært sé í skálinni. Setjið 1 msk. af smjöri saman við, þegar súkkulað- ið er alveg bráðið, hrært vel saman. Hvolfið hæfilega stórri skál á fat og þekið hana að utan með þykkum málmpappír. Athugið að pappírinn falli vel að skál- inni, klippið um 1 cm frá brún skálarinnar og smyrj- ið pappírinn með olíu. Smyrjið jöfnu lagi af súkkulaði yfir alla huldu skálina. Notið nál. helming- inn af súkkulaðinu, látið það storkna á köldum en þó dragsúgslausum stað, hald- ið afganginum af súkkulað- inu fljótandi yfir heitu vatni. Þegar súkkulaðið er stirðnað á skálinni, er af- gangnum smurt utan á. Kælt, og þegar súkkulaðið er fullstirðnað, er það losað af skálinni, á þann hátt að lyfta málmpappírnum. Sett á fat, málmpappírinn losað- ur varlega frá. Notið síðasta afganginn af súkkulaðinu til að tylla makkarónunum á brún súkkulaðiskálarinnar. Súkkulaðiskálin fyllt með ís. Gott er að skreyta ísinn með niðursoðnum ávöxtum. SVÍNAKÓTILETTUR MEÐ SVEPPAFYLLINGU 8 þunnar svínakótilettur — Salt og pipar —- 250 g sveppir — 3 msk. smjörlíki — 14 msk sítrónu- safi — 1 msk. tómatkraftur — 1 msk. þurrt hvít- vín — 1 egg — Brauðmylsna. — Kótiletturnar barðar með hnefunum, salti og pipar stráð á. Sveppirnir hreinsaðir og skornir í sneiðar, sjóðið þá í 1 msk. af smjöri, ögn af salti 'stráð á ásamt sítrónusafa, tómatkrafti og hvítvíni. (Víninu má sleppa). Setjið 1 msk. af sveppum á helminginn af kótilettunum, leggið aðra kótilettu yfir og festið þær saman með trépinna. Snúið síðan tvöföldu kótilettunum fyrst upp úr samanþeyttu eggi og síðan brauðmylsnu. Brúnið þær í smjöri á báðum hliðum, minnkið hitann, setjið hlemm yfir pönn- una og látið kótiletturnar sjóða við hægan hita í 10—15 mínútur. Án efa verður dálítið af sveppum eftir, sem gott er að nota í sósu: Stráið 14 msk af hveiti í pottinn, hellið 1—114 bolla af soði og rjóma saman við. Soðið í 2—3 mínútur. Kryddað. Hellt yfir kóti- letturnar, sem bornar eru fram með soðnum kart- öflum.

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.