Fréttablaðið - 09.11.2009, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 09.11.2009, Blaðsíða 16
16 9. nóvember 2009 MÁNUDAGUR timamot@frettabladid.is Athafnakonan Ásdís Jenna Ástráðs- dóttir rekur raunar tvö fyrirtæki, annað svolítið sérstakt þar sem það markaði ákveðin tímamót í hennar lífi. Frítíma sínum ver hún með eiginmanninum Kevin Buggle og hundinum Happy. „Ég rek sjálfa mig eins og fyrir- tæki,“ segir Ásdís Jenna og hlær. „Ég fæ það sem hefur verið kallað notendastýrð, persónuleg þjónusta. Í mínu tilfelli þýðir það að ég fæ bein- greiðslur frá bæði ríki og sveitar- félagi. Þær nota ég til þess að greiða starfsfólki mínu laun en alls eru inni á mínu heimili sex manns í vinnu á vöktum, einni í einu. Ég er því með þjónustu sem ég get lagað að mínum þörfum allan sólarhringinn. Ég sé sjálf um mannaráðningar, ræð starfs- fólk og það hefur komið upp að ég hafi þurft að láta starfsfólk fara. Ég stofn- aði fyrirtæki, sem ég nefndi Ástu Sól, til þess að halda utan um þjónustuna, færa bókhald og greiða út launin en reyndar hef ég eina konu sem aðstoð- ar mig við þetta. Þetta er mikil vinna en alveg þess virði,“ segir Ásdís Jenna, sem er með heilalömun. Ásdís Jenna, sem áður bjó í íbúða- kjarnanum Tjarnarmýri á Seltjarnar- nesi, segist hafa öðlast nýtt og sjálf- stætt líf. „Á Tjarnarmýri leið mér eins og fanga og átti þar ekkert einka- líf. Ég þurfti að deila allri þjónustu með íbúum, fyrir utan það að ég fékk ekki næga þjónustu. Ég þurfti alltaf að bíða. Ég dinglaði bjöllu sem átti að kalla á þjónustuna og þurfti stundum að bíða í marga klukkutíma. Nú þarf ég ekki að bíða nema nokkrar sekúnd- ur Ég lifi bara eins og ég væri heil- brigð manneskja. Ég á bíl og ef mig langar að fara út eftir fimm mínútur þá get ég gert það, starfsfólkið mitt keyrir. Samfélagið heftir mig ekki eins mikið og áður.“ Ásdís Jenna fann ástina á netinu. „Hann Kevin minn. Við hittumst fyrst í mars 2008 og svo flutti hann til mín á Tjarnarmýrina. Við giftum okkur síðan í ágúst 2009,“ segir hún og ljómar greinilega enn af hamingju. „Saman eigum við hundinn Happy, sem við erum með í hundaþjálfun.“ Undir nafninu Ásta Sól reka þau hjónin einnig annan fyrirtækja- legg sem sérhæfir sig í tölvuráðgjöf og tölvuviðgerðum fyrir fatlað fólk. „Nafnið Ásta er í höfuðið á mömmu, Ástu B. Þorsteinsdóttur, en hún er nú látin. Hún barðist mikið fyrir mig og fatlaða. Pabbi, Ástráður B. Hreiðars- son, hefur líka hjálpað mér mikið. Við Kevin störfum bæði við þennan hluta fyrirtækisins. Kevin er mjög fær á tölvur og ég er menntaður táknmáls- fræðingur og hef einnig mikla reynslu að skrifa á tölvu með höku og augum. Það er í rauninni mín ástríða að reyna að finna leiðir til tjáskipta fyrir fatl- að fólk sem á erfitt með mál eins og ég sjálf. Við bjóðum upp á tölvuráð- gjöf og viðgerðir fyrir sanngjarnt verð. Hægt er að finna okkur í síma- skránni eða senda póst á asdisjenna@ simnet.is.“ Ásdís Jenna er hvergi nærri því að hætta að berjast fyrir réttindamál- um fatlaðra. „Ég er eins og mamma og segi alltaf: Ég get allt. Nú er ég í Samtökum um sjálfstætt líf sem berj- ast fyrir notendastýrðri, persónulegri þjónustu. Ég held áfram og hætti ekki fyrr en þetta er orðið algengt þjón- ustuform. Ég get allt.“ - uhj NIKKI BLONSKY FÆDDIST ÞENNAN DAG. „Ég vona að þéttum konum bjóðist fleiri kvikmynda- hlutverk; mig dreymir um að sjá þær í hlutverkum kynþokkafullra ástkvenna.“ Leikkonan Nikki Blonsky vakti fyrst heimsathygli fyrir aðal hlutverk sitt í kvikmynd- inni Hairspray frá árinu 2007. Næst birtist hún áhorfendum í framhaldsmyndinni árið 2010. MERKISATBURÐIR 1932 Gúttóslagurinn í Reykja- vík. Áheyrendur hleypa upp bæjarstjórnarfundi í Góðtemplarahúsinu vegna ákvörðunar bæjar- stjórnar um að lækka laun í atvinnubótavinnu. 1938 Kristalsnótt. Fyrstu skipu- lögðu gyðingaofsóknir nasista hefjast. 1985 Minnisvarði afhjúpaður á Skógum í Þorskafirði um Matthías Jochumsson skáld, sem fæddist þar 150 árum áður. 1989 Berlínarmúrinn fellur. 2004 Útgáfa 1.0 af Mozilla Firefox kemur út. 2005 Rúmlega 50 manns láta lífið og um 120 særast í sjálfsmorðssprengjuárás- um í Amman í Jórdaníu. LJÓMAR AF HAMINGJU Ásdís Jenna ásamt hundinum Happy og þau eru svo sannarlega glöð saman. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ÁSDÍS JENNA ÁSTRÁÐSDÓTTIR: BERST FYRIR NOTENDASTÝRÐRI ÞJÓNUSTU Aðstoðar fatlaða til tjáskipta Halldór Halldórsson, mat- reiðslumaður á Hótel Höfn, er að ljúka við matreiðslu- bók sem nefnist Réttir úr ríki Vatnajökuls. Búist er við að hún komi úr prent- smiðju í byrjun desem- ber. Hráefni úr Hornafirði er í aðalhlutverki í öllum réttunum og þar á meðal flest sem selt hefur verið í heimamarkaðsbúðinni þar á staðnum. Halldór hafði safnað myndum og uppskriftum frá árinu 2003 þegar hug- myndin að bókinni kvikn- aði og hann segir upp- skriftirnar hannaðar með tilliti bæði til byrjenda í matargerð og lengra kom- inna. Myndir af horn- firskri náttúru prýða bók- ina í bland við girnilegar matarmyndir. Daníel Imsland sér um umbrot og grafíska vinnslu. Auk þess hafa Guðmundur H. Gunnarsson hjá Matís og Rósa Björk Halldórs- dóttir hjá samtökunum Ríki Vatnajökuls lagt fram hug- myndavinnu. Áhugasamir geta haft samband á net- fangið halhal@simnet.is. Heimild/www.rikivatna- jokuls.is. - gun Réttir úr ríki Vatna- jökuls í prentun KOKKURINN Halldór hefur safn- að uppskriftum og myndum í matreiðslubókina frá 2002. MYND/ÚR EINKASAFNI Fyrstu útivistarrjóðrin í Grafarholti voru vígð nýlega og þrátt fyrir að veðurguðirnir væru ekki samvinnu þýðir þann daginn létu íbúar Grafarholts og Úlfarsárdals sig ekki vanta í athöfnina sem fram fór við bakka Reynis- vatns. Gísli Marteinn Baldursson vatt sér upp á borð og talaði um mikilvægi frumkvæðis frá íbúum og kraftinn sem leysist úr læðingi þegar íbúar og borgarstofnanir vinna saman að verkefnum í nærumhverfinu. Skólabörn úr Sæmundarskóla sungu við undirleik unglinga úr báðum grunnskólum hverfisins og Guðmundur Hrafn Arngríms- son verkefnisstjóri sagði frá vinnunni og aðkomu ungra sjálfboðaliða. Að lokum fengu viðstaddir heitt kakó og kleinur áður en hluti hópsins hélt í göngu um svæðið með útivistarmanninum Höskuldi Jónssyni. Verkefni sem nefnist Útivist og hreyfing og styrkt er af Forvarna- og framfarasjóði Reykjavíkurborgar, gengur út á að skipuleggja fjögur rjóður sem verða áningarstaðir á fallegri gönguleið um nágrenni Reynisvatns. Þar með er reynt að mæta þörfum íbúa fyrir útivist og hreyfingu. Nú eru tvö rjóður tilbúin en vonast er til að verkefnið klárist næsta sumar með dyggum stuðningi borgarinnar. - gun Útivistarrjóður í Grafarholti Í RJÓÐRI Gísli Marteinn brá sér upp á borð. Á þessum degi árið 1986 sökktu umhverfis- samtökin Sea Shepherd íslensku hvalveiði- skipunum Hval 6 og Hval 7 í Reykjavíkur- höfn. Vegna þessa var Paul Watson, einn af stofnendum samtakanna, fangelsaður stutt- an tíma þegar hann kom til Íslands árið 1988 og í kjölfarið vísað úr landi. Sea Shepherd Conservation Society eru umverfisverndarsamtök sem einkum berj- ast gegn veiðum á sjávardýrum. Samtökin eru þekktust fyrir baráttu gegn hvalveiðum en hafa einnig fengist við baráttu gegn veiðum á öðrum sjávardýrum eins og selum og sæskjaldbökum. Sea Shepherd-samtökin voru stofnuð af hópi fólks sem þótti aðferðir Greenpeace- samtakanna ekki nógu róttækar. Núverandi höfuðstöðvar samtakanna eru í Friday Har- bour í Washington-ríki í Bandaríkjunum. ÞETTA GERÐIST: 9. NÓVEMBER 1989 Sea Shepherd sökkva hvalveiðibát Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, afi, sonur, bróðir, mágur og tengdasonur, Jóhann Már Jóhannsson Heiðardal 1, Vogum, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sunnudaginn 1. nóvember. Útförin fer fram frá Víðistaðakirkju miðvikudaginn 11. nóvember kl .14.00. Ragnhildur B. Svavarsdóttir Íris Ósk Jóhannsdóttir Kristján Guðbrandsson Helga Dögg Jóhannsdóttir Aron Freyr Kristjánsson María Jóhannesdóttir Jóhann Th. Þórðarson Jóhanna Valdís Jóhannsdóttir Ingi Karl Ingibergsson Hermann Freyr Jóhannsson Bryndís María Björnsdóttir Anna Bergmann Guðbjörnsdóttir Guðmundur Waage Elskulegur bróðir okkar og mágur, Hallberg Sigurjónsson Stuðlaseli 2, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Seljakirkju þriðjudaginn 10. nóvember kl. 15.00. Fyrir hönd ættingja og vina, Sigurður Sigurjónsson Elísabet Guðmundsdóttir Alda Rut Sigurjónsdóttir Ólafur Haraldsson

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.