Fréttablaðið - 09.11.2009, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 09.11.2009, Blaðsíða 34
BAKÞANKAR Gerðar Kristnýjar 18 9. nóvember 2009 MÁNUDAGUR ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Þetta er gömul uppskrift... Af hverjum spörum við ekki alla peningana sem við notum venjulega í jólagjafir, páskaegg, ösku- daginn og afmælisgjafir... Æ, æ, æ, æ! Sáttur? Tja...það má svosem segja það. Ég hef séð það verra! Hvað segir teningur- inn? Ohhh, þetta gæti vel verið fjarki! Sterkur fjarki! Jahá! Hvað vantaði upp á? Lykt og um- merkin. Þar mátti þetta vera betra! Og svo hefðu mátt vera meiri læti! Vatn á skinkuna? Það er jú það sem þetta snýst um! Palli, ég elska að þú sért byrjaður að segja að þú elskir mig. Ég elska að þú skulir hafa tekið eftir því. Og ég elska þig af því að þú segist elska mig fyrir að ég segi að ég elski að þú segist elska mig. Með öðrum orðum, lítið orð með mikla merkingu? Og ég elska þegar þú ert svona skarpskyggn. ... og gefum þeim bara einn stóran kassa endrum og sinnum? Það er hug- mynd... Má ég búa hérna í kassanum? SKAPAÐU ÞÍNA EIGIN FRAMTÍÐ Námsráðgjöf og upplýsingar sími 525 4444 endurmenntun.is Námsbraut á meistarastigi • Fjölmenningarfræði – málefni innflytjenda -LÁNSHÆFT NÁM Námsbrautir á grunnstigi • Gæðastjórnun • Verkefnastjórnun – Leiðtogaþjálfun • Rekstar- og viðskiptanám • Matsfræði • Framkvæmdarferli mannvirkjagerðar – fjármögnun, samningar, útboðsreglur og uppgjör Endilega kynntu þér námsbrautirnar Umsóknarfrestur er til 1. desember nema í Matsfræði og Framkvæmdaferli mannvirkjagerðar sem er 20. janúar. Einnig í fjarnámi Einnig í fjarnámi Skilur eitthvert ykkar þessa fyrirsögn? Það hefði ég ekki heldur gert ef ekki hefði fylgt mynd af fyrirbærinu í lit- prentuðum auglýsingabæklingi sem fylgdi Fréttablaðinu á föstudaginn og kemur frá barnafataverslun hér í borg. Framan á honum stendur „Gleðileg jól“ og inni í honum eru myndir af glaðlegum börnum í ljómandi fallegum fötum. Ekki er verra að verðið á herlegheitunum fylgir með. Svona á að gera þetta, hugsaði ég með mér og byrjaði að fletta í gegnum dýrðina. EN svo hnaut ég um þetta skrítna orð „túnikka“ og öll athyglin fór í að velta því fyrir mér hvers vegna ósköp venjulegur skokkur eða kjóll heitir allt í einu „túnikka“ og hvers vegna flest allt annað er þýtt í bæk- lingnum. „Flest allt” skrifa ég því á sömu mynd getur að líta „leggings“ sem einhverju sinni hétu „gammós- íur“ og þótt það sé vissulega ein- kennilegt orð er að minnsta kosti hægt að fallbeygja það og kasta á það kyni. Svo birtist þarna líka hneppt peysa sem er nefnd „ból- eró“. Og hvað segiði, ætlið þið að klæða dætur ykkar í „túnikku“ og „leggings“ þessi jólin og láta þær síðan vera í góðu „bóleró“ yfir? ORÐSKRÍPIÐ „túnikka“ er eflaust dregið af enska orðinu „tunic“ sem þýðir „kyrtill“ eða „mussa“. Ef þetta eru ekki nógu fín orð mætti draga fram orðið „skyrta“. Best er þó að horfa á myndina og velta því fyrir sér hvað hún sýnir. Ég hef lengi velt því fyrir mér hvers vegna það virðist vera svo erf- itt að skrifa um tísku og förðun á íslensku. Hvers vegna „hyljari“ verður svona auð- veldlega að „konsíler“ hjá Karli Berndsen, manni sem tókst þó að kenna þjóðinni að segja „aðhaldsbuxur“, sem er svona álíka þjált orð og það er þægilegt að troða sér í þær. ÞEGAR skrifað er um tísku verða ára- tugirnir skyndilega líka of flóknir og þá er gripið til letidýranna „sixtís“ og „seventís“. Inga Rún Sigurðardóttir, blaðamaður á Morgunblaðinu, hefur þó glatt mann með vönduðum tískuskrifum þar sem til að mynda „ósymmetrískir“ kjólar fá að víkja fyrir þeim „ósamhverfu“. Jólin ganga út á hefðir. Þess vegna drekkum við malt og appelsín og hlustum á Þrjú á palli syngja „Hátíð fer að höndum ein“. Orð eins og „jólakjóll“ eða „skokkur“ vekja fallegar minningar í hugum margra og gætu orðið til þess að galvösk móðir teymdi dóttur sína í búðir. Með öðrum orðum þá getur barnafataverslun orðið fyrir búhnykk að nota orðið „túnikk“. Neytandinn verður ein- faldlega að skilja það sem við hann er sagt. Töfrandi túnikkur

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.