Fréttablaðið - 05.12.2009, Side 110

Fréttablaðið - 05.12.2009, Side 110
BAKÞANKAR Davíðs Þórs Jónssonar 78 5. desember 2009 LAUGARDAGUR ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Jáhá, þessar kylfur eru alveg skelfilega ógnandi!! Golf er erfið íþrótt! Jæja, þá eru þessar 24 klukkustundir liðnar... og þið megið taka óléttu-bumbuna af ykkur og hætta að vera óléttir. Takk fyrir sam- vinnuna og áhuga ykkar. Nei, þú fékkst stelpu! Og ykkar góða húmor. Ó guð, hún líkist þér! Hannes, hefurðu séð tangirnar mínar? Nei. Ertu viss, þær eru langar og ég nota þær í salatið? Ó, já, þessar hérna! Vissirðu ekki að þetta væru tangir? Ég hef ekki haft tíma til að hugleiða það. Mamma, Hannes var að klípa mig með töngunum aftur. „Mannætu- húmor“ hah- ahah Borðaðu mig Helgi eina í byrjun október áttum við hjónaleysin erindi austur á Egilsstaði. Illu heilli brast þó á með óveðri á föstu- deginum og um kaffileytið varð ljóst að ekkert yrði úr flugi. Þar sem erindið var brýnt ákváðum við að keyra austur, enda á þokkalega útbúnum fólksbíl með fjórhjóla- drifi. Við lögðum af stað um fimmleytið og gerðum ráð fyrir að ná áfangastað um tvö- leytið um nóttina. Norðurleiðin varð fyrir valinu, því veðurofsinn var mestur á sunn- anverðu landinu. Í FYRSTU gekk ferðin að óskum. Hálku- blettir og skafrenningur á Holtavörðu- og Öxnadalsheiði voru lítil fyrirstaða fyrir okkar ágæta fjölskyldubíl. Síðasti áfanginn, Möðrudalsöræfi og Jökuldals- heiði, átti að vera skástur samkvæmt upplýsingasíma Vegagerðarinnar. Þar var þó slíkt snjófjúk að á löngum köflum sáum við aðeins eina stiku fram fyrir okkur þótt vegurinn væri auður. Við ókum því lötur- hægt. Skyndilega rann bíllinn til og áður en ég fékk rönd við reist sat hann fastur. Nánari athug- un leiddi í ljós að á u.þ.b. tíu metra kafla hafði skafið í hnédjúpan skafl þvert yfir veginn, sennilega vegna þess að til beggja handa voru vegrið sem safnað höfðu snjó á milli sín. Þarna sannaðist hið fornkveðna að engin keðja er sterkari en veikasti hlekk- urinn. Einn skafl nægir til að leiðin á milli Akureyrar og Egilsstaða sé ófær. NÚ VAR úr vöndu að ráða. Ekkert þýddi að ýta bílnum. Við vorum pikkföst í skafli uppi á heiði í svartamyrkri um hánótt og höfðum ekki orðið vör mannaferða síðan á Mývatni. Farsíminn kom okkur til bjargar. Hringt var í 112 þar sem við fengum samband við lögregluna á Egilsstöðum. Við höfðum verið það forsjál að núllstilla kílómetramælinn á Akureyri og gátum því gefið upp nokkuð nákvæma staðarákvörðun. Tæpum hálf- tíma síðar birtist bóndi af nálægum bæ eins og frelsandi engill á fjallajeppa og kippti okkur yfir hindrunina. ÞVÍ er ég að deila þessu með ykkur að mér finnst ekki vanþörf á að minna á að um allt land er gott fólk, sem lætur sig ekki muna um að vera dregið fram úr hlýju rúminu um hánótt til að fara út í frost og fjúk til aðstoðar kjánum eins og mér, sem asnast til að ofmeta eigin getu og sýna þeim óblíðu skilyrðum, sem landið okkar gerir okkur að búa við og ferðast í, ekki tilhlýðilega virðingu. HAFI það allt Guðs þökk fyrir, ekki síst bóndinn á Skjöldólfsstöðum í Jökuldal. Þú ert aldrei einn á ferð Tilboð kr. 25.950* Nýja S2120 ryksugan frá Miele er lágvær, létt, kraftmikil og með stórum poka. Parketbursti að andvirði kr. 9.220 fylgir frítt með. Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is Sparaðu með Miele Þú sparar kr. 9.220 Opið í dag laugardag frá kl. 11:00-15:00 *tilboð gildir á meðan birgðir endast.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.